Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 7
Ldkfimi
Auðvitað á maður bara að
drífa sig í leikfimi; ekkert
mál, eða svo sagði Valdimar
Örnólfsson fimleikastjóri Há-
skólans. Menn skildu bara
kíkja í töfluna á bls. 442 —
443 í kcnnsluskránni og velja
það sem hentar þeim.
Síðan mæta menn út í
íþróttahús á réttum tíma með
buxur, bol, sokka og skó. Þar
skráir kennarinn þá og fjörið
byrjar. Og athugið það stúd-
entar góðir að öll kennsla er
náttúrulega ókeypis, því
þetta er jú Háskóli íslands.
Valdimar vildi vekja sér-
staka athygli á hressingar-
leikfiminni sem er alla fimm-
tudaga kl. 18.00. Sagði hann
upplagt fyrir þá sem lengi
hafa setið kyrrir að byrja þar.
Hún er fyrir alla og þegar
menn eru búnir að ná úr sér
mesta stirðleikanum þá geta
þeir farið yfir í „erfiðari"
tímana.
Hann vildi einnig koma
þeirri ábendingu á framfæri
að jass-leikfimi fyrir konur
væri ekki kl. 16.00 á þri. og
fim. cins ogstendur í kennslu-
skránni, heldur kl. 17.00
sömu daga. Og þrekæfingar
fyrir konur og kalla (sem sagt
alla) væru alla daga kl. 16.00.
Markmið þeirra æfinga er að
cfla þrek manna - það er
þeirra sem eru ckki nógu
þreknir enn.
Nú getur enginn lengur af-
sakað sig; allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Þar sem ég er búinn að
skrifa svona hvetjandi frétt
verð ég víst að drífa mig. Þaö
cr engin afsökun!
STÚDENTABLAÐIÐ
þakkar eftirtöldum
aöilum stuöninginn:
Bílaborg hf., Smiðshöfða 23,
Reykjavík
Egill Skallagrímsson hf.
Skeljungur hf., Suðurlandsbraut
4, Reykjavík
Eignamiðlunin, annast hvers-
konar fasteignaviðskipti s: 27711
Bókaútgáfa Menningarsjóðs,
Skálholtsstíg 7, Reykjavík
DAGUR, Strandgötu 31, Akur-
eyri, sími 96-24222.
SAMVINNUBANKINN
EIMSKIP *
STRANDFLUTNINGAR
AFGREIDSLA KLETTSSKÁLA
SÍMI (91)686464
STÚDENTABLAÐIÐ
7