Spegillinn - 01.02.1958, Blaðsíða 10
34
5PEEILLINN
Framhaldsskemmtiþáttur
fyrir ríkisútvörp
menningarlanda;
annar kafli.
Glötuð Garmskinna
Stjórnandi þáttarins: Gott kvöld,
góðir hlustendur. Þá erum við
komin hér aftur og höldum áfram
þar sem frá var horfið í síðasta
þætti. — (Auðvitað er enginn kom-
inn neitt og ekki að neinu að hverfa,
þar sem frá engu var horfið síðast.
En þetta er sem sé klassisk byrj-
unarsetning). — Eins og þið mun-
ið, skildum við við þau Jón og
Gunnu í Fornahvammi, en þar
voru þau veðurteppt á leiðinni
norður í bókasafn lestrarfélags
kvenna í Ytri-Torfustaðahreppi. Nú
er það komið á daginn, að á með-
an hjúin sátu hríðarföst í Forna-
hvammi, hefur sú merka bók
Hundsskinna horfið með yfirskil-
vitlegum hætti úr áður nefndu
bókasafni, svo að nú er úr vöndu
að ráða. Auðvitað væri æskilegast,
að þau Jón og Gunna hættu þessu
flandri og kæmu heim með Akur-
eyrarrútunni, en það er því miður
ekki hægt þáttarins vegna. Við
verðum því að reyna að ná síma-
sambandi við hjúin í Fornahvammi
og senda þeim nýja tilvísun. (1
Fornahvammi: Jón talar x síma.
Halló, já, ha, jú, það er hann.
Stolið? Hverju? Ha? Andskoti
heyrist illa til þín. Nýja tilvísun;
já, láttu hana koma. (Við Gunnu:
Það er ný tilvísun, vertu tilbúin
að skrifa hana niður). Undir
stefnuskrá Þjóðvarnarflokksins í
efstu skúffu til hægri í skrifborð-
inu, sem stendur í útnorður horn-
inu á skrifstofu bæjarfulltrúa
flokksins í fegurstu höfuðborg
heimsins. — Náðirðu þessu, Gunna.
Jæja; halló, jú það er meðtekið,
já blessaður).
Jón: Þetta var nú verra. Hef-
urðu nokkra hugmynd um, hvar
við eigum að leita skræðunnar?
Gunna: Nei, en hitt veit ég, að
Þjóðvarnarflokkurinn á enga
stefnuskrá og engan bæjarfulltrúa.
Stefnuskráin hefur aldrei verið til,
og fulltrúinn féll.
Jón: Nú, þá er þetta bara blöff.
Og ég sem var farinn að hlakka
þessi ósköp til að grúska í skúffu-
skrattanum. (Kveður):
,,Fara um kroppinn krampaflog
kátleg, þér að segja.
Fulltrúarnir fallnir, og
flokkurinn að deyja.
„Æi já og jæja þá,
ég kaus Gróu mína.
Fúslega get ég fallizt á,
að fjandinn þekki sína“.
Stjórnandi þáttarins: Fyrsta til-
4
Vera má, að öll ,,ideologia“
sé það sem næst kemst því, er
'orðum var kaliað trú. Mig hryll-
,ir við þessu orði, enda þótt ég
purfi stundum að nota það.
þarna er kominn hinn ágæti
kokteill Hrævaki (Corpse Reviver),
sem ég hafði einusinni lesið um í
erlendri kokteilabók.
— Þetta eru leifar af því, sem
við Eysteinn gáfum sérfræðingun-
um áður en við rákum þá úr landi,
sagði Hermann.
— Mig furðar mest á því, að
þeir skyldu fara frá leifum, sagði
ég og strauk vömbina.