Spegillinn - 01.10.1966, Blaðsíða 19

Spegillinn - 01.10.1966, Blaðsíða 19
„Að steypa (yfir)stjórn' „Frá Suður-Kóreu berast þær fréttir að þar hafi óvenjulegir atburðir orðið ríkisstjórn lands- ins að falli. Málavextir voru þeir, að til mjög harðra orða- skipta koni á þjóðþingi landsins, sem út af fyrir sig eru engin tíðindi. En þarna var ekki látið sitja við orðin tóm, heldur kom éinn þingmaður á fundinn vopn- aöur fötu sem í var saur og þvag blandað saman. Hann steig í ræðustól og réðist þar heiftar- lega á ríkisstjórnina í orðum, og að endaðri ræðunni þreif hann fötuna • og hellti úr henni yfir forsætisráðherrann .. ..' Hér á landi láta pólitíkusar sér nægja að ausa hvern annan óþverra á myndrænan hátt, í orðum. Von- andi láta menn sér það nægja eftirleiðis og fara ekki að taka upp háttu Suður-Kóreu manna. Þó gæti það svo sem tekið sig nógu vel út, ef Framsóknarmenn kæmu til dæmis einhverntíma á þing fund með sinn margfræga kopp og skvettu úr honum á andstæðinga sína“. (Úr Alþýðublaðinu). Aumingja Freymóður! OSRAM Eftirfarandi rosafrétt birtist i einu dagblaðinu fyrir nokkru: „Um þessar mundir er til sýn- is í glúgga Málarans við Banka- stræti stór mynd eftir Freymóð Jóhannsson af höfninni í Vest- mannaeyjum. Hafa margir staldrað við í Bankastræti til að horfa á myndina, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í rigningunni í fyrradag af ljósm. Mbl. Sv. Þorm. Við slógum á þráðinn til Frey- móðs, og spurðum um tildrög að málun þessarar myndar? Freymóður: „Sparisjóður Vest- mannaeyja hringdi í mig og pantaði málverk frá Vestmanna- eyjum hjá mér, sem ætti að hengjast upp 1 afgreiðslusal hinnar nýju byggingar. Ég fór svo í sumar til Eyja, og kannaði málið, og síðan hef ég unnið að þessari mynd. Myndinni verður komið fyrir á veggnum, sem blasir við fólki, þegar inn er komið, og það er góð birta þarna. Myndin verður til sýnis í Mál- araglugganum til sunnudags- kvölds en fer eftir það fljótlega til Vestmannaeyja". Ja, fyrr má nú vera ofstækið! Oft hefur mönnum ofboðið háttalag málara vorra, en okkur vitanlega hefur þeim aldrei ver- ið hótað hengingu fyrr. — Senni- lega eru stjórnendur Sparisjóðs- ins í Eyjum harla drykkfelldir og afar andstæðir templurum, en Freymóður er, sem kunnugt er, einn stinnasti templari lands- ins. BAUNIR I TÓMATSOSU iAKDAKBTB RLANDADIR ÁVtXTIB r.RÆNAR RAUNiB Heildsölubirgðir: Kristján Ó. Skagfjörð h.f. S p e g i II i n n 19

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.