Fálkinn - 09.04.1932, Page 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir
Gátur og heilabrot.
1. Jeg er fjórum árum eldri en
bróðir minn og hann er átta árum
yngri en systir mín. Hún er helmingi
yngri en móðir mín, en aldur
henriar er % af aldri föður mins
Og föður minn vantar 58 ár á, að
vera eins gamall og við öll hin er-
um til samans. Geturðu nú sagl
injer hvað gamall jeg er?
2. Pjetur á tvöfalt fleiri bræður
en systur og Anna systir hans á
(irefalt l'leiri hræður en systur.
Hvað eru bræðurnir margir og
systurnar margar?
3. Jeg veiddi fisk hjerna um dag-
inn. Hausinn á honum var 9 cm. á
lengd. Sporðurinn var jafnlangur og
hausinn og helmingurinn af búkn-
um samanlagt og búkurinn jafnlang-
ur og haus og sporður samanlagt.
Hvað var fiskurinn langur allur?
(Ráðningarnar finnið þið á öðrum
stað í blaðinu, en þið megið ekki
líta á þær, fyr en þið hafið reiknað
dæmin sjálf).
Geiiir þú gert það?
Haltu blýanti milli þumalfingr-
anna, eins og sýnt er hjerna á fremri
myndinni. Svo áttu að hreyfa hend-
urnar þannig, að blýanturinn verði
eins og sýnt er á aftari myndinni,
án þess að missa hann úr höndun-
um.
Haltu fingrunum vei saman og
beygðu þá hvorn yfir annan, þann-
ig að fingurnir á hægri hendi fari
yfir fingurna á vinstri. Vinstri
þumalfingurinn ' fer fyrst yfir og
síðan undir þumalfingur hægri
handar.
Pegar þú hefir gert þetta nokkr-
um sinnum ertu orðinn svo fljótur
Ilvað var í tóma eIdspltustokknuiri?,
að því, að kunningjar þínir sjá alls
ckki hvernig þú ferð. að þvi, þó að
þú lcikir listina hvað eftir annað
fyrir augunum á þeim.
Haltu fram eldspílustokk og sýndu
áhorfendunum að hann er tómur.
Lokaðu honum svo og láttu kunn-
ingjana heyra skrölta í eldspítum í
honum, og þegar þú opnar hann
sjá Jjeir þar fjórar eða fimm spítur.
Hvernig er farið að þessu?
Það er gert þannig, að ]iú stingur
áður eldspitunum undir lokið, eins
og sýnt er með punktalínunum á
myndinni.
Dgrmœtt epli.
Hjerna á myndinni sjerðu epli —
rannsakaðu það vel — og þú kemst
að raun um, að enginn hefir snert
á því áður. Jæja. Skerðu það nú í
sundur, einn, tveir, þrír, — og þarna
liggur tieyringur inni í því.
Hvernig stendur nú á þessu?
Jú, sjáðu til. sjáðu til. Jeg hefi
l'esl tíeyringinn með vaxi eða steríni
á blaðið á hnífnum sem jeg notaði,
og enginn tók eftir því, vegna þess
að jeg hjelt hnifnum þannig, að tí-
eyringurinn sneri að mjer. Svo skar
jeg eplið sundur, vitanlega með
hluta blaðsins, sem tíeyringurinn
var ekki á. Þegar eplið fór að opn-
asl færði jeg blaðið þannig til, að
tieyringurinn fór inn i sárið og svo
þrýsti jeg honum föstum á eplið.
Hringbragðið.
Þetta er gamalt bragð sem altaf er
gaman að. Fljótt á litið er það ljett
en i rauninni er það talsvert vanda-
samt.
Þú heldur vísifingrunum eins og
sýnt er á el'stu myndinni og hreyfir
þá i hring um hvorn annan. Svo
lítið beri á „lokar“ þú þumal- og
vísifingrum saman, eins og sýnt er
á annari myndinni og um leið og
maður setur vísifingur á þumalfing-
ur hinnar handarinnar lætur mað-
ur hringinn detta á borðið. — Það
HINIR YNDÆLU
SORKAR YÐAR
EIGA NKILID^
PESSA
SJERSTÖKU
UMHYGGJU
v
v
Þvoiö silkisokka
yðar daglega úr
LUX. HiÖ hreina
mjúka lö'Sur varÖ-
veitir þá. Jafnvel hinir
fíngeröustu og viökvæ-
mustu silkisokkar endast von úr
viti, sjeu þeir þvegnir daglegá
úr LUX.
Litlir pakkar 0.30
Stórir pakkar 0.60
LUX heldur flíkum enn lengur sem mjjum
M-LX 37 1 -047A IC
LEVER BROTHEKS UMlTliD, PORT SUNUGHT, UNCI.AND
munu fáir leika þetta eftir. Hafirðu
ekki hring getur þú notað band-
spotta. sem þú bindur saman.
Felumgnd.
lljerna sjerðu mynd af úlfinum,
sem át hana Rauðhettu og hana
ömmu hennar. Þær eru þarna á
myndinni líka. Geturðu fundið jiær?
Frú Sara Wornack í Texas hefir
eignast 34 börn á 30 áruin. Þríbura
sex sinnuin fjórbura einu sinni og
loks fimmbura, Þetta er ættgengt því
að móðir hennar hafði eignast 18
börn áður en hún var orðin þrítug.
Frú Wornack er 45 ára en giftisl 15
ára.
Lausn d felnmynd.
LAUSN Á GÁTUNUM.
1. Jeg er 20 ára, bróðir minn 22
ára, systir mín 30 ára, móðir mín
00 ára og faðir minn 80 ára.
2. Niu synir og fjórar dætur.
3. Hausinn 9 cm., búkurinn 36 og
sporðurinn 27 cm. — alls 72 cm.
Kreppan í Ameríku virðist ætla
að hafa áhrif á Olympsleikina, sem
ekki er furða. Þannig hefir orðið
52.468 dollara halli á vetrarleikjun-
um í Lake Placid, að því er nýjar
fregnir herma.
----x----
Skriða fjell nýlega á gistihús i
Ana, sem er smábær skamt frá
Trapesunt. Tók liún gistihúsið og
drap sex manns.
KENNARINN.
Ef jeg gef þjer 16 hnetur og segi
þjer að skifta þeim milli þin og hans
litia bróður jríns, hvað margar fær
hann þá.
Jónsi: — llann fær sex.
Hvaða bull. Geturðu ekki talið,
drengur.
— Jú, jeg get talið, en hann litli
bróðir getur þa'ð ekki,