Stúdentablaðið - 01.10.1985, Síða 18
• •
BORN OG
A
V
S
U
A
D
G
I
T
N
RMÁLIN
HVERNIG GANGA HLUTIRI'IIR SIG?
Dagvistunarmál Reykja-
víkurborgar hafa mikið verið
til umræðu undanfarnar vikur
og mánuði. Flestir eru sam-
mála um að ástandið sé óvið-
unandi, a.m.k. að allar fram-
tíðarlausnir á dagvistunar-
málunum skorti. Menntað
starfsfólk vantar og síðast en
ekki síst þá lengist stöðugt
biðin eftir plássi.
Stúdentablaðið fór á stúf-
ana og kannaði lítillega
hvernig þessi mál horfðu við
frá sjónarhóli stúdenta. Hver
er staða þeirra í þessu öllu
saman?
Þá er fyrst til að taka að
Félagsstofnun stúdenta á tvö
barnaheimili (eða er með þau
á leigu til 99 ára): Valhöll og
Efrihlíð. Félagsstofnun sér
um viðhald þeirra en Reykja-
víkurborg alfarið um allan
daglegan rekstur. Þ.m.t. eru
úthlutanir á dagheimilispláss-
um.
Á þessum tveim barna-
heimilum er pláss fyrir 80
börn en það er um 8% af
öllum barnaheimilisplássum í
borginni. Hins vegar er í gildi
ákveðin viðmiðunarregla sem
á rætur sínar að rekja til
ársins 1978 er Reykjavíkur-
borg yfirtók rekstur heimil-
anna og kveður á um að
háskólastúdentar skuli hafa
um 16% af öllum dagheimilis-
plássum sem í boði eru. En
það er bara viðmiðunarregla.
Þann 31.12.1984 áttu stúd-
entar við Háskólann 161 barn
á barnaheimilum borgarinnar
eða 14,5% af þeim börnum
sem þar eru. Hefur sú tala
verið nokkuð breytileg frá ári
til árs, stundum farið niður
fyrir 13%. Þess ber að geta að
þessar tölur eiga ekki við um
þá stúdenta sem eru einstæðir
foreldrar.
En hversu mikil er þörfin?
Hér erum við kannski komin
að því alvarlegasta í þessu
öllu saman. Um síðustu ára-
mót biðu stúdentar eftir 150
barnaheimilisplassum eða
nærfellt eins mörgum og þeir
höfðu fyrir!! Enda sýnir það
sig þegar skoðuð er ársskýrsla
um dagvisturnarmál í
Reykjavík að meðalbiðtíini
eftir dagheimilisplássum er
lengstur hjá háskólastúdent-
um! Á síðasta ári var hann
12.86 mánuðir, árið þar áður
var hann 11,08 mánuðir.
Árið 1981 var þessi meðal-
biðtími réttir 9 mánuðir svo
augljóst er að ástandið fer
stöðugt versnandi. Hluti af
skýringunni kann að vera sá
að æ fleira barnafólk. leggi út
í háskólanám en það hlýtur
að teljast eðlilegt miðað við
þá fjölgun stúdenta við Há-
skólann sem átt hefur sér stað
á síðustu árum.
Hvernig stúdentar hafa
mætt þessu er eðlilega ekki
vitað. Stór hluti þessa hóps
bjargast eflaust á dagmæðr-
um svokölluðum, aðrir á vel-
vild ættingjanna. En ljóst er
að gera þarf átak í þessum
efnum. Slíkthlýturaðhaldast
í hendur við heildarátak í
dagvistunarmálum borgar-
innar. Því væri vert að stúd-
entar og hagsmunasamtök
þeirra gæfu þessu nánari
gaum í framtíðinni.
Hér fljóta með nokkrar
upplýsingar til þeirra sem enn
eru ekki búnir að sækja um
og vita þar af leiðandi lítið
um hvernig þau mál öll ganga
fyrir sig.
Dagvistun barna hefur að-
setur á Fornhaga 8. Þangað
eiga allir, stúdentar sem aðrir,
að snúa sér varðandi umsókn-
ir og allar upplýsingar.
Tvennt er það sem fólk þarf
að hafa í huga. Annars vegar
að meðalbiðtíminn er rúm-
lega ár, en verulegu rnáli
getur skipt hvar menn sækja
um. Þannig er t.d. ntun
skemmri biðtími í austurbæn-
um heldur en í vesturbænum
þar sem hann er um 2 ár.
Hins vegar að þegar stúd-
entar komast loks að með
börn sín þá fá þeir skammtað-
an tíma sem er 3 ár. Eftir
þann tíma verða menn að
finna aðrar lausnir á dagvist-
unarmálum sínum, hvort sem
menn eru í námi eða ekki.
Þessar upplýsingar og skil-
málar gilda fyrir þá háskóla-
nema sem eru í sambúð eða
eru giftir. Þeir háskólanemar
sem eru einstæðir foreldrar
falla ekki undir þetta heldur
eru settir í hóp með öðrum
einstæðum foreldrum (auð-
vitað) og ganga í gegnum
kerfið sent slíkir. Biðtími
þeirra er t.a.m. mun skemmri
en háskólastúdenta almennt.
Og þá eru það stúdentar
utan af landi. Unt þá gilda
sérstakar reglur. Annað hvort
verða þeir að flytja lögheimili
sitt til Reykjavíkur eða að
sækja um það til síns sveitafé-
lags að það greiði Reykjavík-
urborg þann hluta af kostnað-
inum sem Reykjavíkurborg
myndi annars greiða. Það er
um 75% af kostnaðinum. Það
verður að segjast eins og það
er að ekki eru öll sveitarfélög
svo raunsarleg að gera það þó
um það sé sótt. Varðandi
frekari upplýsingar í slíkurn
tilfellum geta rnenn snúið sér
til skrifstofu Félagsstofnunar
stúdenta.
18
STÚDENTABLAÐIÐ