Fálkinn - 19.10.1935, Síða 3
F Á L K 1 N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Yilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðatskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Simi 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
BlaðiS kemur út hvern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði;
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millimeter.
Herbertsprent prentaði.
Skraddaraþankar.
Hrukkur.
Ógrynnum fjár og óendanlegri fyr-
irhöfn ver fólk, sem um það hirðir,
til þess að bæta útlit sitt.
Fegrunarlæknar eru til, að kalla
má hvar sem litið er, og flestir
þeirra hafa góða atvinnu af þvi, að
bæta útlitið á okkur.
Grá hár eru reitt á hurt, andlitið
fær nudd og böð úr allskonar efna-
samsetningum.
En hugsar alt þetta fólk, sem ekki
er ánægt með andlitið á sjer, um
það, hvaða áhrif hugurinn hefir á
útlitið ? Áhrifin eru seinverkandi,
en þau eru líka viss. Ef maður hugs-
ar að staðaldri um það sem ilt er,
þá koma þessar hugsanir lika fram
i andlitinu að lokum. Hugsi maður
altaf um mótlæti, þá nær vonleysið
um síðir valdi á manni, og það kem-
ur frarn í línunum í andlitinu.
Bjartar hugsanir, gott skap og
gleði i hugarfarinu munu endur-
spegla sig í andlitinu, og fólk, sem í
raun og veru er ákaflega ófritt, get-
ur orðið undursamlega l'allegt í
þeirri hirtu, sem endurspeglast frá
mnra manni þess.
Andlitsdrættirnir verða smámsam-
an fyrir áhrifum frá því sem mað-
urinn hugsar, og þessvegna ættum
við að temja okkur ])að undir eins
frá barnæsku, að líta með bjart-
sýnu hugarfari á alt, sem okkur
mætir, og gera okkur þetta að vana.
Því að enginn fegrunarlæknir er
sá til í veröldinni að hann geti sigr-
að i samkepni við bjartar og fagrar
hugsanir.
Ýms af þeim fegurstu andlitum,
sem jeg hefi sjeð, og þeim mest að-
laðandi, voru alls ekki fögur; en
andinn, sem skein út úr þeim, gæddi
þau sjaldgæfri og háleitri fegurð.
Ólundin lælur alls ekki dylja sig.
Hún kemur hrátt fram i mynd nið-
urskældra munnvika. Og hrukk-
urnar koma fljótast í andlitið á
þeim, sem alt hafa á hornum sjer,
■ta sjer gjarnar um, að tala um
leiðinlega og mótdræga en um hið
skemtilega og fagra.
Frank Crane.
Tvö villisvin, sem voru í dýra-
garði i Sönderby í Danmörku, brut-
ust nýlega út í skóg. Þrátt fyrir
mikla leit liafa ])au ekki fundist, en
fólkið í nágrenni við skóginn er nú
skelkað mjög, því villisvin geta ver-
ið hættuleg dýr og ráðast oft á
menn.
LEIKFJELAG REYKJAVÍKUR:
Skugga-Sveinn.
í tilefni af aldarafmæli þjóðskálds-
ins Matthþasar Jochumssonar i næsta
mánuði hefir Leikfjelag Reykjavík-
ur tekið til sýningar hið gamla og
vinsæla leikrit lians, „Skugga-Svein“,
sem sennilega hefir verið sýnt oftar
og víðar hjer á landi en nokkur leik-
ur annar. Leiksýning þessi var sýnd
i fyrsta sinn á miðvikudaginn var.
og er Leikfjelaginu tvimælalaust tii
hins mesta sóma og sannaði fylli-
lega, að þetta gamla leikrit, sem að
ýmsu leyti markaði tímamót í sögu
íslenskrar leiklistar, á enn sinn tví-
mælalausa tilverurjett. Bæði leik-
stjórn og leikur var hið prýðilegasta,
og umbúnaður aliur á leiksviði heill-
andi og fagur. Hafði Freymóður Jó-
hannesson málað leiktjöldin, og fylgt
sem nákvæmast elstu fyrirmyndinni:
leiktjöldum Sigurðar málara, er hann
gerði undir frumsýningu leiksins
1805. En búningana teiknaði Lárus
Ingólfsson og um undirbúning á
leiksviði sá Hallgrímur Baclnnann.
