Fálkinn - 02.05.1931, Blaðsíða 6
6
F A L K I N N
Safn af leikföngum frú ýmsum tímum. Til vinstri brúöur frú Babýlon, úr brendum leir; nœst koma að of-
an tvö leikföng frú Eggptalandi: hestur og krókódíll með neðri sko'ltinum hreyfanlegum. Að neðan lcik-
föng frú Nurnberg, frú fyrri hluta 19. aldar: hljómsveit gerð úr múluðum terrakottamyndum.
Nurnberg er fyrsta borgin i Evrpu, sem gerði leik-
fangagerð að stóriðnaði. Myndin sýnir fallegt brúðu-
hús, gert ú 18. ötd. Húsið er svo stórt, að fullkomn-
um innanstokksmunum — fyrir brúður —- hefir verið
komið fyrir í því.
fullkomnun leikfanganna vaxi
með menningastigi þjóðanna, og
verður því leikfangið sjálft eins-
konar prófsteinn á menninguna.
Skýringin á þessu er sú, að börn-
in vilja jafnan sniða sjer við-
fangsefnin eftir því, sem þau sjá
fullorðna fólkið hafast að, og
kröfurnar til leikfanganna verða
eftir því.
Leikfangið liefir fyrst og
fremst þau áhrif á barnið, að
gera því glatt í geði. En í insta
eðli sinu er leikurinn undirbún-
ingur undir alvarlegu störfin og
hinn fyrsti skóli barnsins. Gam-
all höfundur segir, að leikur
barnanna sje ekki aðeins til tíma-
niðurdreps, heldur vinna, sem
eigi að kenna þeim að iðka vinn-
una þannig á fullorðinsaldri, að
hún verði þeim eins og leikurinn
var á barnsárunum.
Leikurinn er eitt af mikilvæg-
ustu uppeldismeðulum nútím-
ans. Og leikfangið er sönn spegil-
mynd aldarháttarins. Má þar
henda á tindátana, fallhyssurnar
og því um líkt hjá hernaðarþjóð-
unum og á flugvjelarnar, gufu-
vjelarnar, talsímatæki, ritvjelar,
bifreiðar og litlar kvikmynda-
vjelar, sem börnum hvarvetna
þykja liin eftirsóknarverðustu
leikföng. Eftir að járnbrautir og
bifreiðar komu til sögunnar fóru
leikfangasmiðir að búa til þess-
háttar leikföng þannig, að hægt
væri að draga þau upp og láta
þau ganga af sjálfu sjer. En
hvort þetta eru heppilegustu leik-
föngin skal látið ósagt, og upp-
eldisfræðingarnir eru mjög ó-
sammála um það. Halda margir
því fram, að t. d. trjeklossar til
þess að byggja úr, sjeu miklu
hollari leikföng, því að þau krefj-
ist meira starfs af barninu.
Og leikföngin, sem notuð voru
fyr á tímum eru mörg hver alls
ekki eins úrelt og fólk kynni að
halda. 1 forngröfum hafa fund-
ist bæði brúður og ýms dýr, úr
brendum leir. I rústum Babýlon-
ar hafa menn fundið brúður
tálgaðar úr alabasti, og sumar
þeirra hafa meira að segja verið
í fötum, sömu tegundar og tíðk-
uðust í þá daga. Frá Forn-Egypt-
um hafa menn einnig brúður úr
trje og krókódíla,
skorna úr sama
efni, með lireyf-
anlegum neðri
kjálkum. — Hjá
bæði Grikkjum
og Rómverjum
var leikfanga-
gerð á háu stigi.
Til dæmis hafa
fundist meðal
fornleifa Róm-
verja, myndir af
Júlíusi Cæsar ríð-
andi, steyptar i
blý, og brúður,
bæði úr vaxi, trje
og fílabeini. En
meðal leikfang-
anna ber þó mest
á brúðum úr
terrakotta, og
erumargarþeirra
með breyfanleg-
um úthmum.
1 Evrópu er
Þýskaland það
iandið, sem löng-
um befir staðið
fremst í leik-
fangagerð. — Á
Fyrsta leikfangið: Barnið með
hringluna sina.
miðöldum, eða nánar tiltekið á
14. öld snemma var Niirnberg
orðin frægur bær fyrir brúðu-
gerð sína og hvernig sem önnur
lönd hafa reynt til að keppa fram
úr Þjóðverjum í þessari grein,
þá hefir það ekki tekist. Ýms
hjeruð í Bayern lifa en þann dag
Á 18. öld og i byrjun 19. aldar Ijeku
drengir sjer að dútum, sem voru
skornir í trje. Þeir voru dýrari en
tindútarnir.
