Spegillinn - 01.03.1967, Blaðsíða 9

Spegillinn - 01.03.1967, Blaðsíða 9
Nýr bænda- höfðingi Norðan- lands Tíminn er eitthvað að skopast að því, að Bjarni Ben vilji nú gera bændahöfðingja úr Eyjólfi Konráð, undirmanni sínum og ritstjóra, sem mjög hefur borið lof og hróður á húsbónda sinn og herra, að sið fornra hirð skálda. Oss finnst óþarfi að gera grin að þessu. Eykon er knár þótt hann sé smár, og varla hefur Hannibal verið beysnari við bú- skapinn en Eykon, þegar hann hóf búhokrið í Selárdal, því forna höfuðbóli. Er sagt að Eykon verji nú öllum tómstund- um sínum til að kynna sér bú- skap, til þess að geta talað kunn- áttusamlega um slíka hluti við bændur nyrðra. Hann lærir að þukla rollur, fræðast um fengi- tima kinda og gangmál kúa o. s.frv. Þá virðist sumt, en ekki allt, í fari Eykons minna á lýsing Sighvatar, er hann bregður á glens við Sturlu son sinn: „Þá þarftu, frændi, smala- mann at ráða í fyrra lagi. Hann skyldi vera lítill og léttur á baki, kvensamur, ok liggja löng- um á kvíagarði“. En livað sem líður, þarf ekki að efa, að Eykon verður ötull við að smala sauðum í kviar Bjarna liúsbónda síns. ÞAÐ ER ENGINN VANDI AÐ VELJA PÓLAR FULLNÆGIR KRÖFUM YÐAR. Ef þú ekur bíl, og vilt vera stundvís, og á það einhver stólar, þá skaltu kaupa PÓLAR. S p e g i 11 i n n 9

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.