Var þetta alt livað öðru prýðilegra.
Iiaraldur Björnsson og Soffía Guð-
laugsdóttir höfðu leikstjórnina með
höndum og ljeku einnig hlutverk
Sigurðar í Dal og Gvendar smala. En
unnendurna, Harald og Ástu, leika
Guðrún Þorsteinsdóttir (dótturdóttir
Mattliíasar Jochumssonar) og Her-
mann Guðmundsson. Eru þau bæði
nýliðar á leiksviði en tókst alstaðar
sæmilega og víða með ágætum. Stúd-
entarnir voru leiknir af Kristjáni
Kristjánssyni og Br. Jóhannessyni.
Þá er enn ógetið tveggja stórra hlut-
verka. Skugga-Sveinn var leikinn af
Ragnari Kvaran, af ágætum skiln-
ingi og tókst honum eigi miður að
sýníL viðkvæmnina en hörkuna I
skapi útilegumannsins, sem ann fjöll-
um sínum og á góðar taugar, þrátt
fyrir öll sín hermdarverk. Sýslu-
manninn ljek Pjetur Jónsson óperu-
söngvari. Er hann eflaust „senuvan-
astur“ allra þeirra, sem lijer hafa
komið fram á leiksviði, enda leyndi
það sjer ekki. Það var óblandin á-
nægja, að sjá hann í fyrsta sinn á
leiksviði hjer, og leikur hans var
allur svo eðlilegur og með svo mik-
illi kunnáttu og myndugleik, að hann
heillaði alla áhorfendur. — í öðrum
hlutverkum: Tryggvi Magnússon
(Grasa-Gudda), Jón stei'ki (Valdimar
Helgason), Jóhanna Jóhannsdóttir
(Margrjet), Alfred Andrjesson (Hró-
bjartur), Hjörleifur Hjörleifsson (Ög-
mundur) og Jón I.eós (Ketill ski-æk-
ur).
Finnn manna hljómsveit ljek und-
ir söngvunum í leiknum, undir stjórn
Karls Runólfssonar. Hafði hann sam-
ið nýtt lag við: „Ganga nú guðs börn“
og annað við „Búumst skjótt og
bregðum hjör“, en Þórarinn Guð-
mundsson lag við lokasönginn.
Það þarf ekki að draga í efa, að
þessi sýning Skugga-Sveins verður
fjelaginu til ánægju. Hún ber vott
um mikla vandvirkni og er samboðin
minningu hins mæta skákls Matthír
asar.
Myndirnar sem hjer fylgja eru af
Ragnari Kvaran og Pjetri Jónssyni.
Ennfremur mynd af Hellisdal (næst-
síðasta sýningin).
Keisarinn í Etiopíu hefir látið
sprengja helli allstóran inn í fjall
lerigst inn í óbygðum og flytja þang-
að alt það dýrasta sem hann á. En
það eru kórónur og gullsverð og
gimsteinar og perlur og mikið af
hreinu gulli. Hann ætlar sjer ekki
að láta Mussolini ná i þetta, hvernig
sem alt fer.
Sigurþór ÓlafsSon smiður á
Gaddstöðum á Rangátrvöllum
varð 75 ára 10. f. m.
Ingim. Guðmundsson bóndi frá
Hellu, varð 75 ára /4. þ. m.
Frú Guðrún Sveinsdóttir, Skuld,
Akranesi, varð 50 ára 11. þ. m.
Kristinn Árnason, Bragagötu 30,
verður 50 ára 23. þ. m.