Fálkinn - 13.06.1931, Qupperneq 3
F A L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
BlaSið kemur út hvern laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Augtýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Þú kemur á mannamót, ert í hópi
manna á ferðalagi og hlustar á sam-
ræður. Þú getur ekki komist hjá að
hlusta á þær, því að þeir sem tala
lægja ekki raustina. En þetta sem
þú heyrir talað er svo innantómt og
tilgangslaust, að þig furðar á, að
fólkið skuli ekki heldur kjósa að
þegja. Það sem sagt er sýnir nær alt-
af, að þeim sem talar, er ekkert inn-
anbrjósts og ekkert að baki orðunum.
Og oft fer á sama liátt þó að þú
sitjir heima í stofunni hjá kunn-
ingjum þínum, þar sem ætla mætti
að veigameira umræðuefni væri í
fyrirrúmi. Víðast hvar fer á sama
hátt. Veðrið, leikhús, bío, mannorð
náungans og syndir stjórnarinnar
eða afrek er umtalsefnið, en sje
brotið upp á einliverju, sem nauðsyn-
legt er að hugsa um, til þess að geta
talað um það, þá er venjan sú, að
málið er tekið út af dagskrá með ein-
hverju orðatiltæki, sem þá stundina
er notað sem svar við öllu, sem
menn geta ekki svarað hugsunar-
Laust.
En meðal þessa fólks, þessa mjóg-
talandi fólks lærir maður gildi þagn-
arinnar, á sama hátt og hann lærir
að meta hirðusemi þegar hann sjer
vanhirðu, sein honum blöskrar, stillr
ingu við að sjá mann, sem ekki get-
ur stjórnað sjer og alvöru við að sjá
andvaralausa menn. Maður, sem
hefst við innan um eintóma hugsun-
arleysingja kemst ekki hjá þvi að
luigsa.
Nú er það svo, að hið ókyrra nú-
tímalíf þreytir manninn svo, að hann
vill hafa næði þegar hann hefir lok
ið dagsverkinu. KaupsýsLumaðurinn
hugsar allan daginn á skrifstofunni
sinni og vill helst livíla sig á að
hugsa, þegar hann kemur heim. Þá
talar hann um það hversdagslegasta
og ies reyfara, því að það livilir. Það
er sagt, að orðin sjeu til þess að
Icyna hugsuninni. En það mætti
fremur segja, að orðin væru til þess
að leyna því, að maðurinn geti ekki
hugsað eða nenni ekki að hugsa.
„Hugsaðu áður en þú talar“, var sagt
í eina tíð, en nú mætti segja: Talaðu
til þess að komast hjá að hugsa.
Önnum kafni nútíðamaðurinn ælti
því að forðast að umgangast hina
mjögtalandi, þvi að meðal þeirra
lærir hánn að þegja, og þögnin
kennir manninum að hugsa. En þá
mun spurt (ef hugsað er svo laugt):
Ei við forðumst umgengni við hina
talandi þá er ekkert fyrir nema ein-
veran og þá tekur líka þögnin við.
En timinn sjer við öllu. Settu plötu
á grammófóninn og láttu hann tala
við þig. Hann endurtekur altaf það
sama, eins og fólkið sem talar mest.
Irækinn iþrúttagarpur.
Einmenningskeppni í fimleikum
fór fram 6. f. m. i fimleikahúsi í. R.
Aðeins fjórir menn tóku þátt í henni:
Jón Jóhannesson, Ólafur Tryggva-
son, Ósvaldur Knudsen og Tryggvi
Magnússon. Allir eru þeir í í. R. og
er illa farið, að önnur fjelög skyldu
draga sig í hlje.
'Eryggvi Magnússon hefir tvö síð-
ustu ár borið sigur úr býtum, í ein-
tnenningskeppninni, en ti!l þess að
vinna til eignar bikar þann, sem
kept er um, þarf að vinna hann þrjú
skifti i röð.
í jjetta sinn urðu úrslitin þannig:
Ósvaldur Knudsení . . 'ií)2,12 stig
Tryggvi Magnússon . . . Í8'i,6f> —
Jón Jóhannesson . . . . k77,10 —
Ólafur Tryggvason . . . 428,09 —
Ósvaldur varð þannig Mutskarp-
astur og hlaut bikarinn og meistara-
nafnbótina.
