Fálkinn - 25.04.1931, Page 11
F Á L K 1 N N
11
Yngstu lesendurnir.
Efst og neðst.
Almúgamaðurinn er vinnuþræll.
Hann sjer fyrir fjölskyldu sinni, ann-
ast um heimili siit og starf. Þegar
hann hnígur til moldar liggur eftir
hann vel unnið dagsverk.
Svo er það önnur tegund manna,
sem ekki gerir sjer að góðu að vera
eins og fólk er flest, þeir vilja af-
kasta einliverju stóru og miklu svo
aldrei liafi sjest þvilikt og aðrir undr-
ast yfir.
Þeir setja sinn svip á tilveruna, við
lesum um þá í blöðunum, sjáum mynd-
ir af þeim á kvikmyndahúsunum. Það
eru djarfir reiðmenn, sem hleypa á
skeiðvöllunum, framúrskarandi hjól-
t'eiðamenn, sem reyna sig á veðreiða-
flötunum, ágætir flugmenn, sem velta
sjer í loftinu, margir eru vísindamenn
og helga líf sitt því einu að ráða fram
úr einhverju torleystu viðfangsefni.
Um hina siðastnefndu skulum við nú
tala dálítið nánar í þetta sinn.
Metin.
Flugmenn reyna hvað eftir annað
að setja met i háflugi. Það er ekki
»ema leikur að fljúga uppeftir fyrstu
þúsund metrana, en þvi ofar, sem
dregur, þeim mun seinlegra er að
komast áfram. Loftið þynnist óðuin
og það frýs á loftvoginni. Flugmaður-
inn, sem hæst hefir getað komist
heitir Soucek, hann komst 14355 m.
upp i himinhvolfið. í þessari hæð er
loftið 5 sinnum þynnra en niður við
jörðina og kuldinn geipilegur. Varð
hann því að hafa með sjer upphitunar-
tæki og súrefnisgeyma eins og gefur
að skilja.
2. Hawthorne v. Gray kapteinn náði
í loftbelg sínum svipaðri hæð, nefni-
lega 14150 metrum. Seinna þegar
liann ætlaði að reyna að komast
hærra, mistókst honum og hann ljet
lifið.
3. í 11700 metra hæð hætta loft-
skeyti frá jörðunni að heyrast og
flugmennirnir verða að svífa þaðan
af einir um þöglan geyminn.
4. í 10000 metra hæð kveður flug-
maðurinn fugla þá, sem hæst fljúga.’
5. í 8875 metra hæð er hægt að
lenda á liæsta tindi jarðar, nefnilega
Mount Everesl fjallinu. Á tinda þess
hefir þó ennþá enginn komið nema
fuglinn fljúgandi. Enskir fjallgöngu-
menn reyndu að komast upp, en
urðu að snúa aftur þegar ekki voru
eftir nema nokkur hundruð metrar
upp á tind.
G. Eiffelturninn gnæfir 300 metra
yfir yfirborð jarðar. Það er enn
þann dag i dag hæsta byggingin á
jörðunni, en þess verður sjálfsagt
ekki langt að bíða að einhver ame-
,, Jeg er ekki of gömul til aö laera,
Pvottarnir
veröa
hvítari
og endast
lengur meö
RiNSO
LEVER BROTHERS LIMITED
PORT 3UNLIGHT, ENGLAND
t.
„Jeg held ekki ríghaldi i gamlar að-
ferðir, af þvi þær eru gamlar. Þessvegna
þvæ jeg altaf með Rinso, af því að það er
bæði betra og nýrra en gamla aðferðin.
Rinso þvær lök og dúka mína lireina og
hvíta sem mjöil, með engum hörðum nún-
ingi og engin sterk bleikjuefni, sem slíta
þvottinum. í ungdæmi mínu var ekkert
lil likt Rinso — þetta er framför."
segir húsmóðirin.
Er aðeins selt i pökkum
— aldrei umbúðalaust
Lítill pakki —30 aura
Stór pakki — 55 aura
, í SfÓRPVOnHW
W-R 21-047*
riski „skýjakljúfurinn“ teygir sig enn-
þá hærra upp.
7. Nú skulum við skreppa snöggv-
ast undir yfirborð jarðar og athuga
liina iðnu námuverkamenn, þar sem
þeir eru að vinnu sinni. Þeir geta
verið á upp undir 2500 metra dýpi,
en það er aðeins i námum þar sem
unninn er gullerts. Hitinn er þarna
35 gráður á Celsíus, og verður því
að flytja daglega mörg tonn af ís
í kælana, svo hægt sje að vinna þar
nokkurnveginn þolanlega.
8. Hin mikki djúp hafsins hafa
ennþá að geyma margar óráðnar gát-
ur og stóra fjársjóði, sem mennirnir
verða að láta liggja kyrra 1‘yrst um
sinn. Iíafari í venjulegum búningi
kemst ekki nema tæpa 100 metra
niður fyrir yfirborð sjávar. Þrýsting-
ur vatnsins er svo mikill, að hann
myndi kremjast í sundur ef hann
reyndi að komast lengra niður, hve
vel sem hann væri útbúinn.
9. Neðansjávarbátarnir liafa kom-
ist lengst 125 metra niður, og sýn-
ist það ekki vera nein ósköp.
10. f sjerstökum búningi til að kafa
í á dýpi liafa kafarar komist niður
á 165 metra, en það kvað vera, mjög
óþægilegt ferðalag.
11. Sá, sem sett hefir met í því að
köinast sem dýpst niður er William
Beebe, við Bermuda eyjarnar. Hann
ljet útbúa sjerstaklega gerða kúlu
úr þumlungsþykku stáli. í henni
ljet hann svo kasta sjer niður í 1400
hundruð metra dýpi. Neðansjávarbát-
ur mundi malast mjölinu smærra i
þessari dýpt. Gerði hann margar
merkilegar athuganir á lífinu þarna
niðri, skoðaði hann það við ákaflega
sterkt kastljós, sem hann sendi út
um afarþykkann glugga á kúlunni.
I M á I n i n g a-1
■ ■
í > S
vörur
■
■ ■
Veggfóður
■ ■
■ ■
■ ■
: Landsins stærsta úrvai. 3
■ ■
I »MÁLARINN« j
■ ■
Heykjarík.
Lengi hel'ir leikið grunur á því, að
kokaini væri smyglað inn á landa-
mærum Hollands og Belgíu. Bifreið
ein brynvarin, hafði lengi haft það
fyrir sið, að þjóta á fleygiferð fram-
hjá landamærávörðunum, án þess að
sýna flutning sinn eða fá vegabrjefs-
áritun, og var oft skotið á hana, en
það dugði ekki liót vegna þess að
skotin hrundu af brynjunni, eins og
vatn af gæs. Loks tóku tollþjónarnir
upp á því snjallræði að skjóta á lijól-
in — og þáð hreif. Hringirnir sprungu
og bifreiðin varð að staðnæmast. Og
tollþjónarnir fundu i henni kjassa,
með 100 kg. af kokaíni.
----x——
Enska skáldið Rudyard Kipling er
ekki blásnaúður, eftir því sem líkur
benda til. Hann tekur sem sje-um það
bil G krónur íslenskar í ritlaun fyrir
livert orð serri liann skrifar. Ef Fálk-
inn borgaði jafn há ritlaun mundi
þessi klausa kosta — um 250 krónur!