Spegillinn - 01.03.1967, Blaðsíða 8

Spegillinn - 01.03.1967, Blaðsíða 8
Frönsk transisior-viðtæki með plötuspilara og bótabylgjusviði. Spilara bæði meno og Stereo. LAUGAVEG 83 — SÍMl 16525 „Allt eins og blómstriö eina, inn meö hann Sigurvin. Tökum Steingrím til greina; greiðfœr er „leiöin hin.“ Flokksaga er Ijúft að lúta, þótt leiöi til glötunar. Syngi mín sálarlúta sálma til Framsóknar.“ — Já, niikil er þín fórnarlund og hús- bóndahollusta, sagði ég. — Það er sjálf- sagt engin hæfa fyrir því, sem ég hler- aði hérna á fjörðunum, að þú og Þor- valdur Garðar væruð að sjóða saman sprengilista — með ykkur tveimur í efstu sætunum? En ég sá eftir að hafa spurt að þessu. Skáldið varð ókvæða við, ég hélt að hann ætlaði að fá slag. Hann spratt upp úr sætinu með slíkurn gnv að pass- íusálmahandritið fauk í allar áttir, hann varð ýmist rauður sem blóð eða bleikur sem bast. — Hver spinnur þennan djöfuls róg- burð upp?“ öskraði hann. — Ef ég kemst að því, þá skal ég skora hann á hólm. Lista með íhaldsmanni, ekki nema það þó! Nei, fyrr mundi ég ger- ast ofdrykkjumaður og skrifa níð um ungmennafélögin en að ég fari að leggja lag mitt við íhaldshyski. . . Eg forðaði mér út og hélt áfram ferð minni. Matthías ísfirðingakappi. A Isafirði virtist allt með kyrrum kjörum enda töldu Isfirðingar tvo efstu listamennina sína menn sérstaklega. Ég snaraðist umsvifalaust á fund Matthíasar. Hann var hinn sigurstrang- legasti, en dálítið stuttur í spuna. Hann þekkti mig ekki. Þegar ég sagðist ætla að fræðast af honum urn pólitík, varð hann hvumpinn og spurði umsvifalaust hvort ég væri Þorvaldar Garðars mað- ur. Þegar ég neitaði því, sagði hann: — Það er gott — ég kæri mig ckk- ert um, að svoleiðis legátar séu að snuðra hér í rnínu eigin goðorði. Fram- bjóðendur, sem hingað eru sendir sunn- an úr Reykjavík, geta étið það senr úti frýs. — En hver sendi þig eiginlega? spurði hann og varð aftur tortrygginn á svip. En þegar ég sagðist vera sér- fræðingur Spegilsins þiðnaði hann allur upp. -—- Nú, svo að þú ert frá Speglinum. Það er víst betra að hafa ykkur með sér en móti. Spyr þú, ég svara. — Ertu ánægður með listann ykkar, Matthías? — Tjah, ánægður og ánægður ekki. Efstu sætunum hefði kannski mátt koma haganlegar fyrir. — Þú átt við, að þú hefðir átt að hreppa efsta sætið? — Auðvitað. Ég ræð hér öllu í höf- JIY LIFTRYGGING <8? STfiHYGGIIG ALMENNARl TRYGGINGARf PistKðsstraU 9. simi 17700 uðstað Vestfjarða og ég er búsettur hér . . . Það er meiningarlaust að vera að trana hér fram legáta að sunnan, enda þótt hann hafi alizt upp inni í rassgati, inni í Djúpi, meina ég, og þar að auki langt úti í sjó. Sveitirnar, sem hann átti aðalfylgi sitt hér áður fyn’, eru líka komnar í eyði. En Sigurður verður nú bráðum settur á elliheimilið þ.e.a.s. gerður sendiherra í einhverju villimannalandi. Og þá skal enginn verða settur mér ofar. — En var þér ekki sárt um að fórna Þorvaldi Garðari fyrir þitt þingsæti? — Þvuh! Mér er sama hvoru megin á rassi hann ríður. — Svona er þá pólitíska ástandið fyrir vestan, og sérfræðingurinn lauk skýrslu sinni. — Geturðu ekki lánað mér aura fyrir kalda borðinu á Borg- inni og tveim ösnum? GRÆNMETl HAllNliP i TOMATSOSU IAUOAHHI tf Rl ANnAllltf AVI K Htf r.HANAB RAIINIB Heildsölubirgðir: Kristján Ó. Skagfjörð Heildsölubirgðir: Kristján Ö. Skagfjörð 8 S p e g i 11 i n n

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.