ósvaldur gekk i í. R. 1914 og hefir
einatt verið einn af ágætustu fjelög-
um þess. Auk fimleika hefir hann
stundað margar aðrar iþróttir; er
mjög rómaður, sem góður knatt-
spyrnumaður, og hefir getið sjer
góðan orðstír fyrir spretthlaup og
stökk. Um eitt skeið átti hann ísl.
met í hástökki 170 cm. og sje þess
gœtt, að hann stökk með prýðileg-
um fimleikastil, er auðsætt afburða-
maður han er í þeirri í þrótt, enda
nnin hctnn þar eigaj fáa jafningja,
bœði hjer á landi og þótt víðar væri
leitað.
Skautahlaup og skíðafarir stundar
hann með áhuga, og er vel fær i
hvortveggja, á snmrin ferðast hann
titt um fjöll og óbygðir og er þá oft
'langförull. Gleymir hann þá ekki
að hafa með sjer veiðistöngina og
'ijósmyndavjelina, þvi hann er ágæt-
is veiðimaður og margar af myndum
hans eru meðal þeirra bestu, sem
við eigum af ísl. náttúru.
Að vísu er Ósvald góðum hæfi-
leikum gæddur til íþrótta, en þeir
einir myndu þó ná skamt. En hann
hefir og annað til brunns að bera,
þrautseigju og viljafestu í hverju þvi,
sem lxann tekur sjer fyrir. Það eru
þessir eiginleikar og háttprýði öll,
sem hafa skapað honum virðingu
meðal fjelaga lians, bæði á leik-
vanginum og lwar sem hann fer,
eiginleikar sem eru hvers manns
besta eign.
R.
íslenskir Grænlandsfarar.
Fyrir rúmum hálfum mánuði
fór Jón Jónsson frá Laug í Bisk-
upsungum til Kaupmannahafn-
ar áleiðis til Grænlands. Hafði
hann með sjer hesta er hann
hafði keypt hjer og á að nota til
flutninga frá sjó og upp að
bælástöð Grænlandsleiðangurs-
ins þýslai fyrir ofan Umanak-
fjörð og stjórnar Jón þeim flutn
ingum. Þrátt fyrir hið sorglega
fráfall Wegeners prófessors og
Grænlendingsins Rasmus, held-
ur leiðangurinn áfram vísinda-
slarfsemi sinni eins og áður.
Myndin er tekin af hafnarbakk-
anum í Reykjavík, þegar verið
er að taka hestana um borð í
skipið og sjest Jón á þilfarinu t.
h. á myndinni. Alfred D. Ijósm.
Kritsján Sæmundsson, Lindar-
götu 2, verður sextugur 15. jání.
Sigfús Jónsson frá Vatnsnesi
varð sjötugur 29. f. m.
aldrei vinnufólk, en alið og upp-
fœtt ellefu börn. Er sá liópur
hinn myndar- og mannvænleg-
asti, enda uppalinn við iðju-
og reglusemi á hinu prýðilega og
glaðværa heimili söngs og sagna,
og jafnframt veitt sú skólament-
un, sem alþýðu manna er holl-
ust. Tíu af ellefu systkynum eru
á lífi og þrjú gift. Voru þau hjón
Valgerður og Guðm. orðlögð fyr-
ir fríðleik á yngri árum og talin
írábær að dugnaði. Og víst er
um það, að kunnugir efast um,
að fleiri handtök liggi eftir aðra
menn sjötuga en Guðm. á Lóma-
tjörn,
Guðmundur Sæmundsson bóndi
á Lómatjörn í Höfðahverfi átti
sjötugsafmæli 9. þ. m., en kona
hans Valgerður Jóhannesardótt-
ir, Jónssonar prests Reykjalíns
fyrrum prests á Þönglabakka,
fyllir 56. árið í haust. Þau hafa
búið á Lómatjörn um 30 ára
skeið, húsað jörðina og bætt
stórkostlega, haft þó sjaldan eða
F. A. Thiele
Bankastræti 4
er elsta og þektasta
. gleraugnasjer- .
verslun á Norð-
urlöndum.
Þar fæst ókeypis gleraugnamátun.
Hin þektu Zeiss-gler af öllum
gerðum. Odýr, sterk og góð gler-
augu. Skrifið eða komið til okkar.