Fálkinn - 19.09.1931, Page 2
2
F A L K I N N
------ OAMLA BIO ----------
Aðeins þú.
Þýsk 100% gamanleikur í 8 þátt-
um, leikin af þýskum úrvalsleik-
urum og aðalhlutverkin af
WALTER JANSSEN,
CHARLOTTE ANDER
Lögin samin af
Jean Gilbert og
Walter Kollo.
Myndin sýnd bráðlega.
PBOTOS BÓNVJEL
Siemens — Schuchert
Endurbætt, áður góð,
nú betri.
Ávalt spegilgljáandi
gólf • fyrirhafnarlítið
Fæst hjá
raftækja-
sölum
Betril ódýrari! W
í sex ár hafa „BOSCH“ reið-
hjólalugtir verið einróma viður-
kendar bestar hjer á landi sem
annarsstaðar.
Þær hafa nú aftur verið end-
urbættar, en eru þrátt fyrir það
ódýrari en áður.
BOSCH
Heildsala. Smásala.i
Fálkinn.
K-A-R-L-M-A-N-N-A-S-K-Ó-R
Ótal teg. nýkomnar,
t. d. Sandalaskór, afar
liprir og ljettir, Flóka-
skór, Dansskór, Reið-
og Ferðastígvjel úr
leðri og gúmmíi.
Lárus 6. Lúðvígsson, skóverslun.
------ NÝJA BÍO ----------
Hennar hátiyn
Ástargyðjan.
Bráðskemtileg talmynd í 7 þátt-
um, fekin af Joe May. Aðalhlut-
verk:
KATHE VON NAGY og
FRANS LEDERER.
Sýnd um helgina.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«
■ ■
■ ■
■ B
i
; Hanst- oy vetrarviirnr j
:
■ ■
• eru nú teknar upp daglega. •
■ ■
i
: :
Vetrarkápur, Regnkápur, j
Leðurkápur, Vetrarsjöl,
: tvílit, bæði ullarsjöl og kamel- j
■ hörsjöl. Kasmírsjöl.
■ Drengjaföt bæði jakkaföt með •
i tvihneptu vesti og víðuin buxum j
j ög Matrosaföt með viðum buxum. j
■ Verðið er nú viðlika og var fyrir «
: stríð i
j S o f f í u b ú ð
S. Jóhannesdóttir.
Reykjavík og ísafirði
■ ■
| :
■ ■
Munið Herbertsprent. Bankastr.
Hljómmyndir.
Haustvörurnar komnar
Betristofuhúsgögn
í miklu úrvali eins og vanl er. —
Borðstofuhúsgögn
fyrir alla, 'dýr og ódýr i heil-
um settum og sjerstökum stykkjum, eins og
kaupandanum þóknast, körfustólar, hæginda-
stólar, mjög þægilegir og ódýrir eftir gæðum.
Bókahillur, stórar og smáar, sem ekki hafa
flust fyr. Legubekkir (dívanar) tvær tegundir
með verðmismun.
Svefnherbergishúsgögn
við allra hæfi. Barna-
rúm úr tré og járnrúm. Barnavöggur. — Kom-
móður vanalegar og smærri. Lampaborð. Reyk-
borð mikið úrval. Spilaborð 2 tegundir. Skrif-
borg og skrifborðsstólar. Barnastólar, 3 teg.
Krokketspil. Eldhúströppur og margt fleira, sem
ekki er hægt upp að telja.
Sendum gegn póstkröfu um alt land.
Húsgagnaverslun
Kristjáns Siggeirssonar
Laugaveg 13
Símnefni: Furniture.
m
AÐEINS ÞÚ. Þessi fjöruga og skeinti
------------lega mynd verður sýnd
bráðlega í Gamla Bíá. Robert Paul-
sen heitir aðalpersónau í myndinni.
