Fréttablaðið - 28.09.2009, Side 8

Fréttablaðið - 28.09.2009, Side 8
8 28. september 2009 MÁNUDAGUR Great Power Dominance versus Transnational Cooperation: From Obama´s Foreign Policy to the “Scramble for the Arctic” MÁLSTOFA ALÞJÓÐAMÁLASTOFNUNAR HÁSKÓLA ÍSLANDS Christopher Coker, prófessor í alþjóðasamskiptum við London School of Economics. Transatlantic Relations and the Obama Administration Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. The “Scramble for the Arctic” and “Ideologies of the Return” Fundarstjóri: Alyson Bailes, gestakennari við Háskóla Íslands. Þriðjudaginn 29. september frá kl. 12.00 til 13.00 í Norræna húsinu Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir. Forræði stórvelda og þverþjóðleg samvinna: Frá utanríkisstefnu Obama til „kapphlaupsins um norðurpólinn“ HEILBRIGÐISMÁL Ögmundur Jónas son heilbrigðisráðherra viðurkennir að úthýsing starfa hjá Landspítalan- um (LSH) fari mjög í taugarnar á sér. Hann hefur gagnrýnt færslur starfa frá spítalanum til einkaaðila afar hart í tíð forvera sinna. Hann telur sig þó ekki geta tekið fram fyrir hendurnar á forsvarsmönn- um spítalans og snúið þróuninni við. Ríkiskaup hefur boðið út ræstingar í fjölda bygginga Landspítalans og nú hillir undir að einkaaðilar annist verkið nær alfarið því útboð á ræstingum í aðalbygging- um spítalans við Hringbraut er til skoðunar. Þá verður lokið ferli sem hófst fyrir fimm árum. „Ég hef gagnrýnt þetta afar hart, það er rétt. Þetta á sér langa sögu en það þarf enginn að fara í graf- götur með það að ég tel þetta ekki heppilegt fyrirkomulag,“ segir Ögmundur. „Útvistun á starfsemi hefur yfirleitt bitnað á kjörum þeirra sem vinna þessi störf og ég er ekki hlynntur slíku, það er öllum kunnugt. Slíkt á ekki að líðast.“ Spurningunni um hvort hann geti ekki gripið inn í og stopp- að frekari útvistun starfa á LSH svarar Ögmundur neitandi. „Ég hef farið varlega í að grípa inn í stjórnun heilbrigðisstofnana með boðvaldi. En það kemur dagur eftir þennan dag og almennt séð höfum við verið að sveigja kerfið af þess- ari útvistunarleið.“ Ögmundur mun hafa látið þau orð falla á flokksráðsfundi fyrr í þessum mánuði að skúringafólk myndi ekki missa vinnuna á hans vakt. Voru það viðbrögð hans við áhyggjum flokksráðsmanna um að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu kæmi helst niður á störfum þeirra lægst launuðu. „Ég hef sagt við stjórnendur Landspítalans að ég vildi að séð yrði til þess að fólk sem vinnur í ræstingunni missi ekki sín störf við vistaskiptin. Aðalatriðið er að fólk haldi vinnunni og að því er ég best veit hefur svo verið.“ Ræstingar á Landspítalanum í Fossvogi voru nýlega boðnar út. Þegar LSH sá um verkið unnu 27 starfsmenn við ræstingar. Hjá Bón- bræðrum, sem nú sjá um ræstingar eftir útboð, vinna átján manns. Sjö af þeim unnu áður undir merkjum LSH. Skal það tekið fram að öllum starfsmönnum var boðin vinnan áfram en margir þáðu hana ekki ýmissa hluta vegna. Ingólfur Þórisson, fram- kvæmdastjóri eignasviðs LSH, segir sparnaðinn fyrir LSH vera um fimmtíu milljónir króna. Kostnaður verktakans við verkið er sextíu milljónir. Sparnaðinum er að mestu leyti náð með fækkun starfsfólks. svavar@frettabladid.is Ræstingafólki úthýst þvert á vilja heilbrigðisráðherra Heilbrigðisráðherra hefur beðið stjórnendur LSH að gæta að starfsöryggi fólks þegar verkefni eru færð frá spít- alanum til einkaaðila. Hann telur það hafa tekist. Dæmi frá Landspítala Fossvogi virðist sýna hið gagnstæða. LSH Í FOSSVOGI Starfsmenn sem annast ræstingar á spítalanum nú eru átján. Þeir voru 27 fyrir útboð verksins og sparnaðurinn er um 50 milljónir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖGMUNDUR JÓNASSON DÓMSMÁL Ríflega fertugur Kefl- víkingur hefur fyrir dómi játað brot gegn valdstjórninni, en hann ýtti við tveimur lögreglumönnum við skyldustörf við skemmtistaðinn Players í Kópavogi fyrir réttu ári. Eftir hrindingarnar var maður- inn færður í lögreglubíl í járnum og á leiðinni hótaði hann lögreglu- mönnunum tveimur ítrekað lífláti. Það er jafnframt lögbrot og var maðurinn ákærður fyrir það. Hann gekkst einnig við því. Ákæran í málinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær og var málið dómtekið að því loknu í ljósi játningar mannsins. - sh Játaði brot gegn valdstjórn: Hrinti tveimur lögregluþjónum LÖGREGLUMÁL Mikil ölvun var í Laufskálarétt um helgina og naut lögreglan á Sauðárkróki aðstoð- ar lögreglu frá Akureyri. Flytja þurfti ungu stúlku á sjúkrahús en hún taldi að sér hefði verið byrl- uð ólyfjan. Auk þess var meðvit- undarlaus karlmaður fluttur á sjúkrahús. Þá var maður handtekinn eftir að hafa gengið berserksgang á sal- erni reiðhallarinnar og sextán ára piltur gisti fangaklefa eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu í bíl og veist að samferðafólki sínu. - jma Lögreglan á Sauðárkróki: Ölvun og ólæti í Laufskálarétt 1 Hvaða ár fór leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjovs fram í Höfða? 