Fálkinn - 09.05.1931, Qupperneq 4
4
F A L K I N N
Það er orðið æði langt síðan Einar H. Iívarati sendi frá sjer leikritið „Syndir
annara". Áður var kominn „Ljenharður fógeti“, sem fjráfaldlega hefir ver-
ið leikinn síðan, bæði hjer og víðar um land, en nú í vor kom leikritið Hall-
steinn og Dóra“, sem Leikfjelag Reykjavíkur hafði frumsýningu á í vikunni
sem leið. Leikurinn ber með sjer ýms bestu einkenni hins vinsæla höfund-
ar, meitluð og fáguð tilsvör og eðlilega viðburðarás. Aðalpersónan er Hall-
steinn, aurasál og metorðagjarn hjegómadýrkandi, sem lætur það verald-
lega jafnan sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru og gefur sjer aldrei tóm til að
hugsa um það, sem hinumegin er grafarinnar. Stúlkan, Dóra, sem hann hef-
ir orðið ástfangin af deyr fyrir tilverknað hans og fær sá atburður á hann
um sinn en brátt sækir í sama horfið aftur. Síðasti þáttur leiksins gerist í
öðrum heimi og lýsir ástandi þessa jarðbundna manns er hann kemur „yf-
ir um“. Hittir hann þar Dóru, sem reynir að leiðbeina honum og hjálpa. —
Eru margir kaflar leiksins gullfallegir og hugnæmir.
Haraldur Björnsson leikur aðalhlutverkið, Hallstein, en Dóru leikur Þóra
Borg. Sjást þau á litlu myndunum til vinstri. Gunnþórunn Halldórsdóttir
leikur móður Iiallsteins og er myndin að neðan iil h. af henni en myndin
að ofan til hægri af Emilíu Borg og Friðfinni Guðjónssyni. Næsta blaðFálk-
ans mun flytja myndir af nokkrum fleiri leikendum í þessum leik, sem
vakið hefir milda athygli og fæstir munu láta hjá líða að sjá. Haraldur
Björnsson bjó sýninguna undir leik, en Freymóður hefir málað leiktjöldin.
Hóp-
sýning
H. H.
þessu fjelagi í vetur. Og á
sunnudaginn var hjelt fjelagið
fimleikasýningu á íþróttavellin-
um með nálega 150 þátttakend-
um, og er þetta stærsta fimleika-
sýning, sem háð hefir verið á
landi hjer. 1 karlaflokki tóku
þátt í sýningunni um 70 manns,
cn kennari þess flokks er Júlíus
Magnússon, ungur fimleika-
kennari og áhugasamur, eins og
sýningin ber vott um. Þá sýndu
nær 70 stúlkur fimleika undir
stjórn ungfrú Unnar Jónsdóttur
og undir stjórn sama kennara
sýndu og fimleika rúmar tíu
telpur. Var unun að horfa á
þessar sýningar. Á stærri mynd-
inn, sem hjer fylgir sjást allir
flokkarnir, en á minni mynd-
inni stúlknaflokkurinn að æf-
ingum.
Knattspyrnufjelag Reykjavíkur,
sem í upphafi var stofnað um
þá einu íþróttagrein, sem nafnið
bendir til, er nú með allra á-
hugasömustu íþróttafjelögum
landsins og hefir tekið flestar
cða allar almennar íþróttir á
slarfsskrá sína. Sem dæmi upp
á starfsfjörið má nefna, að um
300 manns hafa iðkað leikfimi í
Húsfrú Majendína Kristjáns-
dóttir, Reykjavík verður ðO ára
11. þ. m.
llúsfrú Guðrún A. Jónsdóttir á
Bjargarstíg 4 verður 80 ára
9. maí.