Fálkinn - 19.09.1931, Síða 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir
Edgar Wallace.
í dag ætla jeg aö segja ykkur
frá, livernig fátækur og foreldralaus
enskur drengur kom svo vel undir sig
fótunum, aö hann varð einna mest
iesni rithöfundur Englands og jafnvel
mest lesinn um allan heim. Fjórði
hluti allra bóka, sem seldar voru í
Englandi i fyrra, voru eftir hann
en jafnframt voru á sama ári leikin
eftir haun sex leikrit á leikhúsunum
i London. í Ameríku kemur út eftir
hann bók í hverjum mánuði og það
er talið, að miljón eintök af bókum
hans komi út á hverju ári. Frægð
hans er ekki gömul, þvi að fyrir
fimm árum fjekk hann ekki nema
lág ritlaun fyrir sögur sínar.
Edgar var níu ára þegar hann
misti foreldra sina og næsta ár var
hann á sveitinni. Þá tók góðviljaður
fisksali hann að sjer og tók liann
sjer í sonar stað, enda þótt hann
ætli tvo syni fyrir. Kjörsonurinn
varð sá, sem veitti fislcsalanum
mesta gleði, þvi að liinir drengirnir
drukku sig í hel á ungum aldri.
Edgar Wallace skrifar aðallega
lögreglusögur og hann fór ungur að
taka eftir aðferðum lögregiunnar er
hún var að komast fyrir glæpamál.
Þegar Edgar var tíu ára komst lumu
i kynni við glæpi í fyrsta sinn. Hann
kyntist þá manni, sem var stundum
að biðja hann.iun að hlaupa i næslu
búð og kaupa fyrir sig vindlinga;
maðurinn fjekk honum aitaf stóran
silfurpening, en svo átti Edgar að
skila afganginum í smápeningum á-
samt vindlingunum.
Edgctr sem blaðasali.
skeið að selja hlöð. Hann hafði
blaðahyllu sina uiidir gluggum eins
af heldri manna klúbbunum i
London, og í þá daga mun hann
ekki hafa grunað, að liann mundi
seinna verða forseti þessa sáma
klúbbs. Seinna fekk hann atvinnu i
prentsmiðju fyrir 5 shillinga kaup
á viku. Einu sinni ætlaði eigandinn
að liafa af honum kaupið að ástæðu-
lausu og þá fór Edgar samstundis
til dómstólanna og flutti mál sitt þar
sjálfur — og vann það. Hann var
þá 12 ára gamall.
Edgar eríndreki myntfalsarans.
Þegar þetta hafði endurtekið sig
nokkrum sinnum fór Edgar að
brjóta heilann um hvernig á þessu
stæði, og einn góðan veðurdag gerði
hann sjer lítið fyrir og fór með silf-
urpeninginn til lögregluþjóns í stað-
inn fyrir að fara með hann i búð-
ina og kaupa vindlingana, og spurði
hann hvort peningurinn væri fals-
aður. Lögregluþjóninn sá undir eins
að það var svo; maðurinn var tek-
inn fastur en dómarinn hrósaði
Edgar fyrir kænskuna og nafn hans
kom á prent í blöðunum í fyrsta
sinn.
Eins og mörg fleiri stórmenni
hafði Edgar það að atvinnu um eitl
Edgar talar máli sinu fgrir
rjettinum.
Nú gekk á ýmsu fyrir Edgar. Hann
bar út böggla fyrir fólk, seldi skó-
svertu, sólaði skó, vann í gúmmi-
gerð, varð vikadrengur á skipi og
loks gekk liann í herinn. Hann fjekk
rauðan einkennisbúning, byssu og
sverð og lærði hermannasiði. Gaml-
ir drykkjurútar í hernum reyndu að
koma honum til að drekka, og sögðu
honum, að bjórinn gerði menn
glaða. En hann liafði sjeð afleiðing-
ar ofdrykkjunnar og var altaf bind-
indismaður.
Á hermenskuárum sinum byrjaði
hann að skrifa. Hann skrifaði neð-
anmálssögu i blað og fjekk fyrir það
Fegurstu kvikmyndaleikkonur
heirasins nota hina ágætu
LIIX handsðpo.
