Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1935, Blaðsíða 7

Fálkinn - 13.07.1935, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 Jeg var í svo ömurlegu skapi, að jeg liefði farið að gráta hefði jeg setið þegjandi áfram. Og það liefði verið hneysa; að gráta fyrir augunum á kven- manni, sem ekki grjet sjálf. Jeg ákvað að ávarpa hana. „Hver liefir barið þig?“ spurði jeg. Jeg gat ekki í svip- inn fundið neina hyggilegri eða samúðarfyllri spurningu. „Pasjka!“ svaraði hún hátt. „Hver er það?“ „Unnustinn minn .... hak- ari . .. . “ „Ber hann þig oft?“ Og alt í einu sneri hún sjer að mjer og fór að segja frá; frá Pasjka og sambúðinni þeirra. Hún var portkona, Pasjka var bakari, hann var með rauð- brúnt yfirskegg og spilaði ágæt- lega á harmoniku. Hann kom til liennar í „húsið“ og henni leist vel á hann vegna þess að hann var svo snyrtilega til fara og lireinlegur. Hann var í nær- fötum, sem lilutu að hafa kost- að fimtán rúblur og. á skóm með liælum. Hún varð ástfang- in af honum og liann fór að hafa „viðskifti“ við hana; þau voru i því fólgin, að hann tók alla peningana hennar sem hún l'jekk hjá öðrum gestum fyrir sælgæti, og drakk sig fuilaii fyrir þá. Hann harði liana lika, en það gerði ekkert til; en upp á síðkastið var hann farinn að dingla við aðrar stúlkur og það meira að segja fyrir augunum á lienni .... „Eins og það særi mig ekki? Jeg er ekki verri en hinar. En hann tekur þær fram yfir mig, sláninn. í þrjú ár hefi jeg ein- göngu lifað og starfað fyrir hann og þegar jeg kom lieim til hans fyrir skömnni þá sat hann þar drukkinn með Dunju. Jeg sagði við liann: Þorparinn þinn, skílmennið! Þá harði hann mig, hárreytti mig .... en það gerði ekkerl til! En nú er alt úti, hann hefir rifið garmana mína i tætlur og eins höfuðsjalið, það var alveg nýtt, jeg hafði borgað finnn rúhlur fyrir það .... Herra minn trúr! Hvað á jeg nú að gera?“ spurði liún alt i einu, með angurværri og örvæntandi röddu. Vindurinn ýlfraði, h.ann fór sívaxandi. Tennurnar glömruðu í munninum á mjer, hún skalf af kulda og færði sig svo nærri mjer að jeg gat sjeð i starandi augun á henni. „Þið karlmennirnir eruð mikl- ir þorparar. Jeg skyldi með glöðu geði merja ykkur alla í kássu, án nokkurrar miskunn- ar! Fyrst i stað eruð þið fínir og auðmjúkir eins og lnindar, maður trúir ykkur, en innan skamms er úti um það, og þið troðið okkur í skarnið .... þorpararnir!“ Hún notaði hin margvisleg- ustu skalnmaryrði en í reiði- lestri hennar var hvorki hatur eða gremja til þorparanna. Hún talaði rólega og ofsalaust og röddin var angurvær. Og samt sem áður liafði þetta dýpri áhrif á mig en allar liin- ar íallegu og sannfærandi ræð- ur og bækur, sem jeg hafði heyrt og lesið áður, og þetta kom af því, að ástríður liins deyjandi eru miklu eðlilegri og sterkari en hin nákvæmasta og listfengasta lýsing á dauðanum. Jeg var í mesta angurskapi, en sannast að segja meira vegna kuldans en af frásögn vinkonu minnar og jeg rak upp lága stunu milli glamrandi tann- anna. í sama bili snertu tvær kald- ar hendur mig — önnur kom við hálsinn og hin fálmaði eftir andlitinu á mjer, og samtímis spurði hún skjálfandi og með viðkvæmni: „Hvað gengur að þjer?“ Það var eins og einliver ann- ar væri að spyrja mig, en ekki Natasja, sem óskaði öllum karl- mönnum í ystu myrkur; en að vörmu spori spurði lnin aftur, fljótmælt og áköf: „Hvað gengur að þjer? Er þjer kalt? Veslingurinn, situr þú þarna og steinþegir eins og ugla. Þú hefðir .getað sagt mjer fyrir löngu að þjer væiá kált .... Legstu niður í hátinn og svo legst jeg við hliðina á þjer .... Svona .... Nú tekurðu báðum höndum utan um mig .... fast .... svona, nú fer þjer að hlýna . . . . og á eftir þrýst- um við bökunum saman .... og svo líður nóttin .... Hef- irðu verið rekinn úr vistinni fyrir óreglu .... Það er sama!