Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 29
EKKó
unnið á meðan. Fáið þið eitthvað
borgað fyrir þetta?
„Já, ja, en það fer allt eftir útkom-
unni. Fer allt eftir því hvernig aðsóknin
verður hérna í bænum. Það er meining-
in að það verði milli 20 og 30 sýningar
hér í Félagsstofnun í október og fram
í nóvember. Það verða sennilega 4
sýningar á viku; á mánudögum, mið-
vikudögum, föstudögum og sunnudög-
um. Eitthvað af þeim verða „skólasýn-
ingar“. Við ætlum að reyna að fá
krakkana í grunnskólunum til að sjá
þetta.“
Lokaspurning: Mynduð þið fara í
aðra svona ferð ef ykkur biðist það?
„Já alveg örugglega“ sögðu þau bæði
og Ágúst bætti við: „Þetta er búið að
vera óborganlegt ævintýri.“
Við á Stúdentablaðinu óskum þeim
til hamingju og hvetjum alla til að sjá
þessa sýningu Stúdentaleikhússins.
Stúdentar eru varla orðnir svo „full-
orðnir“ að sýningin eigi ekkifullt erindi
til þeirra.
HÓPFERÐABÍLAR 60-80 SÆTA
Kappkostum ávallt að hafa í boði sem best útbúríá bíla
ÍÉ11ar með steríótækjum, sjónvörpum og videótækjum
^ — Teitur Jónasson hf.
Sími 76588.
P/ti. mf >» *.*v -.vaj
'fm) JjF ■
STÚDENTABLAÐIÐ
29