Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 25

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 25
Bandaríkjunum sé hægt að læra sömu hluti hcr hcima? „Ég þekki enga málavexti um náms- lán í einstökum atriðum. En þessi stefna er ótæk, og jafnvel háskaleg.“ Eitt svið heimspekinnar er fagur- fræðin sem fæst m.a. við spurninguna: „Hvað er fegurð?“ Hafa tónlitaráhug- inn og heimspekin mæst þarna? „Nei, ekki hjá mér. Samt er tónlist óskaplega umhugsunarverð fyrir heim- spekinga, kannski mest vegna þess hvað hún er í senn upprunaleg í manneskjunni og þar með áhrifamikil annars vegar, og hvað hún er ónáttúr- leg og þar með engu öðru lík hins vegar. Á hinn bóginn held ég að fagurfræði sé hættuleg; mér hefur sýnst að fagurfræðingar fái gjarnan leið á listum. Að minnsta kosti er mörg fagurfræði mjög leiðinleg.“ Það er hins vegar augljóst að Þor- steinn hefur gaman af listum, a.m.k. tónlist. Til að minna menn á gildi „sannrar tónlistar“ látum við fylgja hér með stutt brot úr ræðu sem tlutt var fyrir margt löngu. áh. Úr ræðu Alexanders Jóhannessonar háskólarektors sem flutt var á háskóla- hátíð fyrsta vetrardag 1941: „Háskólinn tók upp nýja starfsemi, að efna til hljómleika fyrir stúdenta og kennara, og miðar starfsemi þessi að því, að auka þekking stúdenta á dá- semdarverkum sannrar hljómlistar, en hún er bundin órjúfandi lögmálum samstillingar og hreimfalls og opnar heila veröld fegurðar, er allir stúdentar ættu að kynnast. Orðið fegurð merkir samstilling, samhæfing, og þeir, sem drekka í sig anda sannrar hljómlistar og skilja eðli hennar, verða sannari menn og fullkomnari. Þeir þ.e. stúd- entar rnunu læra*að skynja mismuninn á sannri hljómlist og villimannlegum garganstónum þeim, er nefndir eru „jazz“ og banna ætti í hverju siðuðu þjóðfélagi. Þessi afvegaleidda hljómlist, er æskulýðnum er nú boðin á dansleikum, á sinn þátt í þeirri spillingu og taumleysi, er þjáir þjóð vora og til glötunar leiðir." STÚ DENTAB LAÐIÐ 25

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.