“ Hún var að hugga mig! .... Hún var að tala í mig kjark! Þrisvar sinnum bölvaður sje jeg! .... Hvílík kaldhæðni! Hugsið yður! I þá daga gerði jeg mjer i alvöru áhyggjur út af örlögum manna, dreymdi um endurbætur á þjóðfjelagsskip- uninni, um stjórnarfarslegar byltingar, las ýmiskonar djöf- ullega flóknar bækur, sem vissu lega voru öllum óskiljanlegar og höfundinum líka, og. reyndi að gera úr mjer „afar þarfan mann í þjóðfjelaginu“. Jeg hjelt líka, að mjer hefði þegar tek- ist að nokkru leyti að ná þessu marki, að minsta kosti var jeg kominn það langl áleiðis að jeg taldi tilveru mína á jörðinni óhjákvæmilegt atriði i niann- kynssögunni, og nú hlýjaði þessi skækja mjer með likama sínum, ógæfusöm vera, sem áUi livergi atlivarf í lífinu, sem jeg ekki hafði getað hjálpað fyr en hún hjálpaði mjer, og sem jeg í rauninni gat alls ekki hjálpað. Æ, hve nærri lá mjer við að halda, að þetta væri alt draum- ur, flónslegur, raunalegur draumur .... En æ, jeg gat ekki haldið þetta meðan kaldir regndrop- FRÆGASTA DERBY-HLAUP HEIMSINS kölluðu Englendingar hlaupiíS, sem fram fór nútia nýlega á hinni gamajkunnu veðhlaupabraut í Ep- som. Var þar komið saman úrval af hestum úr öllum áttum, og sem áhorfendur hundruS þúsunda af fólki, þar á meSal fjöldi úr fjar- lægum löndum. Hjer aS ofan sjást tveir hestu hestarnir, sem indverski furstinn Aga Khan ljet taka þáll í hlaupinu. Hann er, sem stendur, mesti hestamaSur heimsins og á 37- hesta, sem taldir eru svo góSir, aS þeir geti gert sjer von um sigur á hvaSa veShlaupabraut í heimi sem er. arnir dundu á mjer, meðan heitt konubrjóst þrýstist upp að mjer, meðan andardráttur henn ar ljek um andlitið á mjer, lilýr og með ofurlitlum vodlcaþef . . og samt óendanlcga lífsglöð . . Vindurinn ýlfraði og stundi, dengdi regninu á bátinn, gutl- aði í öldunum, og við tvö sem lijúfruðum okkur saman skulf- um af kulda .... Alt þetta var óendanlega virkilegt, ennþá hef- ir ekki nokkurn mann dreymt draum, sem var eins illur og kveljandi og raunveran. Og Natasja talaði, viðkvæm og full af hluttekningu, eins og aðeins konan getur verið. Við alúðarorð hennar kviknaði lítið ljós inni í mjer og breiddist út að lijarta mínu. Tárin flóðu úr augum mínum o,g með þeim alt slæmt og sárt og heimskulegt, sem hafði her- tekið sálu mína þessa nótt .... Og Natasja sagði: „Svona, góði, gráttu nú ekki lengur! Guð gerir alla hluti vel, þú færð eflaust vinnu aftur . . það fer alt vel Hún kysti mig marga, ótelj- andi brennlieita kossa .... Það voru fyrstu kossarnir af konumunni, sem jeg fjekk á æf- inni og einnig þeir bestu; þeir siðari hafa kostað mig óend- anlega mikið en ekki gefið mjer neitt. „Svona, gráttu nú ekki, bján- inn minn! Á morgun slcal jeg áreiðanlega greiða eitlivað fyrir þjer“. Jeg heyrði þetta lága, sannfærandi hvísl eins og i draumi. Við lágum þarna í föstum FRÚ BEItTHA DORPH, hinn frægi danski málari, varð sextug fyrir skömmu. Er hún fædd í Kaupmannahöfn og eftir að hún hafði lokið hámi við dahska mál- araskóla og aðra settist hún að í Danmörku og hefir alið þar aldur sinn síðan. Síðan 1907 hefir hún verið meðíimur í aðalstjórn Lista- háskólans danska. Ennfremur er lnin formaður Teikni- og Iðnskóla kvenna. En sjergrein hennar sem málara eru andlitsmyndir. faðmlögum uns fór að birta af degi .... Og þegar bjart var orðið fór- um við inn í bæinn .... Þar kvöddumst við alúðlega og hitt- ustum aldrei framar, þó að jeg leitaði í hálft ár að þessari góðu Natösju sem jeg hafði dvalið með liina einkennilegu nótt . . Sje hún dauð hve gott væri það ekki fyrir hana: þá hvíl í friði. Og ef hún lifir enn: Friður sje með sálu hennar, Mætti hún aldrei eignast með- vitund um óvirðing sína; þvi að það væri einskisverð og á- hrifalaus þjáning í lífi hennar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.