2 Hvaða kvikmynd hlaut Gyllta lundann á RIFF? 3 Hver lærður orgelsmíði fyrstur Íslendinga? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan hefur handtekið þyrluflugmann úr þyrluráni sem framið var í Stokkhólmi á miðvikudaginn, eftir því sem fram kemur í blað- inu Expressen. Lögregluþjónar fóru í dag á heimili mannsins til að gera húsleit þar. Fleiri hafa verið handteknir í dag vegna málsins. Arne Andersson, varðstjóri hjá sænska ríkislögreglustjóranum, segir að handtökur hafi farið friðsamlega fram. Hann segir að engar beinar vísbendingar hafi leitt til þeirra heldur hafi þær verið niðurstaða mikillar rann- sóknarvinnu. Þyrluránið í Svíþjóð: Flugmaðurinn handtekinn HEILBRIGÐISMÁL „Niðurstaðan úr söfnuninni sýnir skýrt hvað þjóð- in vill. Hún vill að þessir hlutir séu í lagi,“ segir Edda Heiðrún Back- man leikkona sem haldið hefur utan um söfnunina Á rás fyrir Grensás. Á föstudagskvöld söfn- uðust 120 milljónir króna í pen- ingum og um 20 milljónir í formi vinnuframlags. Helstu listamenn þjóðar innar gefa svo listaverk með því að teikna listaverk inn í umhverfi Grensásdeildar. Edda Heiðrún segist sjá fyrir sér að Grensásdeild gæti nýtt það fram- lag og gert út á að selja almenningi aðgang að listaverkunum sem þar verður að finna. „Það verður spennandi að sjá hvort ekki verði hreinlega áhugi hjá fólki að koma og borga aðgang. Og það hjálpar okkur að þurfa þá ekki alltaf að leggjast á fjórar og biðja um pening. Það lætur fólki misvel að biðja um það. Við erum himinlifandi að finna þennan rót- tæka stuðning og þessi deild á skilið 1000 milljónir og við setjum markið þangað nú. Það hefur verið gengið framhjá þessari stofnun allt of lengi en það er ekki nóg að vís- indin hafi kennt okkur hvernig við getum bjargað mannslífum. Það þarf líka að koma fólki út í sam- félagið þegar búið er að bjarga þeim.“ 900-símanúmerin verða opin í nokkra daga í viðbót og Holl- vinir Grensásdeildar munu halda áfram í fjáröflunarbaráttunni. Edda Heiðrún segir að viðbrögð hafi komið alls staðar að og þrátt fyrir slæmt árferði sé þetta greini- lega á forgangslista þjóðarinnar. „Allir þekkja einhvern, sem þekk- ir einhvern sem hefði ekki komist út í lífið án Grensásdeildar.“ - jma Helstu listamenn þjóðarinnar skreyta Grensásdeild: Hægt væri að selja almenningi aðgang ÓTRÚLEGA MIKIL VIÐBRÖGÐ FRÁ FYRRVERANDI SJÚKLINGUM Mikið var um að fólk sem fengið hefur hjálp frá Grensásdeild við að ná sér eftir slys leggði söfnuninni lið. SAMFÉLAGSMÁL Óvíst er hvort þær bætur sem eyrnamerktar voru Breiðavíkurdrengjum í fjárauka- lögum 2008, rúmar 120 milljónir, muni renna til fórnarlambanna óskiptar, eða hvort rannsóknar- nefnd Breiðavíkurmálsins eigi að þiggja laun sín úr þeim potti. Nefndarstörf kosta nú um sextíu milljónir. „Það liggur ekkert fyrir hvort peninga fyrir nefndarstörf eigi að taka af þessum peningum,“ segir Friðrik Þór Guðmunds- son, sem situr í stjórn Breiða- víkursamtakanna. „Menn eru ekki á eitt sáttir um orðalag það sem viðhaft er um þessar bætur og hvernig beri að túlka það. Ef þessar 120 milljónir tilheyra sameiginlegum potti fyrir fórnar- lömb og nefndarmenn þýðir það að helmingurinn er strax farinn í rannsóknarstarfið. Það kemur hins vegar ekkert í veg fyrir að þá verði bara ný fjárveiting sam- þykkt.“ Bótafrumvarp fyrir Breiða- víkurdrengina fór aldrei í gegn- um þing fyrir hrun en Friðrik segir að það frumvarp hafi bæði verið með of lágum tillögum og einnig hafi aðferðafræðin við að ákvarða bæturnar verið mein- gölluð. „Bæturnar áttu að vera háðar mati geðlækna. Nú vinn- um við með nefnd að nýju frum- varpi þar sem ekki snýst allt um að sanna þurfi eitthvað fyrir geð- læknum.“ - jma Óvissa hvaðan greiðsla skuli koma fyrir rannsókn á vistheimilum: Mat geðlækna ekki aðalatriði RANNSAKA MÖRG VISTHEIMILI Nefndin sem rannsakar Breiðavíkurheimilið rann- sakar einnig önnur vistheimili, svo sem stúlknaheimilið Bjarg og Kumbaravog. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.