Spegillinn - 01.03.1967, Blaðsíða 24
Sigurblandan heitir
Þannig hljóðar fyrirsögn í
Þjóðviljanum, en nýlega er af-
staðin langmerkasta keppni árs-
ins, Kokkteilskeppni Barþjóna-
klúbbsins. Keppendur voru 18
og keppni afar hörð, en úrslit
urðu þau að sigurvegari varð
vinur vor Sigurður í Glaumbæ,
með kokkteilnum „Rómó“ —
(hunangsgóður drykkur), annar
varð góðkunningi vor Geir
24 S p e g i I I i n n
Birgir í Átthagasalnum með
blöndunni „Maó“ (á þessum
kokkteil hafa Magnús Kjartans-
son og aðrir Kínavinir mestu
skömm). þriðji varð einkavinur
vor Símon, með kokkteilinn
„Stranger".
Spegillinn kom því þannig
fyrir, að hann fékk fulltrúa í
dómara- og smakkaranefndina
og sendi ritara af ritstjórnar-
skrifstofunni, mestu stillingar-
„Rómó'
stúlku. En henni þóttu kokkteil-
arnir svo Ijúffengir, að hún
stakk út úr hverju íláti, sem að
henni var rétt. Þegar hún hafði
sungið nokkur bítlalög, öllum
viðstöddum til hrellingar, logn-
aðist hún út af og var borin út
í fjórum skautum, og hefur ekki
runnið af henni síðan. — En
kokkteilarnir eru meistaraverk
og munu bera hróður Islands
víða.