Fréttablaðið - 18.09.2009, Side 42
30 18. september 2009 FÖSTUDAGUR
Laugardalsvöllur, áhorf.: 1.776
Ísland Eistland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 42–2 (25–1)
Varin skot Þóra 1 – Meetua 14
Horn 9–1
Aukaspyrnur fengnar 7–18
Rangstöður 7–0
1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (4.)
2-0 Dóra María Lárusdóttir (7.)
3-0 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti (9.)
4-0 Katrín Jónsdóttir (16.)
5-0 Katrín Jónsdóttir (18.)
6-0 Edda Garðarsdóttir (33.)
7-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (38.)
8-0 Hólmfríður Magnúsdóttir (49.)
9-0 Sara Björk Gunnarsdóttir (54.)
10-0 Hólmfríður Magnúsdóttir (64.)
11-0 Hólmfríður Magnúsdóttir (74.)
12-0 Rakel Hönnudóttir (75.)
12-0
Hilda McDermott, Írl.
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Eyjólfur Héðinsson skor-
aði eitt marka GAIS sem vann 4-
0 sigur á Gefle í sænsku úrvals-
deildinni í gær. Þetta var hans
þriðja mark í síðustu fjórum
leikjum liðsins í deildinni.
Mörk Eyjólfs hafa einnig verið
mikilvæg. Hann tryggði GAIS 2-
2 jafntefli við Elfsborg í síðustu
umferð og skoraði svo sigurmark-
ið í 1-0 sigri á Hels-
ingborg í lok ágúst-
mánaðar.
GAIS hefur ekki
tapað síðustu fimm
leikjum sínum í
deildinni og er
nú sjö stigum
frá fallsæti
þegar sjö
umferðum
er ólokið.
- esá
Sænska úrvalsdeildin:
Eyjólfur raðar
inn mörkunum
Jóhann Birnir Guðmundsson er leikmaður 20. umferðar Pepsi-
deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann var maður leiksins
þegar hans lið, Keflavík, vann 1-0 sigur á Grindavík í Suðurnesja-
slag á miðvikudagskvöldið.
„Þetta var ansi mikilvægt fyrir sálartetrið að vinna sigur í þess-
um leik,“ segir Jóhann í samtali við Fréttablaðið en Keflavík
hafði fyrir þennan leik aðeins unnið einn leik í deildinni
síðan í júní síðastliðnum. „Þótt við höfum ekki tapað nema
þremur leikjum af síðustu tíu er það engan veginn nógu
gott því þessi jafntefli telja svo lítið.“
Þar að auki féll Keflavík úr leik í undanúrslitum bikar-
keppninnar um síðustu helgi. Sigurinn á Grindavík var þó
örlítil sárabót.
„Það er alltaf gaman að vinna Grindavík þegar maður
er að spila með Keflavík. Það gefur þessu smá aukagildi
enda alltaf sérstök stemning sem ríkir þegar þessi tvö
lið mætast. Það hefði þó mátt vera aðeins meira undir
í leiknum,“ sagði Jóhann en bæði lið sigla lygnan sjó
um miðja deild, eins og oft er sagt.
Keflavík er þó í fimmta sæti deildarinnar þrátt fyrir slæmt
gengi á undanförnum vikum. „Stefnan hefur verið einfaldlega
sett á að vinna síðustu tvo leiki okkar í deildinni og ef það tekst
eigum við ágætan möguleika á að koma okkur upp í fjórða
sætið. Svo höfum við líka sett stefnuna á að vinna útivallarsigur í
sumar – það hefur okkur ekki enn tekist.“
Keflavík á einn leik eftir á útivelli en það er gegn Þrótti á
sunnudag. Þróttarar eru þegar fallnir í 1. deildina.
„Seinni hlutinn af sumrinu hefur vissulega verið nokkur
vonbrigði fyrir okkur eftir ágætan fyrri hluta. Við höfum þó
misst marga menn í meiðsli í sumar en samt sem áður
höfum við ekki staðið undir væntingum þegar við gátum
stillt upp okkar sterkasta liði.“
Jóhann Birnir hefur þurft að spila með andlitsgrímu í
síðustu leikjum eftir að hann kinnbeinsbrotnaði í síðasta
mánuði. „Ég fór í aðgerð og var frá í fjórar vikur eftir hana.
Þetta er því spurning um öryggisatriði að vera með grímuna
þó það sé ekki sérstaklega þægilegt, sér í lagi þegar það rignir
eins og í leiknum gegn Grindavík,“ sagði Jóhann.
JÓHANN BIRNIR GUÐMUNDSSON: LEIKMAÐUR 20. UMFERÐAR PEPSI-DEILDAR KARLA
Var gott fyrir sálartetrið að vinna loks sigur
> Lið 20. umferðar
Fréttablaðið hefur valið lið 20.
umferðarinnar í Pepsi-deild karla. Það
er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markvörður: Lasse Jörgensen (Kefla-
vík). Vörn: Bjarki Páll Eysteinsson
(Stjörnunni), Jón Guðni Fjóluson
(Fram), Daníel Laxdal (Stjörnunni),
Hjörtur Logi Valgarðsson (FH).
