Fálkinn - 09.05.1931, Side 3
F A L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Frajnkvœmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalslcrifstofa:
Banksstræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
BlatSið kemur út hvern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð; 20 aura millimeter
HERBERTSPRENT, Rvik.
Skraddaraþankar.
Það er sagt um söngfuglan'a að
þeir hætti að syngja ef þeir verði
of feitir. Á hinn bóginn vita menn
að því meiri sem mótstaðan verður
í rafmagnslampa, því sterkar lýsir
hann. Og hvernig gæti maðurinn
komist úr sporunum, ef jörðin sem
hann stígur á veitti ekki fótum hans
viðnám? Þú stígur í vatn. Það veitir
lítið viðnám og þú verður að botna
til þess að geta vaðið. En steinninn
veitir viðnám og iætur ekki undan
og þessvegna kemst þú áfram. Það
voru þjáningar píslarvottanna, sem
greiddu fyrir útbreiðslu kristindóms-
ins og það hefir jafnan verið and-
staðan gegn hverju góðu málefni,
sem best hefir gagnað því.
Því það stappar stálinu í manninn,
að sigrast á örðugleikunum. Hvað
liirðir listamaðurinn um lof velunn-
ara sinna, sem ávalt eru reiðubúnir
til þess, að slá gullhamra. En sá,
sem listamaðurinn litur uppi tiL, en
ekki lítur upp til listaverka hans,
veitir með aðstöðu sinni það eggj-
andi viðnám, sem er miklu þýðing-
armeira fyrir framíð litstamannsins,
en alt það, sem sagt er faLlegt um
hann. Þvi lárviðarberin eru eins og
kunnúgt er til þess, að sofa á þeim,
en þistlarnir eggja til framkvæmda
— þó ekki nema væri til þess að
knýja manninn á aðrar götur.
En hversvegna gefast svo margir
upp fyrir viðnáminu? Eins vel mætti
spyrja, hversvegna myllusteinarnir
mali kornið en kornið ekki myllu-
steinana? Vegna þess að myllustein-
arnir eru harðari en kornið. Og þess-
vegna er nauðsynlegt að vera úr
rjettu efni gerður, til þess að malast
ekki undir myllusteini lífsins. Hinir
mörgu, sem víkja til hliðar og gahga
út úr fylkingunni og horfa á hina,
sem halda beina leið áfram — hinir
mörgu, sem lialda, að því mýkri sem
þeir geri sig, því minni verði árekstr-
arnir og þvi betur komist þeir áfram,
— þeir eru eins og sjálfsvitundar
snillingarnir. Þeir komast aldrei á-
fram, því að þeir eru eins og naðran,
sem fer að jeta skottið á sjer, en
verður að hætta við að fullkomna
þetta verk, án þess þó að geta nokk-
urntima skilið, að það er af því að
hún getur ekki melt sjálfa sig.
Eini staðurinn, sem aldrei má vera
andstaða í, er í manninum sjáLfum:
gegn sjálfum sjer. Hann má aldrei
vera óvirlcur, aldrei sljór, aldrei veilc-
ur fyrir nje hopandi, aldrei þreyttur
eða liikandi. Litið á flugvjelina! Þeg-
ar hún nýtur ekki nægilegs viðnáms
hjá löftinu sem ber liana uppi, þá
hrapar hún vegna aðdrátlarafls jarð-
arinnar. Aðdráttaraflið drepur, en
mótstaðan gefur líf.
GULLHEIÐURS- í Englandi er
PENINUR FYRIR það orðinn siður
KVIKMYND að „The faculty
-------------- of arts for the
federation of the related arts“ veitir
árlega lieiðurspening því kvikmynda-
fjelagi, sem þykir hafa gert bestu
kvikmyndina á umliðnu ári frá list-
rænu sjónarmiði. Universal-kvik-
myndafjelagið fjekk þennan lieiðurs-
pening fyrir 1930 vegna myndarinn-
ar „Tiðindalaust af vesturvígstöðv-
unum“.
Gunnlaugur Þorsteinss. hrepp-
stjóri á Kiðjabergi verður átt-
ræður 15. þ. m.
Bjarni Jensson i Ásgarði verð-
ur 66 ára ÍL þ. m.
PILSUDSKI Þessi mynd er af
GEÐVEIKUR? Pilsudski, einvalds-
------------- stjóra Póllands, sem
um þessar mundir dvelur sjer til
lieilsubótar suður á Madeira. Fór
liann þangað um nýjárið, aðfram
kominn af svefnleysi og taugaveikl-
un, enda tekur það sjálfsagt á taug-
arnar að vera einvaldsstjóri yfir jafn
böldnum lýð og Pólverjar eru. Mad-
eira er talinn einna unaðslegastur
staður á þessari jörð, en eigi hefir
Pilsudski notað sjer veðurblíðuna og
nátiúrufegurðina þar til þess að vera
úti. Hann situr mestan hluta dags
niðursokkinn í að leggja kabal og spá
í spil, og þykist vera að kanna ör-
lög sin. Hann er sem sje afar hjá-
trúarfullur, karlgarmurinn. Á leiðinni
til Madeira týndi hann sverðinu sínu,
og hafði hann talið það fyrirboða
geigvænlegra tiðinda. En nú heifir
það fundist aftur, svo að vera má,
að Pilsudski ljetti.
Sig« Krisljánssonar
hefir á boðstólum flestar íslenskar bækur
þar á meðal allar fáanlegar bækur for-
lagsins, en meðal þeirra eru ýms merk-
ustu rit ísl. bókmenta.
HERBERTSPMENT
tekur að sjer allslconar prentun smærri og
stærri. — Hefir ávalt fyrirliggjandi fjöl-
breyttar pappírsbirgðir og umslög. —
Sjerstök áhersla lögð á vandaða vinnu.
Bankastræti 3 — Reykjavík — Sími 635
Friðrik Svipmundsson formað-
ur i Vestmannaegjum varð 60
ára 15. apríl síðastliðinn.
Kýr ein í Þrændalögum átti nýlega
þrjá kálfa, sem allir fæddust lifandi
og voru hinir pattaralegustu. Þykir
þetta tíðindum sæta austur þar og
er kýrin á allra vörum norðanfjalls i
Noregi.
F. A. Thiele
Bankastræti 4
er elsta og þektasta
. gleraugnasjer- .
verslun á Norð-
urlöndum.
Þar fæst ókeypis gleraugnamátun.
Hin þektu Zeiss-gler af öllum
gerðum. Odýr, sterk og góð gler-
augu. Skrifið eða komið til okkar.