Fálkinn - 19.10.1935, Síða 15
F Á L K I N N
16
»
N.OTIð
IRELLI-hjólbarða.
„Ómótstæðilega töfra hefir“
ELISSA
LANDI
Kvikmyndadísirnar vita,
að Lux ilmsápan varðveit-
ir fegurð þeirra. Hin
mikla og þykka froða er
fljót að þvo burt öll
óhreinindin, sem spilla
hörundsfegurðinni. Þetta
einfalda leyndarmál hafa
konur um allan heim
fundið og nota því Lux
handsápu reglulega. Þjer
munuð verða hrifin af ilm
hennar og ntjúku froð-
unni! Reynið eitt stykki í
dag!
Ómótstæðilegustu
töfrar, sem ung
stúlka getur átt, er
fallegt og sljett hör-
und. Reglulegur
þvottur með hinni
hreinu, ilmandi LUX
HANDSÁPU varð-
veitir fegurð hör-
unds yðar.
Stjarna frá Paramount.
LUX TOILET SOAP
FEGURÐARSÁPA KVIKMYNDADÍSANNA.
X-LTS 3(57-50 Lever Brothers Limited, Port Sunlight, England
sliku starfi, og þótt hægt fari,
vinst þó altaf mikið. Guð er ekki
bráðlátur og lífið er ekki bráð-
látt, en livort tveggja vinnur
stöðugt í rétta átt. — Skáldið
segir: „Oft kostaði gæfuna kyn-
slóðar æfi að kalsa við brjósts-
ins innstu rödd“. — Það getur
tekið langan tíma að lokka fram
í brjóstum manna hið innsta og
besta, en að því ber að stefna
— og það vinst.
Pirelli-Giímmí.
MaSal þeirra ítölsku vörutegunda,
sem farnar eru að flytjast hingað á
síðustu órum, eru Pirelli-hjólharð-
arnir. Eru þeir gerðir af hinum risa-
vöxnu ítölsku verksmiðjum, sem
kendar eru við stofnanda sinn Giov-
an Battista Pirelli, sem látinn er fyr-
ir þremur árum. Hann var verkfræð-
ingur, en rjeðst ungur til utanfarar
til þess að kynna sjer gúmmiiðnað
og stofnaði er heiin kom lilla verk-
smðju i Milano i ársbyrjun 1872. í
fyrstu framleiddi verksmiðjan eink-
um sæsíma og fyrsti síminn frá
Pirelli var lagður i Ítalíu 1887 og
árið eftir annar fyrir Spánverja. Með
hverju ári óx framleiðslan og varð
fjölbreyttari og nú eru starfsmenn
þessa fyrirtækis yfir 30.000.
Þessi verksmiðja hefir verið til
fyrirmyndar um það, hve vel húri
hefir farið með starfsfólk sitt. Þa'ð
nýtur t. d. alt ókeypis læknishjálp-
ar og spítalavistar og börn þess
njóta ýmsra þæginda, svo sem sum-
ardvalar í; sveitum ókeypis, kenslu
og leikvalla og verksmiðjurnar hafa
ókeypis hókasöfn og leikhús fyrir
starfsfólkið.
Verksmiðjur þessa fyrirtækis erii
nú orðnar 14 talsins og framleiða
um 300 mismunandi vörutegundir. Er
þeim skift i þrjá aðalflokka: A, B og
C. í A-flokki eru allskonar vörur
til rafmagnstækni: sæsímar, leiðslur,
einangrunarefni. í B-flokki alt seiu
snertir gúmmí til bifreiða og reið-
hjóla, einkum barðar og hringir. Er
þessi framleiðsla þegar orðin kunn á
íslandi, einkum „Stella Bianca Lux-
us-barðar“ og „Græna inrisiglið“.
Pirelli fjelagið hefir 4 verksmiðj-
ur i Ítalíu, þar af tvær í Milano, en.
þar er enn aðalsetur fjelagsins, en
um 20 útihú hefir fjelagið víðsvegar
í ítaliu Það er meðeigandi í ýmsum
fyrirtækjum, er framleiða vörur, er
fjelagið þarf lil iðnaðar síns, svo sem
bómull, linoleum, leður og raftæki.
En sjálfstæðar verksmiðjur og úthú
hefir fjelög erlendis, bæði á Spáni,
í Englandi, Suður-Ameríku, Frakk-
landi, Belgíu, Danmörku og Rúminíu..
Og gúmmiekrur á fjelagið í Singa-
pore og á Java. Þetta risavaxna fyr-
irtæki er að mestu leyti eins manns.
verk — stofnandans. Mannsins sem.
setti sjer það mark á unga aldri að
koma á fót nýrri iðngrein í Ítalíu.
f E1 Pero í Texas kostar 125 doll-
ara að fá skilnað. Það er hægt að
koma því í kring brjeflega, ef báðir
partar eru sammála.
HERTOGINN AF GLOUCHESTER --
en svo heitir öðru nafni þriðji son-
ur Bretakonungs, Henry — er fyrir
skönnnu trúlofaður lafði Alice Mon-
tague-Douglas-Scott. Prinsinn er
rúmlega 35 ára. Hjer sjást lijónaefn-
m á góðgerðabasar einum í London.
Verður víst mikið um að vera, er
þau ganga í heilagt hjónaband, eigi
síður en í fyrra, þegar yngsti hróð-
irinn, Georg prins, hertogi af Kent
giftist Marínu hinni grisku. Eru þá
allir bræðurnir búnir að staðfesta ráð
sitt, nema sá, sem mest þykir um vert
sjálfur rikiserfinginn, sem nú er kom-
inn yfir fertugt, en er ókvæntur enn.
í BRENNERSKARÐI.
Um Brennerskarð i Alpafjöllum
er aðal þjóðleið ítala til nágranna
sinna i Austurriki. Með friðarsamn-
ingunum fengu Italir allmikinn fláka
í Tyrol, og vildu þó víst gjarnan fá
meira, og var lengi grunt á því góða
milli ítala og Austurríkismanna á
eftir, því að frá þeim síðarnefndu
var landið tekið, og þóttu ftalir mis-
bjóða þjóðerni hinna austurrisku
þegna, er komust undir yfirráð
þeirra við ábúendaskiftin. Hjer sjest
ítalska tollstöðin og landamæra-
sleinninn í Brennerskarðinu.