Fálkinn - 02.05.1931, Page 8
Myndin hjer aö ofan er tekin
eftir frægu málverki franska
málarans Eugene Bernauds og
sýnir innsetning Jieilagrar kvöld-
máltíðar.
Áriö 1925 lagði enski ofurstinn
Fawcet í leiðangur til Suöur-
Ameríku til þess að kanna ó-
kunn flæmi meðfram upptök-
um Amazonfljótsins. Voru vin-
ur lians og kornungur sonur
með Iionum í ferðinni. En síðan
hefir ekkert iil þeirra spurst og
hyggja menn helst, að þeir hafi
lent í höndum viltra Indiána,
sem hafi drepið þá. Tveimur ár-
um síðar gerði Dyott nokkur út
leiðangur til þess að leita að
Fawcett. Tóksl honum að rekja
slóðir Fawcetts til Indíánafloks
eins, sem naumast hafði hvíta
menn sjeð, og segir hann að
þessir menn ligfi myrt fjelag-
ana sumarið 1925. Myndin er af
þessum Indíánum, en manna-
myndirnar eru af Fawcett (sú
stærsta), syni hans og Dyott,
Voldugasti maður Ítalíu, Benito
Mussolini býr í Palazzo Venezia
í Róm. Einn af stærstu sölunum
i höllinni er vinnustofa hans.
Eru þar engin húsgögn nema
skrifborð hans og stóll í einu
horninu. Svo stór er þess saluir,
að gesturinn er yfir mínútu að
ganga utan frá dyrum og að
skrifborðinu, og hefir því Mus-
solini tækifæri til að virða
manninn fyrir sjer á meðan.
Mussolini byrjar daginn með
því að lesa blöðin. Þarnæst kem-
ur frjettaumsjónarmaðurinn,
signor Ferretli á fund hans.
Litla myndin að ofan til vinstri
sýnir þá vera að ráðgast um,
hvaða afstöðu blöðin eigi að
taka til dægurmálanna. Á hinni
litlu myndinni sjest foringi fas-
istahersins, signor Teruzzi. Er
hann eini maðurinn, sem Musso-
lini hefir svo mikið við að veita
honum viðtal standandi.