Spegillinn - 01.12.1971, Blaðsíða 3
LeiÓart
Jœja, þá hefur Einar okkar Agústsson aldeilis verið
athafnasamur. Afhent kommum öryggismál þjóðar-
arinnar segir Moggi. Ekkert minna. Svona getur hún
hefnt sín sekúndan mikla, er aðeins örsjaldan stígur
niður í líf okkar jarðneskra manna, á þeim, sem ekki
er hlutverki sínu vaxinn og kann ekki að nota hana.
Þarna stóð Kína-Mangi sig vel eins og fyrri daginn.
Svei mér þá ef við hérna á Speglinum förum ekki að
gera Kína-Manga að okkar leiðarljósi. Svo heimtar
Moggi auðvitað, að Einar segi af sér og skrifi undir
lausnarbeiðni. Honum getur þá orðið álíka innanbrjósts
og Spíonza var, þegar samkundustjórarnir fœrðu hon
um bannfœringarskjalið árið 1656, en þá sagði hann:
Menn neyða mig nú til þess, er ég lét undir höfuð leggj-
ast til að vera ekki valdur að opinberu hneyksli“. Hvað
haldiði að Óli Jó segði, ef Einar fœri að brydda á ein-
hverju slíku. Þá héldi Oli, að Jón Skaftason hefði náð
tökum á Einari, eða þá Björn ríki á Löngumýri. Skyldi
Björn ríki hafa skrifað undir stjórnarsáttmálann ?
Varla hefur Jón Skaftason skrifað undir hann, nema
þá kannski með fyrirvara. Já Ijótt er ástandið í örygg-
ismálunum. Hvað skyldi Bali segja við öllu þessu.
Týndi ráðherrann Hannibal. Ætli hann hafi bara ekki
eftir orð frœgs manns, sem sagði: ,,Það sem þú gjörir,
það gjör þú skjótt“, og forði sér heim í Selárdal. Er
það furða, þótt við hérna vesœlir Ugluspeglar séum
hálfhvumsa yfir ástandinu. Enda varð okkur svo um,
þegar skipti um samstarfsmenn okkar í Stjórnarráð-
inu, að við erum varla orðnir rólfœrir ennþá. Það œtti
þó að standa til bóta, þegar myrkrið fer að skýla okkur
í ferðum okkar eftir línunni. Ekki norður, heldur að
austan.
SpegillinTi
SAMVIZKA ÞJÓÐARINIMAR
Spegillinn kemur út 10 sinnum á
árinu 1971. Áskriftargjaldið, 420
krónur, greiðist í febrúar. I lausa-
sölu kostar blaðið 60 krónur með
söluskatti.
RITSTJÓRi: Jón Hjartarson.
Sími 20865 kl. 17-19, þriðjudaga
og fimmtudaga.
AÐALTEIKNARI: Ragnar Lár.
Sími 83065. pósthólf 594,
Filmusett og prentað í Lithoprenti.
5 Forstjóri öryggisþjónustunnar
7 Sorgaróður borgfirzka
bruggarans
8 Strengbrúðuballettinn
10 Doktorsritgerðarafréttarinn
11 Dagur í lífi heiðursmanns
16 Leikfang mánaðarins
18 Allt fyrir neytendur
20 Um hunda
21 Sjónvarp Spegilsins
24 Dýrlegt upphaf íslenzkrar
rafvæðingar
26 Úr gömlum Spegli
27 Óráð Antóníós — Úr skjalaskáp
Kortérs læknis
28 Ljóð — Síðbúin handritarolla,
Nýju flokkarnir
29 Skýrsla yfir konur sæddar
30 Yfirlýsingar