Stúdentablaðið - 01.10.1985, Síða 10
Soffía, hver er nú það. Jú,
það er íturvaxin stúlka í Há-
skólanuin. Með eindæmum
falleg þrátt fyrir ungan aldur.
Er raunar bara eins árs. En
hvað um það.
Líkami Soffíu kom saman
í Skólabæ að kvöldi föstu-
dagsins 4. októbcr þar sem
limir Soffíu framkvæmdu
„venjuleg aðalfundarstörf’.
Limir Soffíu eru allir þeir sem
stunda nám í heimspeki við
Háskóla Islands. Skýrsla
stjórnar vakti mikinn fögnuð
seni og reikningarnir. Státaði
stjórnin sig með réttu af verk-
um miklum og fjárhag
góðum. Það sem helst kann
að vera fréttnæmt af því er að
síðasta vor gaf Soffía út ritling
einn sem heitir „Rýnt í rúnir
Andans“ og inniheldur fyrir-
lestrarglósur nemenda úr
framhaldskúrs um Hegel
kallinn. Var það þarft verk og
gott og voru menn sammála
um að halda áfram á þeirri
braut útgáfustarfsemi. Það
sem er enn merkilegra er að
útgáfan stóð undir sér og
rúmlega það. Hún skilaði
1.000 kr. hagnaði. Og geri
aðrir betur.
A þessum fundi kusu menn
yfir sig nýja stjórn en í henni
sitja nú þau Guðrún Hólm-
geirsdóttir, Þorbergur Þórs-
son og Eyjólfur Kristjánsson.
Vonandi tekst henni að græða
hinn unga líkama Soffíu enn
meira Iífi í vetur.
GARÐSBUAR
Nýir leigusamningar
Baldur Garóarsson frœðir garðsbúa um sögu Garðanna.
í kjölfar deilna F.S. og
íbúa hjónagarða síðasta
sumar lét stjórn F.S. útbúa
nýja leigusamninga fyrir
alla ieigjendur; á Gamla og
Nýja garði og Hjónagörð-
um.
Til að kynna þessa samn-
inga fyrir leigjendunum
voru haldnir fundir með
þeim þann 3. október. Stúd-
entablaðið var á báðum
fundunum og fylgdist með.
Á fundinum í Garðsbúð
voru 60 manns, frá bæði Nýja
og Gamla garði. Frá F.S.
voru mætt j?au Baldur Garð-
arsson og Ástrún Ágústsdótt-
ir. Baldur rakti fyrst fyrir
mönnum sögu garðanna —
hvernig hefði gegnið að reka
þá í gegnum árin. Það hefur
að sögn Baldurs gengið illa
þar til nú síðustu fimm árin
að heldur er tekið að rætast
úr. Mikið hefur verið unnið í
viðhaldi, en þó vantar enn
nokkuð upp á að því sé lokið
Þá skýrði Baldur hinn nýja
leigusamning fyrir Garðsbú-
um og lét þess jafnframt getið
að nú yrði að nást eitthvert
samkomulag um leigusamn-
ing. I fyrra náðist ekkert sam-
komulag og voru því Garðs-
búar sammngslausir allan
veturinn.
Þessi samningur sem F.S.
leggur til að samþykktur verði
er sá sami og Félagsmálaráðu-
neytið hefur sent frá sér. Sem
sagt hinn staðlaði húsaleigu-
samningur. Með nokkurri
viðbót þó sem heitir sér-
ákvæði og er uppá einar
fimm blaðsíður.
Það var augljóst að tvennt
var það í þessum samningi
sem Garðsbúar áttu hvað erf-
iðast með að sætta sig við.
Annað var það ákvæði að
10
STÚDENTABLAÐIÐ