Fálkinn - 13.07.1935, Qupperneq 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
fí itstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvœmdastj.: Svavar Hjaltested.
AÖalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sínii 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—0.
Skrifstofa i Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaði'ð keinur út livern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.50 á niánuði;
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverö: 20 aura millimeter.
Herbertsprent prentaði.
Skraddarabankar.
Á hún að segja honum það? II.
All jietta hjal um „ófyrirgelanlega
synd“ hefir gert óendanlega mikið
tjón. Það er ekki víxlsporið sem
veldur ævarandi tjóni heldur er það
framhaldið í villunni og sivaxaxndi
löngun til að gera það serri rangt er.
Ef þú ert innilega hryggur yfir
því, sem þjer hefir orðið á, en
ekki aðeins óttasleginn við að þa'ð
komist upp og verði á almennings
vitorði, og ef þú hefir snúið frá
villu þíns vegar, þá hefirðu sið-
ferðislegan rjett til þess að telja þig
mann með inönnum.
Kenningin og viðkvæðið um
„vængbrotna fuglinn“ er siðspili-
andi. Við höfum öll syndgað —
það segir að riíinsta kosti biblían
okkur, svo að þeirra hluta vegna
þarf ekki að minna okkur á það.
Við vitum það.
Mest áríðandi skilyrði lil þess að
geta haldið lífinu áfram á rjettan
hátt, er að iðrast og gera sjer ljóst
hvar maður stendur og verða á
þeim grundvelli fær um að byrja
það að nýju, „með angistarlausri
sannfæringu bæði gagnvart guði og
mönnum“.
Hvað mann þinn eðá mannsefni
áhrærir þá er hann ekki skriftafað-
ir þinn.
Þú verður að skera úr því sjálf,
hvort þú ert verðug til að verða
konan hans. Og ef þú vantreystir
því, að hann muni verða ánægður
með þig eins og þú ert og þú álítur
sjálfa l)ig vera, þá er þjer betra
að láta hann róa.
Neyttu altaf heilbrigðrar skyn-
semi og vertu rjettlát gagnvart sjálfn
þjer, því að annars geturðu ekki
verið rjettlát gagnvart öðrum. Það
er mjög auðvelt að veita sjer það
óhóf að dekra við sitl eigið sam-
viskubit; en sjúklega vansköpuð og
heimsk samviska getur gert alvcg
eins mikið ógagn eins og alger
vöntun á samvisku.
Berðu höfuðið hátt. Segðu frem-
ur sannleikann en lygina, en mundu
samt að stundum getur verið svo
ástatt, að fremsta skylda manns er
að þegja.
En að ímynda sjer, að þú sjert
útskúfuð og vonlaus um aldur og
æfi, er versta ímyndunarveikin, sem
þú getur fengið.
Og vertu viss um, að ef þú ert
nú i hjarta þínu örugg um, að þú
hefir fyrir fult og alt sagt skilið við
fyrri víxlspor og heimskupör, þá
Samgöngubót á Faxaflóa.
Hið nýja skip fjelagsins h.f.
Skallagrímur i Borgarnesi, „Laxfoss'1
kom hingað fyrir tveimur dögum
og fór fyrstu ferð sína í Borgar-
nes í gær. Var skipið aðeins fimm
sólarhringa frá Álaborg til Vest-
mannaeyja, þrátt fyrir andbyri, en
til Vestmannaeyja hafði það farm
og tafðisl þar á annan sólarhring.
Hefir skipið þegar l'engið eldskírn
Ægis og reyndist hið besta, i út-
hafsöldunum, svo að væntanlega
verður þvi ekki skotaskuld úr þvi,
að sigrast á gjálpinni í Faxaflóa.
„Laxfoss“, sem nú tekur við ferð-
um „Suðurlands" er 125 feta lang-
ur, 22 feta breiður, en lestar 300
smálestir. Er það með dieselvjel,
720 hestafla. Með skipinu geta far-
ið 250 farþegar innan flóa, en
svefnklefar eru þar fyrir 33 og
sjúkraklefi. Á þilfari er pláss fyrir
5 bifreiðar, svo að fólk sem ætlar
sjer að ferðast nor'ður eða vestur
og á bifreið sjálft, getur framvegis
losnað við Hvalfjarðarleiðina og
farið sjóveg með bílinn sinn í
Borgarnes og ekið ]>aðan. Verður
þá hægt að komast alla leið tii
Akureyrar á einum degi, þegar skip-
i'ð fer hjeðan sncmma árdegis.
„Laxfoss“ hefir kostað 290 þúsund
krónur.