Miðja: Baldur Sigurðsson (KR),
Jóhann B. Guðmundsson (Keflavík),
Paul McShane (Fram), Valur Fannar
Gíslason (Fylki), Atli Guðnason
(FH). Sókn: Atli Viðar Björnsson
(FH).
EYJÓLFUR
HÉÐINSSON
FÓTBOLTI Stelpurnar okkar fengu
ekki mikla mótspyrnu á móti Eist-
landi í undankeppni HM á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöldi. Mörk-
in urðu á endanum tólf og þetta er
stærsti sigur kvennalandsliðsins
frá upphafi. Íslenska liðið hafði
unnið sinn stærsta sigur, 10-0, á
Póllandi árið 2003 og stærsti sigur
liðsins undir stjórn Sigurðar Ragn-
ars Eyjólfssonar var áður 7-0 á
móti Grikklandi í fyrrasumar.
Margrét Lára Viðarsdóttir og
Hólmfríður Magnúsdóttir skor-
uðu báðar þrennu í leiknum og
Edda Garðarsdóttir lagði upp fjög-
ur markanna en annars dreifðist
þetta vel og alls voru það sjö leik-
menn af ellefu í byrjunarliði sem
komust á blað.
Íslenska liðið byrjaði leikinn
með stórsókn, fyrsta markið kom
eftir aðeins 4 mínútur og eftir
rétt rúmar átta mínútur var stað-
an orðin 3-0. Margrét Lára skor-
aði fyrsta markið með skalla,
Dóra María bætti öðru marki við
áður en Margrét Lára skoraði af
öryggi úr vítaspyrnu sem Rakel
Hönnudóttir fiskaði. Það var því
strax ljóst að það stefndi í mjög
skrautlegan leik. Það liðu reynd-
ar sjö mínútur þar til stelpurn-
ar bættu við marki en þá skoraði
Katrín Jónsdóttir tvö skallamörk
með aðeins mínútu millibili og
komu þau bæði eftir hornspyrn-
ur frá Eddu. Edda var síðan sjálf
á ferðinni þegar hún skoraði sjötta
markið á 33. mínútu með laglegu
langskoti. Margrét Lára innsiglaði
síðan þrennuna með skalla eftir
fyrirgjöf frá Dóru Maríu Lárus-
dóttur og stelpurnar voru búnar
að skora sjö mörk á fyrstu 38 mín-
útunum.
Hólmfríður Magnúsdóttir og
Sara Björk Gunnarsdóttir komust
báðar á blað í upphafi seinni hálf-
leiks, Hólmfríður eftir sendingu
frá Sif Atladóttur og Sara með
skalla eftir fjórðu stoðsendingu
Eddu í leiknum. Hólmfríður skor-
aði síðan tíunda markið eftir aðra
fyrirgjöf frá Sif og innsigklaði
síðan þrennuna með þrumuskoti
eftir sendingu Ólínu Guðbjargar
Viðarsdóttur.
Rakel Hönnudóttir fékk fullt
af færum til að skora en markið
lét bíða eftir sér og kom ekki fyrr
en á 75. mínútu eftir að hún fékk
góða stungusendingu frá Margréti
Láru. Það átti eftir að verða síð-
asta markið enda þetta orðið gott.
Leikaðferð Eistlendinga var
mjög furðuleg, liðið spilaði með
fjóra leikmenn mjög framarlega á
vellinum þrátt fyrir að boltinn færi
varla yfir miðju og varnarskipulag
liðsins var oft út í hött. Þessi leik-
ur var því ekki einu sinni eins og
létt æfing fyrir íslensku stelpurn-
ar en þær héldu einbeitingunni og
lönduðu flottum sigri sem trygg-
ir liðinu góða markatölu í barátt-
unni um sigurinn í riðlinum á móti
Frökkum.
„Þetta var léttur leikur en það
þarf víst að klára þá líka og við
gerðum það mjög fagmannlega í
dag. Við komust í 3-0 eftir níu mín-
útur og leikurinn var bara búinn
þá. Þetta var bara spurning um
hvað þetta yrði stórt og það var
jákvætt hvað við héldum áfram
allan tímann. Markatalan getur
skipt miklu máli en við sjáum það
þegar Frakkarnir verða búnir að
spila við Serbíu og Eistland hversu
góð úrslit þetta eru,“ sagði Sigurð-
ur Ragnar Eyjólfsson, landsliðs-
þjáfari. ooj@frettabladid.is
Metsigur á slökum Eistlendingum
Stelpurnar okkar settu nýtt met með því að að vinna tólf marka sigur á Eistlandi í gær. Margrét Lára Við-
arsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu báðar þrennu. Sjö leikmenn íslenska liðsins komust á blað.
EITT AF TÓLF Margrét Lára Viðarsdóttir og liðsmenn hennar fagna einu marka sinna í gær; þau urðu alls tólf talsins í leiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM