Fálkinn - 19.10.1935, Qupperneq 11
YNftftU
UttNbyftNIR
Skemtilegur leikur.
Hjerna er leikur, seni jeg hugsa
aö ykkur komi lil að þykja gaman
að. í fyrstunni var hann gerður
handa farþegunum á skemtiskipun-
uin til að stytta sjer stundir við á
þilfarinu, því að þar er ágætt að
leika hann. En það er líka ágætt að
leika hann á slje'ttum is eða á mai-
bikaðri flöt, eða hvar sem völlurinn
er nógu háll og sljettur. Leikbrautin
á að vera nálægt átta metra löng og
merkinu er skift í reiti, sem eru
merktir eins og sýnt er á teikning-
unni. Til þess að skjóta með notið
þið kústskaft, sem fjöl er negld á,
og svo þurfið þið nokkra ofurlitla
trjehlemma til að skjóta.
Hver þátttakandi í leiknum iær
sinn hlemm og svo skjóta þeir hon-
um á mark i sömu röð, aðeins eilt
skot i hverri umferð. Sigurinn er i
þvi fólginn að láta hlemminn lenda
þar í markinu, sein hæsta talan er.
Sá sem fyrstur kemst upp í 50 hefir
únnið leikinn, en til þess að manni
reiknist vinningur þarf hlemmurinn
að liggja inni í tölureitnum án þess
að hann snerti strikin í kring um
hann. Tveir af reitunum gefa 10 í
frádrátt, eins og þið sjáið, svo að
það er áríðandi að læra að reikna
skotin rjett út og forðast þessa reili.
Vilji maður reyna að slá tvær flug-
ur i einu höggi, gerir maður tilraun
til að liitta hlemm frá öðrum með
sínum eigin hlemm — ef hann ligg-
ur þá á reit — og spyrna honum út
af reitnum. Þó horgar þetta sig ekki,
ef maður missir sjálfur af að ná
reit fyrir það. Þegar allir í leiknum
hafa skotið, er talið livað hver hefir
mörg stig og hlemmarnir teknir upp
og svo hefst ný umferð.
.4 ð hæna smáfuglana að.
A þessari mynd sjáið þið hvað
börnin gera erlendis til þess að
hæna smáfuglana að görðunum, svo
að þeir eyði skordýrum á sumrin
og sjeu til skemtunar í görðunum.
í garðinum stendur stofn af út-
dauðu trje. Stofninn hefir verið not-
aður til þess að búa til sumarbústað
handa fuglunum, og þið getið sjeð
á teikningunni, að aðferðin er ofur
einföld. Með vissu millibili eru sag-
aðir bútar úr trjenu og þeir holaðir
að innan og húið til gat á þá. Svo
eru bútarnir feldir inn í trjeð aftur
og limdir eða kíttaðir fastir við það.
Til þess að kettirnir ónáði ekki
smáfuglana i trjánum eru lægstu
greinarnar sagaðar af þeim, svo að
stofninn sje greinalaus næstu mann-
hæðina af trjenu. Þá kemst köttur-
inn ekki upp í trjeð. Og þegar fugl-
arnir eiga unga, eru þeir varðir á-
rásum mauranna með þvi að setja
ílugnanet utanum trjestofninn, skaml
frá rótinni, svo að maurarnir kom-
isl ekki upp.
Skuggamyndir.
Ef þú hefir ljósleitt, helst hvitt,
þil og sæmilega sterkt ijós getur þú
búið til fjöldan allan af skugga-
myndum með höndunum og fingr-
unum. Hjerna sjerðu nokkrar þeirra
á myndinni.
Þú getur látið kanínuna hreyfa
eyrun með þvi að hreyfa fingurna
og líka geturðu látið hana hreyfa
framlappirnar, öndina geturðu látið
vaga áfram og stinga niður nefinu
og fálkann geturðu látið lireyfa
vængina, ef þú ert sæmilega liðug-
u r i fingrunum.
Fiskiferð litla bróður lauk vel þrátt fijrir alt.
Efnileg stúlka.
