Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 22

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 22
HEIMSÓKN í VERKFRÆÐI $ Wy-i jM^OrWr'f' á1' Þetta eru hjúkrunarfræðinemar — sem eðlilega vildu ekkert tjá sig um þessi deildarmál. En hvað haldið þið að þær séu að læra þarna? Uppvask, stærð- fræði eða efnafræði? Leiðsögumaður okkar um byggingarnar var Gylfi Ástbjarnarson nemi í byggingarverkfræði. Við þökkum honum kærlega fyrir fylgdina. Þessi elskulegi sölumaður var „til þjónustu reiðubúinn" í sjoppu rafmagnsverkfræðincma. Torfi sagðist hann heita og bætti því við að þau hefðu ekki aðeins á boðstólum sælgæti, gos og santlokur, heldur væru þau með fyrirtaks Ijósritunarþjónustu. Ljósrituöu fólk hvað þá annað. Því til staðfestu var heljarmikil auglýsingatafla fyrir þessa þjónustu. Er hluti hennar sýndur á myndinni hér fyrir neðan. i-mm Þann 15. september síðast- liðinn gengu í gildi breytingar á lögum um Háskóla Islands þess efnis að fyrrum Verk- fræði- og raunvísindadeild yrðu að tveim deildum: Verk- fræðideild og Raunvísinda- deild. Það eru komin 2 ár síðan deildarráð Verkfræði- og raunvísindadeildar sam- þykkti að fara þess á leit við stjórnvöld að deildunum yrði skipt upp í tvennt. Var það samþykkt í háskólaráði og málið síðan sent stjórnvöld- um. En vegna þess að fleiri atriði í lögum um Háskólann voru til endurskoðunar dróst að þetta frumvarp væri lagt fyrir Alþingi. En það gerðist sem sagt á síðasta löggjafar- þingi að frumvarp um þennan aðskilnað var lagt fram og samþykkt. En hvernig snúa þessi mál við nemendum þessara deilda? Til að athuga það og kynn- ast um leið eitthvað þeirri kennslu sem þar fer fram brugðum við okkur, ég og ljósmyndarinn, í hcimsókn út í VR I og VR II einn morgun- inn fyrir skömmu. / 22 STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.