Spegillinn - 01.03.1967, Side 26

Spegillinn - 01.03.1967, Side 26
PROLOGUS í þessu vora opna ljóðbréfi til Jóns Hlustanda út af hans opna Stjórabréfi, er oss það fremst að hugan að sanna honum innræti vort og réttan þenki- máta item gullvægar niðurstöður hverj- ar byggjast á raunsæi vóru og skynsam- ligum grundunum og þótt vér í allan máta meta kunnum og skiljum hans ígrundan hvað að snýr svínajarlinum og slettirekukvennsunni, dettur oss ekki til hugar að vór ástkæri Stjóri beri þann ófrómleika innvortis í sér að hann kjósi að stela ánægjunni frá sjálfum sér og yfirfæra sem eina djöfulsins plagan á sinn einkanlegan einkaritara en svo mundi hann gera ef hann neitar sjálf- um sér um þá ánægjunnar uppsprettu- vökvan er innifelst í því að mega sjálfur útreikna og á pappír festa tölur og upp- talningu og nýtast við þá Hljóðvarps- gleði eina að mega ncfna tölurnar í Hljóðvarpi. punktur. Þótt sekúndu og atkvæðatalning hafi ekki til þessa fram- borin verið teljum vér þar um nærtæka skýringu fáanlega fyrir lítinn penning sumsé þá að eiga jafnan eitthvað í sarp- inum er gjörla má nýta til næringar eð- ur uppfyllingar ef sultur sverfur að í talningarrollunni. Ellegar þá hin hugg- unin, að vér þurfum ekki lengur að bíða en til næsta þrítugastaogfyrsta desember klukkan 23:30 en þá mun uppfest verða ein stór og forláta mikil tafla í Sjón- varpssal hvar Hann Sjálfur mun á reikna fyrir allra sjónum sekúndumæl- ingar allar og orða- og atkvæðatalning- ar. Skulu vér nú allir eður öll bíða þeirrar stundar meður sæmilegri eftir- væntingu og tilhlakkan svo sem þekk og artug smábörn bíða jólagjafanna á afskektum sveitabæ frammi í afdala- skoti hér á Islandi. Væntum vér nú að samanlögðu forspjalli og ljóðbréfi að vór vinur Jón megi í allan máta skilja hvað fyrir oss vakir og að honum megi framvegis takast og þóknast að glápa á sinn ástkæra án túlkunnar P. G. Wodehouse og jafnframt benda honum á í allri vinsemd að lofa þeim ylhýra að hafa í friði sinn einkaritara í fullu trausti þess að sá ástkæri hafi aldri sýnt henni það traust að fela henni útreikn- ing á svo mikilsverðum tölum sem um- getur í títtnefndu opnu bréfi. Opið Ijóðabréf til Jóns Hlustanda: (Vitneskju-grunsemd Wodehouse gaf, sá veraldar þenkimann, um Hljóð-Sjónvarpsstjórans armóð af hvað einkaritarinn vann, öll mun sú þekking í ysta haf ofaní fara á bólakaf, —— soddan ég sanna kann.) Einn herlega þenkjandi heiðursmann hyllir upp Vilhjálm Þorn og virðir að hæfi víst með sann viskunnar talnakorn, þann fyrir pistil þakka vann þinn einn, er kynnir sig lesarann við Spegilsins spekihorn. Allt er hér sagt fyrir utan spé um er vér ræðum Hann, stundir og mínútur mœlande, í málvarpi vísdóm kann, sekúndugögnum gleymande, gagna þau ei í Hljóðvarpe telur vor talnamann. Gott mun oss nœsta gamlársdag að gleypa vort talnafé, vér sjáum og heyrum betri brag í blessuðu Sjónvarpe þars sekúndna hœkkar sigurlag, vort sannlega krítartöflufag um talnanna töfravé. Þá mun viskunnar Villi Þorn verslega sanna með krít sekúndumálsins sirkilhorn og svimandi talnarít. minnkandi eining ofaní korn hvar enginn dándismann veitir sporn, og smœkkandi smámunaskít. Atkvæðamanna atkvœði öll munu tölum skráð, en fávísra manna fratræði forsmánun skulu háð, fljótræði allt á flatsvæði, framhleypni, spé og gatæði, lúskrist í lengd og bráð. „Hlustandi Jón“ það heyra má að hans skulu bænarorð rœtast, og má hann þá sjálfur sjá sekúntna mektarborð hlaðið tölum í skakk og ská með skýringarþornum framaná að ofan og aftur í sporð. Dalakúturinn. Heildsölubirgðir: Kristjón Ó. Skagfjörð UG-rauðkál fœst í hverri matvöruverzlun Verðið er stórlækkað Heildsölubirgbir: KR. Ó. SKAGFJÖRÐ 26 S p e g i 11 i n n

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.