Hann er alþektur fyrir skopleika
sönglög sín og nýtur ótrauðlegrar
hjálpar hjá leikkonunni Yvette, sem
semur textana við lögin hans. Hún
er ástfangin af honum og í raun og
veru eiskar hann hana líka, en hann
ei reikull i ráði og langar til að
reyna sig við æðri músik. í þessum
draumum sinum semur hann lögin
í skopleiknum, sem á að fara að
sýna, en lög hans bera þess merki
og vekja enga aðdáun. í leikhúsinu
er staddur vellauðugur maður van
Geldern ásamt dótur sinni Lily, sem
þráir alvarlega og þátiðlega músik
með básúnum og englasöng. Paulsen
á í deilu við ieikstjófann og af til-
viljun heyrir van Geldern á sam-
ræðu þeirra. Þegar dóttir hans kemst
að þessu, talar hún svo, um fyrir föð-
ur sínum, að hann ræður Paulsen
til þess að semja óperu, sem hann
vonar að græða peninga ó. Paulsen
og Lily verða brátt hrifin hvort af
öðru og s'ama kvöldið sem hann
heldur fyrstu sýningu A óperunni
opinbera þau trúlofun sína. óper-
an fer raunar alveg í handaskolum,
en litlu síðar giftast þau Paulsen og
Lily, en sama kvöldið situr Yvette,
leikkonan frá skopleikhúsinu grát-
andi heima hjá sjer. Hinn vellríki
van Geldern lætur reisa ákaflega í-
burðarmikið hús handa dóttur sinni
og manni hennar. í herbergi Paul-
sen eru sjálfsyngjandi næturgalar,
radíógrammófónn og ótal margt
fleira, sem á að „inponera1' tón-
skáldið. En mitt í öll.u þessu gleym-
ir skáldið að sinna konu sinni,
sem skyldi. Eftir nolkkurn tíma ætl-
ar van Geldern að halda veislu og
hýður til mörgu fólki, en enginn
kemur. Um kvöidið verðurPaulsen
reikað út og áður en hann veit af
er hann kominn að klúbbnum þar
sem gömlu fjelagarnir hans eru.
Hann fer þangað inn og kuningjar
hans fagna honum vel og láta sem
þeir viti ekki um ófarir hans i óper-
unni. Ákveður Paulsen nú að yfir-
gefa alt saman og taka til sinnar
gömlu iðju, þar sem hann var vel
metinn af öllum. Og það þarf auð-
vitað ekki að geta þess, að enginn
var fengnari þessari breytingu en
Yvette, gamla vinkonan lians.
----x----
HENNAR HÁTIGN Mynd þessi verð
ÁSTARGYÐGAN. ur sýnd i Nýja
---------------- Bió núna um
belgina. Af þeim útdrætti úr efni
myndarinnar, sem birtisl í 35. tölu-
blaði „Fálkans“, geta menn sjeð að
myndin er bráðskemtileg frá upp-
hafi til enda. Allir munu forvitnir
að vita, hvernig fer um veðmál Freds
bifreiðaeiganda, hvort honum tekst
að vinna stúlkuna, sem er tilefni
veðmálsins.
----x----
Aðstreymi hefir verið mikið að
nýlendusýningunni í París í sumar
en þó aldrei eins og 15. ágúst. Þann
dag komu 476.220 manns á sýning-
una.
----x----
Jackie Cooper (ekki Coogan) heit-
ir drengur, sem ljek nýlega í kvik-
mynd, sem blað eitt í Ameriku Ijet
taka. Þótti honum takast svo velj að
stóru kvikmyndafjelögin fóru að
gera honum samningatiiboð. Varð
Metro-Goldwin hlutskarpast og fjekk
drenginn til eins árs fyrir 15.000
dollara. í samningnum er áskiiið,
að Jackie skuli hafa leyfi til að leika
sjer á meðan. Nú er verið að semja
kvikmynd handa drengnnm að
leika í.
----x---