Fréttablaðið - 28.09.2009, Side 6
6 28. september 2009 MÁNUDAGUR
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Nánari upplýsingar og tillögur um breytingar á samþykktum
eru á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is.
Sjóðfélagafundur
Almenni lífeyrissjóðurinn boðar til sjóðfélagafundar
fimmtudaginn 29. október á Hilton Reykjavík
Nordica og hefst kl. 17:15.
ATH! Breytt dagssetning og staðsetning.
DAGSKRÁ
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar um rekstur og afkomu
Almenna lífeyrissjóðsins.
3. Tillaga og ákvörðun um sameiningu Almenna lífeyris-
sjóðsins og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum. Lagt er til
að sameina deildir samtryggingarsjóðs.
5. Önnur mál.
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Hann er 73 ára, ekki gráhærður (aldrei litað á sér
hárið). Ekki með hrukkur (aldrei farið í andlitslyftingu).
Aldrei bakveikur og við hestaheilsu … allt dansinum
að þakka því dansinn er allra meina bót. Kennarinn
heitir Heiðar Ástvaldsson og hann hefur fundið tíma á
þriðjudögum klukkan 19 til að hjálpa landsmönnum að
rifja upp gömlu góðu sporin.
Eitt okkar besta danspar er í 12 daga golfferð á Spáni
fyrir rúmar 400 þúsund, þú getur dansað árum saman
hjá okkur fyrir slíkan pening!
Innritun í síma 551-3129 eða í heidarast@gmail.com
á milli klukkan 16-19 daglega til laugardagsins 03. október.
50 ára og eldri
Upprifj unarnámskeið!
Reyndasti danskennari Íslandssögunnar
kennir
AKRANES Bæjarstjórn Akraness
samþykkti á fundi sínum á þriðju-
dag, með atkvæðum meirihlutans,
að fara ekki í útboð á tölvuþjón-
ustu bæjarins. Þess í stað var
samningur við fyrirtækið T. Þ.
SecureStore framlengdur, en það
er í eigu Bjarna Ármannssonar
og Arnar Gunnarssonar. Örn er
sonur Gunnar Sigurðssonar, for-
seta bæjarstjórnar.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segir bæinn hafa sparað tvær til
2,5 milljónir króna með því að fara
þessa leið, en það sé kostnaðurinn
við útboð. Könnun hafi sýnt að aðrir
væru ekki tilbúnir að greiða lægra
verð en SecureStore.
Bæjarráð samdi við fyrirtækið
í fyrra, en þá hafði það hætt við
útboð. Á fundi sínum 30. júní síð-
astliðinn fól ráðið bæjarstjóra að
undirbúa útboð á tölvuþjónustu. Á
næsta fundi þar á eftir var honum
einnig falið að leita eftir afslætti á
öllum fyrirliggjandi samningum.
Samningaviðræður við fyrir-
tækið leiddu til 25 prósenta lækk-
unar á samningnum og Gísli segist
sannfærður um að það sé hagstæð-
ast fyrir bæjarfélagið.
Eyjólfur R. Stefánsson, tölvunar-
fræðingur á Akranesi, kærði
ákvörðunina í fyrra til samgöngu-
ráðuneytisins. Ráðuneytið úrskurð-
aði að ákvörðunin um að falla frá
útboði þá hefði ekki verið ólög-
mæt. Hins vegar hafi stjórnsýsla
Akranes kaupstaðar ekki verið án
annmarka. Ráðuneytið brýndi fyrir
sveitarfélaginu „enn og aftur að
gæta að bæði skráðum sem óskráð-
um reglum stjórnsýsluréttarins við
stjórnsýslu sína“.
Eyjólfur segist mjög ósáttur við
niðurstöðu bæjarstjórnar nú. Hann
segir meirihlutann beita blekk-
ingum; látið sé sem kostnaður við
samninginn sé um sex milljónir
króna. Raunin sé sú að þar sé bara
tekið til hýsingar og afritunar, sem
sé brot af heildarkostnaðinum sem
nemi um þrjátíu milljónum króna.
„Mér er því algerlega misboðið
hvernig meirihluti bæjarstjórnar
beitir enn á ný blekkingum og útúr-
snúningum til að ganga frá eins
umdeildum samningi og þessum.
Ljóst er að í sambærilegum útboðum
hefur kostnaðarlegur ávinningur
náðst og ekki síst í ljósi þeirrar
stöðu sem er í þjóðfélaginu þá ætti
ekki síður að vera hægt að gera
hagstæða samninga. Skýtur það
því svolítið skökku við þegar mikill
niðurskurður er á öllum sviðum
bæjarfélagsins að þá skuli farið eins
kæruleysislega með fjármuni bæjar-
sjóðs eins og gert er í þessu máli.“
kolbeinn@frettabladid.is
Háværum kröfum
um útboð ekki sinnt
Akraneskaupstaður framlengdi samning um tölvuþjónustu við fyrirtæki í eigu
Bjarna Ármannssonar og sonar forseta bæjarstjórnar. Tölvunarfræðingur segir
meirihlutann blekkja með tölum og hefur kært málið til samgönguráðuneytis.
EYJÓLFUR R.
STEFÁNSSON
GÍSLI S.
EINARSSON
AKRANES Enn var hætt við útboð á tölvuþjónustu á vegum bæjarins. Tölvunarfræð-
ingur gagnrýnir ákvörðunina harðlega og sakar meirihlutann um að fela kostnað.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hefurðu heimsótt Höfða?
