Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 14

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 14
UH HÁTÍÐARNEFND 1. DES t Heitir og kaldir réttir í hádegi alla virka daga. Ódýrt en mjög gott íæöi. Ljúffengir heitir grænmetisréttir alla fimmtudaga. Opiðfrá kl. 11:40 til 12:20. Mötuneyti St.údenta, Félagsstofnun. Það mun vera orðin löng hefð fyrir því að íslenskir stúdentar fagni fullveldisdeg- inuml.des. 1918 með hátíða- höldum. Því er þó ekki að neita að vegur þessara hátíða- halda hefur mjög minnkað hin síðari ár. Nú er svo komið að hátíðahöldin sækja ekki nema 200-300 manns og ekki verður sagt að þau teljist til merkilegri atburða í bæjarlíf- inu, líkt og áður var. Um ástæður þessa er ekki gott að segja. Margir vilja kenna því um, að þessir fund- ir þykja líkjast meira ofstækis- fullum trúarsamkomum póli- tíkusa en hátíðarhöldum sem höfða til hins almenna námsmanns. Vel má vera að svo sé, en þó hlýtur al- mennt áhugaleysi stúdenta fyrirfullveldisdeginum I. des. að vega þar þyngst, því að engin regla er til um jsað að einungis Vaka og vinstri menn megi bjóða fram lista til hátíðarnefndar. Þvert á móti er öllum stúdentum frjálst að setja saman 7 manna lista og bjóða fram. — Það er því stúdentum sjálfum að kenna, ef þeim líkar ekki tilhögun hátíðarhaldanna 1. des. Samt heyrast menn gagn- rýna fyrirkomulagið á hverju ári án þess að koma með tillögur til úrbóta. Vegna þessa áhugaleysis hefur verið skipuð nefnd til að kanna hugsanlegar hreyt- ingar á skipan hátíðarnefnd- ar. Nefndin hefur komið sam- an nokkrum sinnum og rætt leiðir til úrbóta. Ljóst er orðið að ekki vinnst tími til að breyta reglugerð um 1. des. kosningar í ár, en unnið er að hugmyndum fyrir 1986. Almennt eru menn sam- mála um að umsjón hátíða- haldanna sé ekki í verkahring Stúdentaráðs sjálfs. Ef menn vilja á annað borð viðhalda þessari gölmlu venju eru nokkrar leiðir færar. T.d. mætti hugsa sér að deildarfélögin tækju mikið að sér. Þau skiptu sér þá í ca. 4 flokka og skiptust á um fram- kvæmdina. Þetta gæti reynst möguleiki á tekjuöflun fyrir deildarfélögin, þar sem oftast mun vera hagnaður af I. des. balli. Með þessari aðferð væru 1. des. kosningar óþarf- ar. Önnur tillaga er sú, að áfram yrði kosið listakosn- ingu, en breytt yrði reglunum um úthlutun í nefndina, þannig að sjónarmið minni- hlutans fengju að koma fram. Margir fleiri kostir eru til og viljum við nefndarmenn hvetja þá sem áhuga hafa á framgangi þessa máls, til að hafa samband og segja skoð- un sína og helst koma með eigin tillögur. Með von um gott samstarf. Karl Andersen AUSTURSTRÆTI 8 101 REYKJAVÍK SÍMI 25120 UÓSRITUN RITVINNSLA BÓKHALD VÉLRITUN Með vorj um ánægúuLeg viðskipti ur Jonl Eir Þorgrírrii i i rsson 14 STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.