Spegillinn - 01.03.1967, Síða 22

Spegillinn - 01.03.1967, Síða 22
Páll Líndal talaði i fréttaauka hljóðvarpsins annan páskadag og sagði frá heimsókn sinni tii Bretlands. Lét hann vel af mót- tökunum, eins og menn gera nú raunar alltaf í slíkum til- fellum. Kom hann viða við og sagði frá ýmsum athyglisverð- um siðum og venjum aðals og lægri stétta þar í Iandi. þótti oss sérlega athyglisvert að heyra, að á einhverjum umræðu — eða rabbfundi, sem hann var staddur á, hafði forsætisráð- herrann bífurnar uppi á borði allan fundartímann. Datt oss í hug, að það væri aldeilis mun- ur, ef okkar forsætisráðherra reyndi að temja sér svo frjáls- mannlega siði — og óþvingaðar steliingar. — Sæl Finnbjörg. Við Skugga- Sveinn ætlum að fella Bensa Gröndal, sagði Jónas kotroskinn. — Bjartsýnn ertu, Joykir mér. Held- urðu ekki, að þessi heimilisóánægja inn- an Alþýðubandalagsins verði þér til traf- ala? spurði ég. — Uss, góða, kommarnir og her- námsandstæðingarnir kjósa mig og hannibalistarnir kjósa Skugga-Svein, sagði Jónas í léttu máli. — Já, þú segir nokkuð Jónas minn. Ertu annars nokkuð að skrifa núna? sagði ég. — Hu, nei, ég hef ckki dottið oná neina kerlingarálft eða karlhlunk, sem nokkurt púður er í að tala við svo lengi að hægt sé að gera bók úr samtalinit, sagði Jónas og hló við. (Því miður var nú Þ.Þ.Þ. rútan alveg á förum úr Reyk- holti svo ég varð að kveðja Jónas í skyndi og gleymdi auðvitað að óska hon- um góðs gengis í baráttunni við Grön- dal). Finnbjörg á fartinni. 22 S p e g i 11 i n n

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.