Fálkinn - 21.11.1931, Blaðsíða 10
10
P Á L K I N N
$v/\nA
^MJORUKí
Er búið til úr bestu efnum sem til
eru. Berið það saman við annað
smjörlíki og notið síðan það sem
yður líkar best.
Hiimvomit
S VEGGFÓBUR
Landsins besta úrval.
BRVN J A
Reykiavík
IV I K U R I T I Ð j
8 kemur út einu sinni i viku
8 32 bls. i senn. Verð 35 aurar 8
Flytur spennandi framhalds-
sögur eftir þekta höfunda.
8 Tekið á móti áskrifendum á
afgr. Morgunbl. — Sími 500.
2 3 h e f t i útkomin.
L
Z - E - B - O
gerir ofna og
eldvjelar skín-
andi fallegar.
Hraðvirkur. Gljá-
inn dimmur og
blæfallegur.
Fæst í öllum verslunum.
Húsmóðirin og kreppan.
í nokkrum amerikönskum bæj-
um hafa verið haldnar hagskýrslur
um, hve mikið kvenfólkið verslaði
í búðum og hve mikið karlmenn-
irnir. Og reyndin varð sú, að kven-
fólkið varð miklu þyngra á metun-
um. Þó að ekki getið verið um al-
gjöran samanburð að ræða þar og
hjer, er svo mikið víst, að það er
kvenfólkið, sem annast að mestu
leyti innkaup til heimilisþarfa hjer
á landi og undir hagsýni húsmóð-
urinnar er það komið hvernig því
fje er varið, sem „gengur í heimil-
ið“, sem kallað er.
Tveir liðir eru iangstærstir í inn-
kaupum húsmóðurinnar: matarföng-
in og fatnaðurinn á fjölskylduna.
fslenskar húsmæður eru yfirleitt
ekki eyðslusamar, enda hafa flestar
þeirra ekki úr miklu að spila. Óþörf
eyðsla þeirra er einkum í því fólg-
in, að þær kunna margar hverjar
ekki svo vel til matargerðar sem
skyldi og því verður maturinn ef til
vill óþarflega ódrjúgur i meðförun-
um, eða kemur ekki að því gagni
sem skyldi. Og ef til vill eru þær
ekki nægilega fróðar um næringar-
gildi einstakra matvælategunda og
kaupa stundum dýrt fæðu, sem þær
álíta að sje holl og næringarefna-
rík en ganga fram hjá annari, sem
er miklu ódýrari, en um leið nær-
ingarmeiri og getur verið eins ljúf-
feng eða ljúffengari, með rjettri að-
ferð.
— En það er annað atxúði, sem
vert er að minnast á, á þessum tím-
um, sem nú standa yfir. Það er við-
urkent, að sem mest þurfi að tak-
marka innflutning erlendrar vöru.
Og það mun verða viðurkent áður
en langt um líður, að íslendingar
geta aldrei orðiö efnalega sjálfstæö
þjóð, ef þeir nola sjer ekki betur
eigin afurðir, en þeir gera nú. Hjer
riður mikið á, að húsmóðirin sje
vel á verði, þvi að tnginn getur
htynt að innlendu framleiðslunni,
ef hún ekki getur það.
Malvælaframleiðsla ísiendinga er að
vísu einhæf, þar sem þeir fi’am-
leiða ekki kornmeti. En landið fram-
leiðir fisk, kjöt, mjólk, smjör og aðr-
ar afurðir dýrarikisins í svo stórum
mæli, að allur innflutningur tit
landsins er greiddur með þessum af-
urðum. Og þetta sem að framan er
lalið er nú óneitanlega það, sem
maðurinn nærist einkum á. Fyrsta
boðorð húsfreyjunnar verður að
vera það, að kaupa alls ekki útlenda
matvöru, þar sem hægt er að fá inn-
lenda. útienda niðursuðan á að vera
landræk, hvort heldur er mjólk eða
fiskur. Útlendu álagsrjettanna þarf
enginn að sakna, því að ef húsmóð-
irin er kunnáttusöm er henni i lófa
lagið, að hafa jafnan til bragðgott
álag úr íslensku efni. Og það er
hægl, að draga stórum úr ýmsri
kornmetisnotkun með því að auka
notkun þess, sem innlent fæst. Brauð-
átið er eflaust óþarflega mikið og
eins, er vist um grautarát. Það er
sjaldgæft að fisksoð sje notað til
súpugerðar hjer á landi, soðinu er
fleygt eins og hverju öðru óæti, þó
að það sje ljúffengl í súpur, ef fisk-
urinn er góður og þveginn nægilega
lega vel áður en hann er soðinn. —
Innlent fataefni og prjón þykir
þykir ekki eins fullkomið og það úl-
lenda, þó að sannanlegt sje, að þær
tegundir, sem framleiddar eru hjer
jafnist fyllilega á við sömu tegundir
útlendar. En vitanlega er ekki inn-
lcndi iðnaðurinn svo margbreyttur,
að hann geti fulnægl allskonar dutl-
ungum, sem fólk kann að hafa á tak-
teinuni. Það verður hann aldrei. En
mesl er um það verl, að það er hægt
að fá ótrúlega mikið til fatnaðar
innanlands, og einmitt lil aðalfatn-
aðarins.
