Fréttablaðið - 18.09.2009, Síða 22
2 föstudagur 18. september
núna
✽ fylgist vel með
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Ritstjórn Anna M. Björnsson Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga
900 - 1800
Laugardag
900-1300
Arnar, Aníka og Mat t i
bjóða ykkur velkomin
þetta
HELST
helgin
MÍN
EFTIR VINNU Á FÖSTUDAG fer ég í skólann á Bifröst en það
er fyrsta vinnuhelgi vetrarins í náminu mínu. Ég er mjög spennt yfir að hitta
skólafélaga mína aftur því við eyddum lunganu úr sumrinu saman á Bifröst.
Eftir nokkra fyrirlestra fer ég í bæinn á laugardag þar sem ég tek þátt í
leynilegri skemmtidagskrá nokkurra-stelpna-mafíu sem endar með ind-
versku matarboði. Ætli ég reyni ekki að vera góð mamma á sunnudaginn.
RITSTÝRA FRANSKA VOGUE,
CARINE ROITFELD mætti glæsi-
lega til fara á tískuvikuna í New York
sem nú stendur yfir.
Saga í Dazed & Confused
Ljósmyndaneminn Saga Sigurðar-
dóttir er að gera það gott í Lond-
on þar sem hún hefur myndað fyrir
hin ýmsu tískutímarit. Nýjasta rósin
í hnappagatið er þó glæsilegur
tískuþáttur sem hún myndaði fyrir
hipp og kúl-blaðið Dazed and Con-
fused. Saga er ekki einu sinni út-
skrifuð úr skólanum enn þá þannig
að búast má við stórum hlutum frá
henni í framtíðinni.
Pétur slær í gegn
Tónlistarmaðurinn Pétur Eyvinds-
son, betur þekktur sem DJ Music-
ian, sló rækilega í gegn
um síðustu helgi á Bakk-
usi þar sem hann hélt
útgáfuteiti á plötunni
Sehr Gut Cocktail. Marg-
menni dansaði við þýska-
landsskotið gleðiteknó
og mátti þar sjá Sig-
trygg Berg Sig-
marsson listamann,
Björn og Einar
Sonic í Singa-
pore Sling, Haf-
stein Mikael list-
málara, Þorgeir
Guðmundsson
kvikmyndagerðar-
mann, Gylfa Blön-
dal, Snorra Ásmunds-
son og Söru Björns-
dóttur.
„Þetta verður örugglega mega stemning,“ segir Heiða Birgisdóttir, kennd
við Nikita, um sameiginlegt partí GusGus og Nikita á laugardagskvöldið.
Partíið verður haldið í tilefni af opnun verslunar Nikita að Laugavegi 56
og útgáfu nýrrar breiðskífu frá GusGus. Á bak við verslunina er skemmti-
legur bakgarður þar sem tónleikarnir fara fram.
Partíið byrjar klukkan níu og Heiða hvetur fólk til að mæta tímanlega,
því tónleikarnir byrji fljótlega upp úr því. Opið verður inn í verslunina svo
gestir geta skoðað hvað Nikita hefur að bjóða.
Í nýju versluninni verður til sölu bæði hversdagsfatnaður og snjóbretta-
föt. Heiða er ánægð með að komið sé að opnun. „Við finnum það að marg-
ir eru mjög spenntir fyrir þessu. Við verðum með stóran hluta af línunni
okkar, bæði „street wear“ og snjóbrettaföt.“ - hhs
Margt um að vera í bakgarðinum á Laugavegi 56:
GusGus og Nikita halda
partí á laugardag
Þ
etta er nú hálfgerður einkahúmor hjá
okkur,“ útskýrir Óli Hjörtur Ólafsson,
skemmtanastjóri hjá Jacobsen, en hann
ætlar ásamt vinkonu sinni, Ernu Berg-
mann að halda „skinkupartí“ á laugardags-
kvöldið. Þeim til skýringar sem ekki kannast
við hugtakið skinka þá er það orð notað yfir
ljósbrúna, litaða og léttklædda tegund af kven-
manni, svona svipað og hnakki er fyrir karlkyn-
ið. „Við Erna höfum oft djókað með þetta hug-
tak, eins og til dæmis „að skinka sig upp“ fyrir
djammið og datt í hug að slá þessum djók upp
í allsherjarpartí. Við verðum með skinkusalat
á boðstólum með Ritz-kexi og erum alvarlega
að spá í að brúnka okkur upp fyrir kvöldið.
Við verðum svo með „skinku-off“ keppni þar
sem besta og mesta skinkan fær vegleg verð-
laun.“ Erna veit ekki hvort hún muni leggja í
allsherjar skinkulúkk. „ Ég kannski mála mig
aðeins skinkulegra en vanalega,“ segir hún og
skellihlær. Tónlistin er að sjálfsögðu í færum
höndum Óla Hjartar og Ernu. „Hún verður allur
skalinn af því sem skinkur myndu venjulega
hlusta á,“ útskýrir Óli Hjörtur. „Þetta verður
R&B og alls konar en ekkert jaðarrokk, skinkur
vilja ekki svoleiðis.“ Aðspurður hvort hann að-
hyllist venjulega skinkulúkkið fyrir konur neit-
ar hann því. „Nei, ég myndi alls ekki mæla með
því. Að vera skinka er svona botninn á hallær-
islegheitunum.“ - amb
Partíið hefst á Jacbobsen, Austurstræti á
miðnætti og það kostar 500 krónur inn.
ERNA BERGMANN OG ÓLI HJÖRTUR HALDA SKINKUPARTÍ Á JACOBSEN
ERUM ALVARLEGA AÐ
SPÁ Í BRÚNKUMEÐFERÐ
Myndu ekki mæla með skinkulúkkinu Erna og Óli Hjörtur verða í góðu stuði á laugardagskvöldið á Jacobsen.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nikitagarðurinn Opnunarteiti Nikita og útgáfutónleikum GusGus verður slegið saman
í eitt gott partí að Laugavegi 56 á laugardagskvöld. MYND/NIKITA