Spegillinn - 01.02.1958, Qupperneq 17

Spegillinn - 01.02.1958, Qupperneq 17
SPEGILLINN 41 sínu, sívakandi yfir andlegum og líkamlegum þörfum gestanna. — Það verður gaman í Oslo á næsta hausti, sagði einn gestanna við annan. — Ég get víst ekki ann- að en farið til þess að hlusta á músikina okkar, sem áreiðanlega verður einna athyglisverðust þar, ef við þýðum dómana á heppilegt mál. — Þú heldur það. En hefurðu frétt hvort búið er að finna sálina í konsertinum hans Nordals? — Hvað eigum við að gera með sál í listaverki? Og hvað er eigin- lega sál á slíkum stað? Þó kann eitthvað svoleiðis að vera til þó að hann Björn heyri ekki í henni. Þó getur varla verið um slíkt að ræða í þessum abstraktionum eftir hann Magnús. Þær langar mig til að heyra, þar sem við erum allra þjóða frumlegastir í öllu abströktu. Þarna er okkar styrkleiki og menn- ingarhlutverk. — Er yður eitthvað i nöp við það sem kallað er sál ? Það var Díalín sem spurði. — Onei. Ekki ef hún er á rétt- um stað. Ég er hrifinn af abstrakt, ég meina frískri sál í fögrum líkama, eins og spakmælið segir. Ég finn þetta aldrei betur en í návist yðar, ungfrú Díalín. Mér fór að verða ónotalegt í sál- inni. Gat mannkertið ekki haldið áfram að spyrja og spjalla um þessa abströktu tónlist sem hann hafði þó að sjálfsögðu ekkert vit á. Fólkið var nú farið að draga sig í smáhópa og hafði hver hópur sín menningarlegu viðfangsefni. En þegar Hallbjörg kom inn og Lajka á eftir henni, dragandi stóran hjólabakka með fjölda hanastéla, þá sáu allir þar eitt sameiginlegt viðfangsefni. Það var augljóst af hýrleikanum, sem færðist yfir hóp- inn. — Gerið þið svo vel, sagði Hall- björg glaðlega. — Ættum við ekki að reyna að komast upp í 140 milljónir á þessu ári. Þá ætti þó að vera einni milljón meira en á síðasta ári til menningarlegra framkvæmda. Svona er frúin alltaf víðsýn. Því var ekki að neita að nokkuð lifnaði yfir stemningunni og gerð- ist margt merkilegt, sem einum manni var um megn að fylgjast með. Þarna var lítil og drífandi kona er sneri sér að ungum og skeggjuðum manni. — Frú Hallbjörg segir að þér ætlið að opna sýningu innan stundar og séuð mjög interessant listamaður. — Það er nú meiningin, sagði sá skeggjaði. — Já einmitt það. En eruð þér einn af okkur? Ef svo er ekki þá getið þér ekki orðið séní, enda þótt þér leitið inn á mismunandi braut- ir í listinni. Reyndar er ekki nema ein braut til í þeim efnum, okkar braut, en við erum samt þó nokk- uð frjálslynd gagnvart okkar mönnum. — Vitanlega þætti mér ósköp vænt um að mæta frjálslyndi, eða þó ekki væri nema samúð og skiln- ingi, en hvernig ég á að snúa mér í því veit ég eiginlega ekki. — Ég held að ég verði að tala við minn herra, sem skrifar í Há- degisblaðið, eins og þér ættuð að vita, sagði konan. — Ef hann vill ekki hjálpa yður þá er allt erfiðið til einskis. I þessum svifum kallaði Hall- björg til mín og þegar hún kallar er ekki nema um eitt að velja. Er- indið var eiginlega að fiska eftir því, hvernig ég myndi skrifa um þetta fyrsta mánudagskvöld henn- ar, því svo eru áhrif okkar blaða- mannanna mikil, að jafnvel áhrifa- mestu persónur eru okkur háðar með framgang mála. Ég sagði henni eitthvað um reynslu mína, en kvað allt myndi gefa góða ra\m, ef heppnin væri með. — Við verðum að stefna að meiri samræmingu í hverri grein, sagði hún. — Það dugar ekki að einn geri þetta og annar hitt. Við get- um haft forystuna þar sem við er- um samtaka, það höfum við þegar sýnt. Þess vegna er ekki hægt að láta þá trufla, sem vilja eitthvað annað en hinir, sem hafa tekið for- ystuna. Ég var alveg á sama máli, en fór lýsir sér oft með þeim óhstræna hætti, að méi fmnst hálsmáhð á skyrtunm minm þrengia að mei^ Cfi.J- •' MbJ) I Einhver annarleg gerjun í undir- I vitundinm, eða kannske bara 1 jæðunum, fær blóðið ttl þess að - reyma til höfuðsins og þrýsta L emhverjar skiptistöðvar

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.