Fálkinn - 02.05.1931, Side 10
10
F A L K I N N
Komið eða
skrilið til
w ~r~-
URO-GLER
okkar.-------
sem útiloka hina
skaðiegu ljósgeysla.
Ókeypis gler-
--------------- augnamátun.
IEina verslunin sem
hefir sjerstaka ran-
; sóknarstolu með öll-
um nýtísku áhölðum.
Laugavegs Apotek.
Á Þjer standið yður altaf við að j*j
í biðja um „Sirius“ súkkulaði |
t og kakóduft.
í 2 GætiS vörumerkisins. n
♦B»«C3M=>K=>K=>KZ> C3K=HC=>K3ÓOó<=>»
S - I - L - V - O
silfurfægilögur til
að fægja silfur,
plet, nickel o.s.frv.
S I L V O
gerir alt ákaflega
blæfallegt og fljót-
legur að fægj a með.
Fæst í öllum verslunum.
Stórfeld Wienar-nýunu:
Hárl iðunargreiðan
Heimseinkaleyfi, verndað í öllum
menningarlöndum.
Með almennri greiðu
Þessi greiða liðar og viðheldur lið-
un hárs yðar, ef þjer aðeins notið
hana daglega. Þjer fáið indæla hár-
liðun þegar við fyrstu notkun. A-
byrgjumst góðan árangur og holl á-
hrif. Höfum hundruð þakkarbrjefa
frá ánægðum notendum, meðal ann-
„Viena“-greiðan er ómissandi öllum
ars frægum kvikmyndaleikkonum.
ið fara vel. Verð d. kr. 2.50 að við-
konum og körlum, sem vilja láta hár-
bættu burðargjaldi, 2 stk. burðar-
gjaldsfríti. Send gegn póstkröfu.. . .
Notkunarfyrirsögn fylgir.
Wiener Kosmetisk Industri
Skandinavisk Depot
Köbmagergade 46 Köbenhavn K.
Best er að auglýsa i Fálkanum
ra
Skuggahliðar.
Frásagnir danskrar hjúkrunarkonu
um konufangelsin amerísku.
Dönslc hjúkrunarkona, frú Mar-
strand að nafni, sem dvalið hefir úr-
um saman í Bandaríkjum og starfað
þar við konufangelsin, segir frá því
sem hún hefir sjeð þar:
„Það er það, sem kallað er sorinn,
sem safnast í fangelsin. Þar sem jeg
var voru það kornungar stúlkur, sem
dæmdar höfðu verið fyrir einhver
brot í alt að 3 ára fangelsisvist.
Konufangelsið er í sambandi við
barnahæli, því meiri liluti þeirra
kvenna, sem koma í fangelsið eru
þungaðar þegar þær koma inn. Þetta
er ef til vill það sorglegasta af því
öllu saman. Ungu stúlkurnar, sem inn
koma, eru svo eyðilagðar, að það er
hreint og beint hræðilegt að liorfa
upp á það, og það er ekkert gert —
alls ekkert — til þess að bjarga þeim
af þeirri lastabraut, sem þær eru
komnar á. Þær, sem reyndari eru
halda áfram með sama hætti strax
og þær koma út, hinar, sem yngri
eru og óreyndari ganga í fangelsinu
í hinn fullkomnasta skóla, því þær
Iæra af fjelögum sínum, sem þær
vinna með, alla hina uppliugsanleg-
ustu lesti.
Þeir, sein ekki hafa sjeð eymdina
í stórborgunum eiga bágt með að gera
sjer sjálfir grein fyrir því, live ógur-
leg hún er. Iíonudýrkunin í Banda-
ríkjunum nær ekki nema til þeirra
kvenna, sem lifa sólarmegin í lífinu
og hún á sínar svörtu skuggahliðar.
Þannig þykir það jafnvel brot að á-
varpa stúlku á götunni, og karlmenn
eru stundum látnir i fangelsi fyrir
það.. Aftur á móti er það altítt um
hinn svokallaða sora, að lögreglan
leggur hreint og beint snörur fyrir
stúlkurnar til þess að geta hreinsað
þær úr.
í fangelsinu hjá okkur var ung
stúlka, sem dæmd liafði verið til
langdvalar. Hún var barnung og
naumast léttúðugri en stúlkur gerast.
Hún hafði numið staðar á götunni
fyrir framan glugga á sætindabúð.
Maður hafði staðnæmst þar hjá henni
og farið að tala við hana mjög kurt-
eislega. Því lauk með því, að hann
bauð henni á kvikmyndasýningu, en
fyrst vildi hann að hún kæmi heim
með sjer og biði meðan hann skrifaði
nokkur brjef.
Unga stúlkan, sem ekki hugsaði út
i að þetta gæti verið varhugavert, fór
með honum, settist inn í stofu hjá
honum og fór að hlusta í útvarpið.
Alt i einu kom vingjarnlegi maðurinn
aftur inn í herbergið. Hann settist
hjá henni og tók hana á knje sjer.
í sama bili komu tveir lögregluþjón-
ar fram i herbergið. Þetta var gildra.
Slúlkan var staðin að því að vera
komin inn i herbergi ókunnugs
manns. Hún sat þar á knjám húsráð-
anda. Hún gat eklci varið sig. Hún
var dæmd.