Já 21%
Nei 79%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga stjórnvöld að breyta lögum
um Seðlabankann til að knýja
niður stýrivexti?
Segðu þína skoðun á visir.is
BERLÍN, AP Angela Merkel, kanslari Þýskalands, náði
endurkjöri í þingkosningum í landinu í gær eftir að
flokkur hennar, Kristilegi demókrataflokkurinn,
hlaut 33,5 prósent atkvæða samkvæmt útgönguspám.
Búist er við því að Merkel myndi nú ríkisstjórn með
Frjálsa demókrataflokknum sem náði mjög góðri
kosningu og fékk um fimmtán prósent atkvæða.
„Við höfum afrekað mikið,“ sagði Merkel þegar
hún fagnaði sigrinum. „Okkur hefur tekist að ná tak-
marki okkar um öruggan meirihluta í Þýskalandi
fyrir nýju ríkisstjórnina.“ Hún bætti því við að við-
ræður hennar við leiðtoga Frjálsra demókrata, Guido
Westerwelle, myndu ganga hratt fyrir sig. Talið er að
Westerwelle verði næsti utanríkisráðherra Þýska-
lands.
Stjórn Kristilega demókrataflokksins og Sósíal-
demókrata hættir nú störfum, enda hafði Merkel
lýsti því yfir fyrir kosningarnar að hún vildi mynda
ríkisstjórn með Frjálsa demókrataflokknum. Merkel
telur að styrkan meirihluta þurfi að mynda í Þýska-
landi til að takast á við aukinn vöxt efnahagsins eftir
djúpa kreppu. Með því að fá Frjálsa demókrata til
liðs við sig vonast hún til að lækka skatta og loka
öllum kjarnorkuverum landsins fyrir árið 2021. „Í
dag getum við fagnað en við eigum mikið verk fyrir
höndum,“ sagði kanslarinn. „Það þurfa ekki allir að
vera allsgáðir í fagnaðarlátunum en við megum ekki
gleyma því að við þurfum að leysa mörg vandamál.“
- fb
Kanslarinn Angela Merkel náði endurkjöri í þingkosningunum í Þýskalandi:
Myndar nýjan meirihluta
ANGELA MERKEL Kanslari Þýskalands fagnar sigri í þing-
kosningunum. Hún ætlar að mynda stjórn með Frjálsa
demókrataflokknum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið svaraði
aldrei bréfi sem því var sent árið
2002 um meinta glæpi Björgólfs-
feðga. Bréfið var sent þegar feðg-
arnir voru að fara að kaupa Lands-
bankann á ellefu milljarða króna.
Fjallað hefur verið um málið af og
til og nú síðast í helgarblaði DV.
Ingimar H. Ingimarsson, fyrr-
um eigandi Baltic Bottling Plant
(BBP) segir þetta, en hann skrif-
aði bréfið. Þar hélt hann því fram
að feðgarnir Björgólfur Thor
Björgólfs son og Björgólfur Guð-
mundsson hefðu falsað skjöl til
að komast yfir ráðandi hlut í BBP.
Fyrirtækið varð síðan grunnur að
veldi Björgólfsfeðga.
Fölsunin á að hafa farið fram í
Pétursborg árið 1995, meðan Ingi-
mar lá bakveikur á Landspítalan-
um. Samkvæmt skjölunum áttu
Ingimar og félagi hans að hafa selt
65 prósenta hlut í BBP fyrir 500
þúsund Bandaríkjadali. Fyrirtækið
mun þá hafa verið metið á fimmtán
til tuttugu milljónir dala.
Í greininni í DV segir jafnframt
að í Rússlandi hafi ellefu dómar
fallið Ingimar í vil og að í Héraðs-
dómi Reykjavíkur hafi meint undir-
skrift Ingimars verið úrskurðuð
ógild. Síðan hafi stefnurnar verið
dregnar til baka af fyrrverandi
fjármálastjóra BBP, Þór Kristjáns-
syni, sem fór seinna að vinna fyrir
Björgólfsfeðga.
Ingimar vill ekki ræða þessi mál
opinberlega, en segir að allt sé rétt
í frétt DV, að svo miklu leyti sem
hann þekki til. Málið sé fjórtán ára
gamalt fyrir sér, en einnig fyrir
FME og einkavæðingarnefnd, sem
fékk afrit af bréfinu.
FME svaraði ekki bréfinu, sem
fyrr segir, en fjallaði um það í
úrskurði um hæfi Björgólfsfeðga
til að eiga banka. Í úrskurðinum
var ekki minnst á meinta glæpi,
heldur sagt að deilumálið hefði
ekki áhrif á fjárhagsstöðu feðg-
anna.
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Björgólfsfeðga, vildi ekki bregðast
við fréttinni með beinum hætti í
gærkvöldi en benti á að „maðurinn
[Ingimar] er búinn að halda þessu
fram fyrir dómstólum, án þess að
hafa orðið neitt ágengt“. - kóþ
Björgólfsfeðgar sagðir hafa rænt bjórverksmiðju í Pétursborg frá rúmliggjandi manni:
Fjármálaeftirlitið svaraði aldrei bréfinu
BJÖRGÓLFUR
THOR
BJÖRGÓLFUR
GUÐMUNDSSON
KJÖRKASSINN