Fálkinn - 21.12.1935, Síða 5
51.—52.
Reykjavík,
iaugardaginn 21. desember 1935
VIII.
Af geæ
Jólahugleiðing eftir séra Árna Sigurðsson.
Af gnægð hans höfum vjcv
allir fengið, og það náð á náð
ofan. (Jóh. 1, 1G).
Þessi heilögu orð segja oss
frá hinni óumræðilegu jólagjöf
Guðs. Vjer getum ekki furnlið
orð, er segi oss betur og greini-
legar, hvað mannkynið hefir
fengið með Jesú Kristi. Þau eru
ekki aðeins vitnisburður og
játning postulans, er orðin skrá-
setti. Þau eru jafnframt fáorð
og gagnorð frásögn um það,
sem veraldarsagan hefir stað-
fest og sannað í meir en 19
aldir.
Það væri ótæmandi efni í
marga fræðifyrirlestra eða stórt
sögurit, hvernig menn með gjör-
ólíku eðli og gagnólíkir í hugs-
un hafa allir af gnægð Jesú
fengið náð á náð ofan, hver um
sig þá náð, þái andans og hjart-
ans fullnægju, er hann þráði
heitast.
Lesum með athygli rit postul-
anna. Þá munum vjer sjá,
hvernig menn, sem um margt
voru ólíkir, eins og mennirnir
ávalt eru, bera vitni um þá
blessun, sem lwer þeirra hafði
af Kristi hlotið. Páll postuli,
hinn mikli viljans og starfsins
maður, lýsir því, hvernig Krist-
ur lifi í sjer, knýi sig til að
vinna stórvirki, og hiálpi sjer
að sigra allar þrautir. Jóhannes,
heimspekingurinn og dulsinn-
inn meðal postulanna, leggur
áherslu á tjós guðsþekkingar-
innar, sem kom með Kristi.
Pjetur hefir fengið í honum
huggunar-, uppörvunar- og sig-
urafl á þrauta og baráttutím-
um. Og Jakobi liefir Kristur
kent að skygnast inn í hið full-
komna lögmál frelsisins.
Og vjer getum rakið röðina
áfram í sögu kristninnar, röð
þeirra, er bera vitni um náðina,
sem þeir fengu af gnægð Krists.
Ágústínus finnur í Kristi svör
við öllu því, er andi hans spurði
um, þegar hann krufði til mergj-
ar allar helstu heimspekisskoð-
anir og trúarstefnur sinnar sam-
tíðar. Frans frá Assisi finnur sig
knúðan af Kristi til að afneita
allri nautn heimsins gæða, og
lifa sífórnandi og þjónandi kær-
leikslífi sem alger öreigi. Thomas
frá Kempis finnur tilgang lifs-
ins og frið og sælu hjartans í
eftirbreytni Krists. Dulspelcing-
urinn þýski, meistari Eckehart,
sjer í Kristi sönnun og trygging
þess, að mannssálin geti orðið
Guði lík, og sú reynsla lyftir
sálu hans í hæðir ósegjanlegs
fagnaðar og svimandi sælu.
Marteini Lúther reyndist Kristur
sá, er flytur iðrandi sálu synd-
arans kraft guðtegrar fyrirgefn-
ingar og frelsandi náðar, og
Jóhanni Calvín sá máttugi há-
tignarfulli herra, sem alt tíf á
að lúta. John Bunyan sjer frels-
arann og ástvininn, sem fagnar
pílagrímnum þreytta, er hann
hefir lokið sinni erviðu píla-
grímsför frá þessum heimi til
hins ókomna. Þannig má lxalda
áfram gegn um allar aldir sög-
nnnar til vorra daga.
Og enn í dag játa hinir trúu
vottar hið sama. Rödd Krists
talar iil Stanley Jones, hins sig-
ursæla krislniboða á úrslita-
stundum lifsins, og hann heyrir
og hlýðir, og veit að Kristur er
daglega með honum í för. Og
Toyhiko Kagawa, „postuli Jap-
ans“, er af krafti Krists knúður
til að leggja fram allar sínar
óvenjulegu gáfur og kærleiksafl
til viðreisnar og hjálpar þeim,
sem aumastir eru og bágast eiga
með þjóð hans. Þannig mætti
áfram telja lifandi og talandi
votta, er allir segja þetta hið
sama: „Alt höfum vjer fengið
af gnægð hans. Sagan er reynsl-
an. Og reynslan er sannleikur-
inn, í þessu sem öðru.
Ó, að þessi jól mættu sann-
færa sem flestar hinar veilu og
sundruðu sálir á vorri órólegu
öld um það, að í gnægð Krists
er fólgin öll sú náð, sem þær
þarfnast til að verða heilar,
glaðar, frjálsar og máttugar.
Guð gefi oss öllum í þeim skiln-
ingi
GLEÐILEG JÓL.