Fálkinn - 19.10.1935, Síða 8
8
F Á L K I N N
i
Vindsængurnar komust í tísku hjer á Islandi fgr en á Norður-
löndum. En í sumar liafa jiær rutt sjer til rúms þar og eru
eigi síst notaðar til þess að liggja á þeim á vatni í hitunum.
Myndin hjer að ofan er frá Svíþjóð. Hjer þykja þær bestar
til að halda á sjer liita í tjöldum.
Eitt merkasta hlaupið á veðhlaupahrautinni í Klampenborg við
Kaupmannahöfn er það, sem háð er um heiðursverðlaun kon-
ungsins, en þau eru fagur bikar úr silfri. 1 sumar vann hlaup
þetta hesturinn „Quick March“ en knapinn hjet V. Fehr. Á
myndinni sjest konungur vera að óska sigurvegaranum til
hamingju. Á miðri myndinni er Scavenius kammerherra.
Fimta þing sálarannsóknarmanna var haldið í Osló nýlega und-
ir forsæti dr. Thorstein Wereide. Stóð þingið í viku og sótti
það fjöldi manna, sem kunnir eru fyrir sálarrannsóknir. Mynd-
in hjer að ofan er af setningarfundi þings þessa, sem haldinn
var í etdri hátiðarsal háskólans. Liila myndin er af dr. Wereide.
Kvikmyndafólkið í Holtywood — en það ræður öllu í þeirri
borg — hefir nýlega kosið sjer borgarstjóra. Ilann heitir Al
Lichtmann og gekk mikið á í filmbænum þegar hann var kos-
inn. Hjer á myndinni sjást frá vinstri: Chaplin, Lic.htmann\
Mary Pickford og Samuel Goldvyn.
1 Rússlandi hafa yfirvöldin
áhuga fyrir því,að loftstökk í
fallhlíf verði almenn íþrótt.
1 þessu augnarmiði á að
reisa 1000 stálturna 60 metra
háa víðsvegar um landið,
handa fólki að stökkva úr.
Hjer sjest maður voga stökk-
ið, á myndinni til vinstri.
Enska loftmálaráðuneytið
hefir í mörg ár verið að gera
tilraunir með flugvjelar, sem
hægt sje að stjórna frá jörðu,
mannlausum. Er þessum til-
raunum komið svo langt á
leið, að farið er að senda
mannlausar vjelar upp í loft
ið og láta þær vel að stjórn.
Ein slík vjel sjest á mynd-
inni til hægri.