í dag mestpart á leikfangagerð
og eru það einkum leikföng skor-
in úr trje, sem þar eru framleidd.
I'IÐLA OLE Rjett el'tir nýáriS i vet-
BULL.--------ur dó enska fiðluleiks-
-------------konan Mary Porten.
Kannast ýmsir við hana vegna þess,
að hún átti fiðlu þá, seni leiídð hefir
í höndum frægasta fiðlusnillings Norð
urlanda fyr og síðar, Norðmannsins
Ole Bull. Hefir Norðmönnum lengi
leikið hugur á að eignast þessa fiðlu,
cn ekki fekist. Miss Porten arfleiddi
stúlku eina, sem er tónskáld og píanó-
leikari, að fiðlunni og auk þess að
000,000 krónum, tveimur Bechstein-
slaghörpum og bifreið sinni.
Fiðla Ole Bull er Guarnerius-fiðla,
sniíðuð árið 1738, að því er á liana
er lelrað. Er hún eigi minna en 00.000
króna virði. Miss Porten notaði aldrei
þessa fiðlu sjálf, ef hún fór út fyrir
borgina sem lnin átti heima í, til þess
að lialda hljómleika. Henni fanst of
mikið i húfi að hafa svo frægt og á-
gætt hljóðfæri með sjer á ferðalögum.
Eflausl reyna Norðmenn nú á nýj-
an leik að ná tangarhaldi á þessari
fiðlu, eftir að liún er komin í liendur
eiganda, sem notar hana aldrei sjálf-
ur.
-----x-----
Óstaðfest fregn frá Berlín liefir það
cftir lækninum Villinger í Freiburg,
sein verður eini þýski þátttakandinn
í norðurför sir Hubertus Wilkins á
„Nautilus", að þeir Wilkins og dr.
Eckener, foringi „Graf Zeppelin" liafi
lcomið sjer saman um, að loftskipið
fljúgi norður á heimskaut um sama
leyfi sem kafbátsins er von þangað.
Ætli „Graf Zepp“ að brjóta vök á ís-
inn á sjálfu heimskautinu svo að kaf-
báturinn geti komist upp þar og þátt-
takcndur beggja leiðangranna geti
hitst og talast við á sjálfu heimskaut-
inu.
Rússneski prófessorinn Voronoff,
sem allur heimurinn gapti af undr-
un yfir fyrir nokkrum árum, fyrir
furðufregnir þær, sem bárust af
yngingatilraunum hans, er nú að
hugsa um að setjast í helgan stein og
hætta öllum „kraftaverkum" i þeirri
grein. Hann hafði komið sjer upp
stóru apabúi suður við Miðjarðarhaf
og kostað til þess ærnu fje. En relcst-
urinn er svo dýr, að búið gefur ekki
nægan arð — vitanlega af því að ekki
fást nægilega margir „sanntrúaðir“
inenn til þess, að nota apalyf hans til
þess að vinna aftur æskuna.
Hnífasmiðjur i Sheffield liafa ný-
lega kært fyrr stjórninni, að flutt sjeu
til Bretlands rakvjelablöð frá Rúss-
landi, sem seld sjeu undir framleiðslu-
kostnaði og geri enskum smiðjum því
ómögulegt fyrir um alla sámkepni.
Rússnesku blöðin eru seld fyrir tvo
aura stykkið, svo að það er skiljan-
legt þó að Bretanum þyki þetta örð-
ugur keppinautur.
----x----
Stanley Napier hjet maður, sem
kunnur var fyrir framleiðslu flugvjela-
hreyfla, sem bera nafn lians, og not-
aðir liafa verið í ýmsum hraðskreið-
ustu flugvjelum heimsins. Hann dó
nýlega og ljet eftir sig 25 miljón
krónur. En það sögulegasta við þess-
ar miljónir er það, að ekkja lians fær
ekki grænan eyri af þeim heldur
hafði Napier ánafnað einni vinkonu
sinni suður í Gannes mestan hluta
eignanna, en að lienni látinni eiga
þær að ganga lil vísindarannsókna á
upptökmn krabbameins.