XLTS 47-10
icmd
Lux handsápa er skilyrði til að fá
mjúka og fíngerða húð. Margar kvik-
myndaleikkonur nota hana til þess
að viðhalda fegurð sinni. Lux sápan
gefur frá sjer indælan ilm, freyðir
vel, mýkir húðina, og gerir hana
hvíta og fallega.
„Stúlka, sem hefir sljetta og fallega
húð, þarf ekki að óttast hið hvassa
auga ljósmyndavjelarinnar. Jafnvel
hin minsta misfella í húðinni fær
ekki dulist fyrir hinum næmu aug-
um ljósmyndaglersins. Lux handsáp
an er nauðsynleg hjálp til þess að
halda húðinni sljettri og fallegri“,
segir hin heimsfræga talmyndaleik-
kona
Útsöluverð
50 aura.
LEVER BROTHERS LIMITED. PORT SUNLIGHT. ENGLAND.
25 krónur á viku. Þetta voru all-
miklir peningar, fanst honum, —-
svo miklir áð hann gæti hætt her-
menskunni. í Búastriðinu komst
hann í samband við stórblöðin í
London; hann var í þessu stríði og
ritskoðunin var mjög ströng, en
livernig sein í því lá, gal Edgar altaf
komið frá sjer nýjustu stórfrjett-
um af stríðsviðburðunum, og beitti
allskonar brögðum til þess. Eftir
ófriðinn fór hann í langferðalög
og safnaði reynslu og auði. Hann
fjekk efni í skáldsögu hvar sem
hann kom.
Edgar Wallace.
Wallace starfar ávalt án utan að
komandi aðstoðar: hann þarf ekki
að „fara í smiðju“ til annara, því
að alt virðist liggja opið fyrir hon-
um, og hann ritar gotl mál, og
éinkar eðlilegt. Hann skrifar 80.000
orða skáldsögu á þremur sólar- !
hringum, leikrit á læpum fjórum ■
dögum og biðji einhver útgefandi
hann um smásögu, 2—3 þúsund orð,
])á er hún tilbúin á 2—3 klukku- j
stundum.
Þannig getur aðeins sá mapur |
starfað, sem hefir höfundargáfu, j
hugvilssemi og þrek til þéss'að geta
lagt mikið að sjer. Þetta eru ástæð- i
urnar til þess, að Edgar Wallace 5
liefir getað látið jafnmikið éftir sig 5
liggja og raun ber vitni um, og getað
unnið verk sitl svo vel, að allir
vilja kaupa það. Hann hefir mörg
hundruð þúsund króna tekjur á ári
af bókum sínum, nú orðið, og er orð-
inn vellauðugur maður. En þrátt fyr-
ir það hve gæfan hefir hossað hon-
um hátt í lífinu, þá er hann eigi að
síður einkar lítillátur niaður og
yfirlætislaus. Hann er altaf í góðu
skapi, og hefir altaf gamanyrði á
reiðum höndum. Og hjálpsemi hans,
við þá, sem bágt eiga, er við brugð-
ið.
Nú þekkirðu víst manninn, sem
þú sjerð svo oft getið i blöðunum.
Og ef til vill hefir þú sjeð nafnið
hans á mörgum neðanmálssögum,
m. a. þeirri, sem er í „Fálkanum“
núna. Og ef til vill hefir þú ein-
hverntiniá sjeð kvikmynd eftir hann
í Bíó. Og af dæmi hans getur þú
fengið svar við spurningunni um
það, hvernig þú átt að komast
áfram í heiminum. Svarið er þetta:
Það er iðnin og ástundiinarsemin,
sem hjálpar þjer best.
Tóta systir.
Kaþólska trúboðið hefir keypt lóð
undir íbúðarhús, skóla, spítala og
kirkju í Þórshöfn í Færeyjum og
ætlar nú að fara að hefja trúboðs-
starfsemi þar. Danskur prestur hefir
orðið til þess, að vara almenning
við þessu trúboði.
----x----
M á I n i n g a-
vörur
Veggfóður
Landsins stœrsta úrval.
>MÁLARINN«
Seykjirík.