Um inntendan iðnað í öðrum
greinum er því miður ekki um auð-
ugan garð að gresja. En þó er það
ýmislegt, er að er gáð, sem hægt er
að fá' innlent — eins gott og betra
en það útlenda.
Húsmóðirin getur með athugun
og góðum vilja lagt stór vopn til
baráttunnar við kreppuna, með því
að spyrja jafnan um innlendu fram-
leiðsluna fyrst og velja hana, svo
framarlega sem innlenda varan
slenst samanburð við hina, hvað
verð og gæði snertir. Og jafnvel þó
hún geri það ekki. íslenskar hús-
mæður geta ráðið örlögum miljóna
króna — hvorl þær verða i landinu
eða hvort þær fara í hit útlenda
framleiðandans. Á erfiðum tímum
lærist þjóðunum leiðin til að forð-
ast erfiðu timana næst, og á þann
hátt verða þeir lil gagns. Ef menn
njóta ekki þessa eina gagns, sem
sem þeir hafa í för með sjer, standa
þeir enn ver að vígi, þegar hungur-
voðann ber að dyruin næst. Þeir
hafa liagað sjer eins og óvitar, sem
ekki verður við bjargað.
Innlenda framleiðslan á að vera
fyrir öllu. Hún hefir skilyrðislaus-
an forgöngurjett. Sje hún svift hon-
um þá sviftir þjóðin sig um leið
efnalegu sjálfstæði sínu.
NORSKE KVINNERS heitir fje-
SANITATSFORENING lagsskapur er
--------------------- konur í Nor-
egi stofnuðu til fyrir allmörgum ár-
um. Fjelag þetta heitir sjer einkum
fyrir auknum þrifnaði og baráttu
gegn sjúkdómsböli, og þá sjerstak-
lega gegn berklaveiki, safnar fje til
þess að styrkja bágstadda er sjúk-
dóma ber að garði hjá þeim, útbýtir
rúmfatnaði og því um líkt. í sam-
bandinu eru nú 95.000 konui- eh fje-
lagsdeildirnar eru 670. Heldur sam-
bandið uppi um 100 hjálparstöðv-
um og hefir mentað um 1000 hjúkr-
unarkonur, sem starfa fyrir það
víðsvegar um landið.
Eins og sjá má er starfsemi þessa
fjelags eigi ósvipað starfi hjúkrun-
arfjelagsins „Líkn“ í Reykjavík. En
væri það ekki athugandi, hvort ekki
væri hægt að koma upp landsfjelagi,
með deildum í öllum kaupstöðum
landsins og stærri kauptúnum, svo
og í þjettbýlum sveitum. Enguin get-
ur dulist að-verkefnið er meira en
nóg og engum vafa er það bundið,
að svona fjelagsskapur gæti komið
miklu góðu til leiðar.
Fræðslustarfsemi gæti svona fje-
lag einnig innt af hendi í ríkum
mæli, einkum viðvíkjandi almenn-
um þrifnaði en jafnframt um með-
Til daglegrar notkunar:
* „Sirius“ stjörnukakó. u
fj 3 Gætið vörumerkisins. n
■■»“■■■«■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■ ■■■■■■■■ ■■■■»•■■
; M á I n i n g a-
i
vðrur
Veggfóður
Landsins stærata úrval.
Umálarinn-
Reykjarik.
ferð einfaldra sjúkdóma, matarræði
sjúklinga og annað því skylt. Með
öflugu starfi fjelagsins gæti það orð-
ið til ómetanlegra nota og kvenþjóð-
inni til sóma..