Suðurlandið hællir nú Faxaflóa-
ferðum og hefir verið selt. En
skipsmenn af þvi fara á nýja skip-
ið, með hin gamalkunna sægarp
Pjetur Ingjaldsson í broddi fylk-
ingar, sem er langsamlega methaf-
inn í Faxaflóasiglingum og verð-
ur eflaust um langan aldur. Þó að
þörf reyndist á að endurnýja „Suð-
urlandið“ reyndist engin þörf á að
endurnýja Pjetur; hann er jafnan
síungur og sínýr. Má fagna þeirri
miklu samgöngubót, sem fengin er
á Borgarnesleiðinni með komu hins
nýja skips, sem eflaust verður íil
þess að auka stórum ferðalög i
Borgartjörð og verða merkur liður
í samgöngunum nor'ður i land og
vestur um Snæfellsnes.
I>aó mun vera sjaldgæft afí tvíburar nái jafn háum aldri oc/
þær systurnar Gnðlaug og Ragnheiður Guðmundsdætur. Þær
urðu sem sje áttræðar 0. þ. m. Guðlaug (til vinstri) á heima
á Bókhlöðustíg 11, en Ragnheiður á Brekkustíg 3 B.
getur og mun ástin halda þjer
hreinni og heilbrigðri í framtíðinni.
Því að svo vissulega sein mannleg
synd er mannleg, þá er guðdómleg
fyrirgefning guðdómleg.
Frank Crane.
PanamashurOurinn
08 strfMættan.
Eitt stórblað í New York hefir haf-
ið máls á atriði, sem vakið liefir
feikna umtal í Bandarikjunum. Seg-
ir blaðið í grein, að nokkrir menn,
sem eigi hika við að leggja líf sitt
i hæltu geti eyðilagt Panamaskurð-
inn á tólf tímum. Blaðið bendir á
að fjölda margir Japanar sjeu bú-
settir með fram skurðinum og dreg-
ur engar dulur á, við hverju megi
búast ef styrjöld verði milli Banda-
ríkjanna og Japana.
Svo sem tuttugu mönnum ætti að
vera innanhandar að skemma skurð-
irin svo á einni nóttu, að hann yrði
ónothæfur i marga mánuði. Þeir gætu
með dynamiti ey'ðilagt vatnsdælivjel-
arnar og vatnsþrýstivjelarnar og gert
stífluútbúnaðinn í skurðinum ónot-
hæfan. Þeir gætu eitrað vatnið og
sprent þurkvíarnar við Balbao í
loft upp og sprengt kletta ofan í
skurðinn, þar sem brattast er að
honum.
Oddur Björnsson prentsmiðju-
eigandi verður sjötugur 18. júlí.
Þorsteinn Hjálmarsson.
Á tveim síðustu mánuðum hefir
Þorsteinn HjálmarssOri frá Ár-
mann sett 3 ný bringusundsmet, á
200 m, tími 3 mín. 08,0 sek og 400
m„ timi 6 mín. 48,0 sek. Éldn
metin á þessum vegalengdum átti
Þórður Guðmundsson, Ægi, 200 m.
3 min. 10,8 sek. og 400 m., 7 mín.
02,7 sek. En þriðja met Þorsteins
er á 500 m„ timi 8 miri. 37,4 sek.
Iildra metið átti Jón Ingi Guð-
mundsson, Ægi, á 9 mín. 01,0 sek.,
Hvað gera allir Jiessir Japanar í
nágrenni við skurðinn? spyr blaðið.
Sumir þeirra þykjast hafa „rakara-
stofur“ en þar kemur ekki nokkur
íuaður til þess að láta raka sig eða
klippa. Aðrir liafa skyrtusaumastof-
ur en þar er engin skyrta saumuö.
Sumir hafa veitingahús, en þar er
ekki seldur nokkur matarbiti. Suinir
þykjast stunda veiðar i skurðinum,
en ]iað eru engir Önglar á færunum
þeirra. Þeir eru að mæla dýpið!
N ráðherra er staddur austur við
Ölfusá og spókar sig á hlaðinu.
Bóndi kemur lil hans, teymandi
hestinn sinn og segir: — Iieyrðu
þarna manni, haltu snöggvast í
hestinn minn meðan jeg skrepp inn
í kaupfélagið.
— Viti'ð þjer að jeg er ráðherr-
ann, svarar hinn og hnyklar brún-
irnar.
— Jæja, ertu ráðherrann. Jeg
ætla nú að treysta þvi að þú stelir
ekki honum Mósa minuin samt.