Spegillinn - 01.10.1966, Side 11

Spegillinn - 01.10.1966, Side 11
hvers. Betra er að veifa röngu tré en öngu, hugsaði ég og vatt mér inn til Eykons. Þar gaf nú heldur en ekki á að líta. Allt í kringum ritstjórann var úandi og grúandi af myndum af Foringjanum: Málverk, ljósmyndir af ýmsum stelling- um, bústa, stytta í fullri líkamsstærð. Eykon tók mér þokkalega, því að hann vissi að ég var stjórnarmegin í baráttunni. „Þú ert dálítið hrifinn af onum Bjarna“, varð mér að orði. „Já, það er nú meiri dýrðarmaðurinn!“ sagði Eyvi með hrifningu, sem var greinilega ósvikin. „Það er nú von að þú segir það, sagði ég — er hann ekki búinn að skikka þig sem þingmannsefni á Norð- lendingagreyin?“ „Þó það nú væri“, svaraði ritstjórinn, „ætli þeir eigi á betra völ? Ekki var ann Einar Ingimundar svo merkilegur“. „Nei, enda var ekki smáræði fyrir því haft að koma honum hingað suður og pína hann til að segja af sér þingmanninum. En ertu nú svo viss um, að Norðlingar séu svo ýkja hrifnir af því að vera skikkaðir til að kjósa þig, gerókunnugan Reykjavíkur- ritstjóra?“, spurði ég. „Hvurn skrattann varðar okkur um hvað kjósendur vilja?“ var svarið. „Síðan nýja kjördæmaskip- unin gekk í gildi, ráða kjósendur engu um framboð. Slíkt ákveða miðstjórnirn- ar, enda er það það eina rétta“. „Enda er kannski Bjarna einum til- trúandi að gera það, úr því að þér fell- ur svona vel við hann?“ „Forsætisráðherrann okkar, Bjarni Ben, honoris causa, er mesti himnarík- ismaður! Alll er honum vel gefið, sjálf- rátt og ósjálfrátt. Hann er tvímælalaust mesti hæfileikamaður þjóðarinnar. Hann einn ákveður stefnu ríkisstjórn- arinnar, utanríkismálastefnan er t.d. hans verk eingöngu“. „En hann er nú ekki einn í stjórn- inni“, vogaði ég mér að segja. „O, sama sem. Hann lofar Jóhanni að undirrita ýmsa vafasama milliríkja- brasksamninga, eins og álið og kísilgúr- inn Hann lofar Manga að sýsla við Allt í kringum ritstjórann var úandi og grúandi af myndum af Foringjanum. fjármál og skattheimtu, af því að þau eru óvinsælust, og þegar Mangi verður búinn að gera sig eins óvinsælan og Gunnar, verður hann bara dubbaður upp sem sendiherra í Timbúktú eða Senegambíu. Og Ingólfur fær að dunda við smjörfjallið og rövlið í bændunum. En auðvitað er það Foringinn, sem á- kveður stefnuna í öllum þessum mál- um“. „En þú gleymir krataráðherrunum, minn elskanlegi“, skaut ég inn í. „Þvuh!“ sagði ritstjórinn fyrirlitlega. „Ég held okkur megi nú vera sama- hvorum megin á rassi þeir ríða!“ „Er það nú víst?“ sagði ég. „Þykir ykkur ekki skárra að hafa stuðninginn þeirra cn engan?“ „Ajú, kannski, enda kostar hann ekki svo mikið. Og það má brúka hann Gylfa til að standa í þessu randi út um Iönd, þegar Bjarni má ekki vera að því sjálf- ur. Og til að halda ómerkileg kokkteil- boð og ráða einhverjar kennarablækur út um sveitir. Hina tala ég ekki um“. Eftir vinsamlegar viðræður kvaddi ég Eykon og hugsaði mér til hreyfings að heyra álit kratanna á þessu viðkvæma stórmáli. Eg taldi ekki ómarksins vert að tala við strákana á Alþýðublaðinu, betra væri að snúa sér beint til Gylfa. Ég taldi horfur á því, að hann væri heima, því að Alþbl. hafði skýrt svo frá athöfnum hans daginn áður: Var við vígslu nýs skóla fyrir háskóla, át hádegisverð á Bessastöðum, vegna hing- aðkvámu ambassadors frá Bechuana- landi (í fráveru Emils), opnaði sýningu kl. 2, var síðan í tveimur kokkteilpart- íum hjá útlendingum og einu hjá sjálf- um sér, hélt framsöguræðu hjá Krata- félagi kl. 8,30, og hitti einhvern am- bassador kl. 10. Um háttatíma ráðherr- ans gat blaðið ekki. AXMINSTER .. annaí ekki Spegillinn 11

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.