Fálkinn - 09.05.1931, Blaðsíða 8
8
F A L K I N N
1 veislu einni, sem eigi alls fyrir
löngu var haldin í Bandarílcjunum
fengu gestirnir tækifæri til að sjá
ýmsa hatursmenn drelcka sáttaskál,
vitanlega i sódavatni, því að Ame-
ríka er bannland. Mennirnir voru
þeir Al Smith, fyrverandi fylkis-
stjóri í New York, sem bauð sig
fram við síðustu forsetakosningar
móti Hoover, Franklin Roosevelt
fyllcisstjóri í New Yorlc, Joseph Gin-
nien forseti ríkisþingsins og Herbert
Lehman undirfylkisstjóri og sjást
þeir þeir hjer á myndinni, taldir frá
vinstri til hægri. Pappírshúfurnar,
sem þeir eru með á höfðinu tákna
stjórnmálalitinn á þeim. Talið er
lílclegt, að Franklin Roosevelt bjóði
sig fram til forseta við næstu kosn-
ingar og að hann vinni sigur, þvi
að gengi demokrata hefir ekki verið
meira nú í mörg áir og Hoover
forseti þykir hafa brugðist vonum
manna.
Maður gæti haldið, að myndin hjer að ofan væri tekin af skemti-
ferðamönnum i kirkju, en svo er ekki. Myndin er tekin á Termi-
nusjárnbrautinni í New York, sem sumpart er neðanjarðar og
sjest sólargeislana leggja inn um gluggana. Járnbrautarstöðvar
stórborganna eru víða hin tröllauknustu smíði, ekki síst í New
Yorki því að þar er alt milcið. En víða annarsstaðar má sjá stór-
ar járnbrautarstöðvar, t. d. í Philadelfíu. Stærstu járnbraular-
stöðvarnar í Evrópu munu vera í Hamborg og Leipzig, en i
London eru stöðvarnar svo margar og dreifðar, að engin þeirra
er afarstór. Á járnbrautarstöðvunum er jafnan alt á iði, að kallci
má dag og nótt, fólk að koma og fara og auk þess mikið af iðju-
lausu fólki, sem hangir inni í stöðvarstöðunum timum saman,
til þess að hafa húsaslcjól.
Drengurinn á myndinni hjer til hægri er sennilega yngsti
brennuvargurinn í heimi. Er hann 6 ára. Nýlega kveikti hann í
húsi í Augsburg i Þýslcalandi og kviknaði út frá því í sex öðrum
húsum sem brunnu til ösku, en 23 manns urðu húsviltir.
Semata Santa er páskavikan kölluð á Spáni og fara þá jafnan
fram skrúðgöngur og hátíðahöld. Myndin er tekin af skrúðgöngu
sem fór fram í SeviIIa á föstudaginn langa.