Þessa mynd, ásamt eftirfarandi
upplýsingum hefir „Fálkinn" fengið
senda frá einum af lesendum sinum.
Greinin er um unga stúlku, en stóra
og efnilega, og hafa eflaust önnur
börn gaman af að lesa hana:
„Mynd þessi er af Áslaugu Ólafs-
dóttur, Skeggjastöðum á Langanes-
strönd. Jeg lilutaðist til, að hún
kæmi fyrir augu almennings, af því
að jeg liygg Áslaugu eiga fáa — að
minsta kosti alt of fáa sína jafningja,
um ágæta heilbrigði.
Áslaug er 9 ára. í mars, síðastlið-
inn vetur, var hún 144 cm. á hæð
og 39 kg. að þyngd.
Faðir hennar sagði mjer i vetur,
að hún hefði aldrei fengið kvef, nje
orðið lasin, þvi síður veik.
Nær því frá fæðingu hefir Áslaug
hvern dag fengið þvott úr sjó eða
sjóbað. Einnig daglega hæfilegan
skamt af þorskalýsi.
Á liðnum vetri fjelck hún að fara
með föður sínum til Reykjavíkur og
vera hjer einn mánuð. Rafljós sá
Áslaug í fyrsta sinn á s/s Esju og
bíla í fyrsta sinn þegar hingað kom.
Hana langaði mjög til að læra sund
og gerði liún það þegar liingað kom,
samkvæmt leyfi foreldra sinna.
Ekkert var gert til þess, að verja
Áslaugu fyrir farsóttum þeim, seiu
þá áreiltu börn og unglinga í Reykja-
vík. En þessir kvillar náðu ekki
tangarlialdi á henni. Og má hver
hafa sina skoðun um það, hvers-
vegna hún slapp við þá.
—- —- — Ef liin unga, vaxandi
kynslóð fær að lifa af hollri fæðu
í hreinu andrúmslofti, úti og inni,
við mikil og fjötbreytt viðfangsefni
og leika sjer, eins og börn yfirleitt
eiga fjölbreytta löngun til, þá hygg
jeg, að kuldabylgja sú, sem nú kem-
ur unglingum furðu ört í kynni við
kistunagla svarta dauða, púðurieðju
og rósalit, hjaðni eða falli fyrir
hækkandi sól og sumri þróttríkraf
æsku.
Áslaug og þau börn önnur, sem
bera boð um mjög sennilegan ágæt-
an árangur góðrar aðstöðu og mik-
illar umhyggju við uppeldisstörf,
minna alla — eldri sem yngri, að
hlúa vandlega að kjarnviðunum
þróttríku, sem i börnunum húa.
Marteinn Bjarnason“.
---------Það er vissulega umhugs-
unarvert, sem brjefritarinn segir, i
frásögn sinni af Áslaugu. Og mætti
það bæði verða ykkur börnunum á
hennar aldri, og foreldrum allra
barna að umhugsunarefni og til eftir-
breytni.
KÁTU SÖNGVARARNIR. Þetla er
skemtilegur leikur, einkum ef marg-
ir taka þátt í honum. Það er bundið
fyrr augun á einum þátttakandanum
og allir hinir skipa sjer í hring
kringum hann. Þegar vísunni er lok-
ið staðnæmast allir og blindingur-
inn bendir á einhvern í hópnum. Sú
sem hann bendir á skal syngja vís-
una aftur. Blindingurinn á svo að
geta hver það var sem söng. Geti
hann rjett, þá verður sá sem söng
blindingur næst, en geti liann rangt
verður hann að halda áfram að vera
blindingur þangð til hann hefir get-
ið rjett.
HVER ANHAÐI Á SPEGILINN? í
þessum leik verðurðu að hafa ein-
hvern í vitorði með þjer. Þú ferð
út og segist skuli nefna þann, sem
andi á spegilinn meðan þú sjert úti.
Þegar þú kemur inn aftur á sá, sem
er í vitorði með þjer að sitja í al-
veg sömu steilingum og sá sem and-
aði á spegilinn, svo að þú getir
þekt hann úr.
Tóta frænka.
Alt með Eimskip.