Spegillinn - 01.10.1966, Blaðsíða 15

Spegillinn - 01.10.1966, Blaðsíða 15
jafnvægi. Leið hinn annar dagur til mið aftanns, og tilkynnti þá yfirbrytinn, að á þrotum væri bæði mungát og mjöður, og hefði hann aldregi vitað svo ó- sleitilega neytt hinna fljótandi vista úr búri sínu, og undraðist stórum. Þykjumst vér skilja full- vel undran brytans, einkum þar sem líklegt er að honum hafi eigi ljós verið sú eina rétta skýr- ing á þambinu, nefnilega sú, að aldrei mnu jafnmargir Landar vorir hafa ferðast út fyrir land- steinana í einum hóp! Er skip- stjóra bárust þessi tíðindi setti hann hljóðan um stund, en sið- an gekk hann i brú og tók stefnu á Gíbraltar. Var og haft samband við útsölurnar bæði á Snorrabraut og Lindargötu þar i landi, og Spánverjinn beðinn að hafa til á bryggjunni, þegar skipið kæmi, sex daga skammt handa fimm hundruð manns, vel mældan. Leið hinn annar dagur hádegis, og er það til marks um vel heppnaða slípun raddband- anna, að þau tóku sem óðast að syngja sjálfkrafa, en vellíðunin á sálinni verður bezt merkt af þvi, að þeir farþegar, er ekki sungu, gátu hlustað á rímnalög Jóns Leifs án þess að komast úr ,_± 1 T~ i n £in Gi n 1 VoJ t| \ V// /\/ 'í/ WHisky Komið til Gíbraltar. Eftirvænting ríkir. Þorstinn óbærilegur. ferðarinnar til kvölds og þraut þá bæði mungát og mjöð með öllu. Þykir þetta einhver hin til- þrifamesta drykkja, sem sögur fara af, síðan Ása-Þór þreytti kappdrykkjuna hjá Útgarða- Loka forðum. Söngvinn S p e g i 11 i n n 15

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.