Það var siðgæðislögreglan, sem bjó
út þessa gildru. Sannleikurinn er
nefnilega sá, að leynilögreglan fær
vissa borgun fyrir hverja ósiðsama
stúlku, sem hún getur „gert óskað-
væna“ með því að taka hana fasta.
Flestar ungu stúlkurnar byrja á
því að kasta sjer út í sorpið 13—14
ára gamlar. Jeg hefi sjeð Ijót dæmi
þess, hvernig foreldrarnir hafa neytt
kornungar dætur sínar út i spilling-
una. Hjá okkur var ung stúlka, liún
var ekki nema 16 ára gömul. Faðir
hennar hafði neytt liana til þess að
fara út á götuna, en liún hafði getað
fengið sjer vinnu á daginn, sem liún
fjekk peninga fyrir, þessa peninga
fór hún með heim. Á nóttunni, þegar
faðir hennar var sofnaður, laumaðist
hún inn og lagðist á bert gólfið undir
rúmi hans, þangað til faðir liennar
uppgötvaði þetta, misþyrmdi henni,
og úr því þorði hún ekki annað en
lilýða.
Önnur ung stúlka kom i fangelsið
og fæddi þar annað barn sitt. Hún
sagði bitur, að hún ætti móður sinni
að þakka það, að hún hefði lent í
óhamingju. „Mainma gleymdi að loka
húsinu eina nótt fyrir fimm árum
siðan, sagði hún, jeg stalst út og var
það upphaf ógæfu minnar“.
Jeg spurði hana, hver ætti þetta
barn. „Það hefi jeg ekki hugmynd
um“, svaraði stúlkan „þegar maður
á annað borð er komin út i það þá
fær maður ekkert fyrir að hætta“.
Stúlkurnar eru oft svo fagrar og
sakleysislegar að það væri liægt að
sverja það dýrum dómum að þær
lifðu svo ijettúðugu lifi sem ætla mú
fyrst þær komast í hendurnar á lög-
reglunni. Og þó eru þær meira og
minna eyðilagðar allar saman. Veik-
ar og með litla siðgæðistil,finnngu.
En sje farið með þessar aumingja
verur eins og manneskjur, sje þeim
sýnd vinátta mú fá þær til að gera
svo að segja alt, sem maður vill.
En hvernig á að vera tími til þess
að skifta sjer af hverri einni? Alt
gengur með geysihraða. Manneskjurn-
ar eru ekki nema númer á spjald-
skrá. Hversu mikið sem mann langar
til er ómögulegt að sinna hverri um
sig. Þær eru alt of margar. Og sje
farið að taka einhverjar fram yfir
aðrar gerir það aðeins ilt verra“.
Napoleon sagði að í ástamálum
væri ekki nema um einn sigur að
ræða — flóttann.
Karlmennirnir nú á dögum sýn-
ast fylgja þessu dæmi og taka flótt-
ann að vopni í hinum ýmsu örðug-
leikum lífsins.
Þeir flýta sjer burtu ef þeir sjá
konu sína tárast, skella hurðinni ef
þeir mæta hinni minstu ásökun frá
ættmennum sínum. Þeir þegja og láta
deilumálin óútrædd, láta þau safn-
ast fyrir og særa, í stað þess að hægt
væri að útkljá alt með vingjarnlegu
brosi og blíðlegum orðum, og sýna
þannig yfirburði sina.
En þeir fara og slíta samtalinu,
og það eru þeirra vopn, en þetta eru
ill vopn og óheiðarleg — hreint og
beint heiguls vopn.
Þetta er mæðrunum að kenna.
Ef mæðurnar ekki dekruðu við
drengina frá því að þeir eru litlir
snáðar, myndu vera miklu fleiri ham-
ingjusöm hjónabönd, ef mæðurnar
ljetu þá venjast á að verja systur
sínar og liugsa um þær, ef móðirin
kendi syni sínum að horfast í augu
við alla hluti en ekki laumast burt
frá þeim i stað þess að liugsa um þá
og rökræða þá rólega, þá myndi líf-
ið verða auðveldara og hamingju-
samara oft og tíðum.
Ferrosan
er brafíðgott ofí styrkjandi
járnmeðal
og áfíætt meðal við blóðleysi
ofí tauítaveiklun.
Fæst í öllum lyf jabúðum
í glösum á 500 gr.
Verð 2.50 glasið.
VAN HQUTENS
konfekt og átsúkkulaði
1
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
Pósthússt. 2
Reykjavik
Simar 542, 254
oe
30S(framkv.slj.)
Alíslenskt fyrirtæki.
■Allsk. bruna- og sjó-vátryggingar.J
■ Hvergi betri nje áreiðanlegri viðskifti. ;
S Leitið upplýsinga hjá næsta umboðsmanni. S
Mæður, lcennið sonum ylckar að
það er lítilmenska að laumast burtu
úr bardaganum eða að reyna að
þegja sig út úr honum. Lútið þá talca
upp baráttuna.
Þýtt.
Foreldrar, barnið yðar á að hafa
fengið allar 8 framtennurnar þegar
það er ársgamalt. Kaupið Mæðra-
bókina eftir prófessor Monrad.
Kostar 3.75.