Fréttablaðið - 28.09.2009, Side 10

Fréttablaðið - 28.09.2009, Side 10
 28. september 2009 MÁNUDAGUR KAUPUM GEGN STAÐGREIÐSLU Mercedes Benz GL, ML 320 Cdi Landrover Discovery Dísel LandCruiser 200 (bensín & dísel) Range Rover Vogue V8 Dísel Range Rover Sport Dísel Audi Q7 Dísel Árgerð 2007 og yngra Sendu myndir og upplýsingar í tölvupósti á: german.cranes@gmail.com eða hringdu í síma 821 9980. BANDARÍKIN, AP Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna samþykkti fyrir helgina einróma að „skapa skilyrði þess að heimurinn verði án kjarn- orkuvopna“. Í ályktun ráðsins er þess krafist að frekari hömlur verði lagðar á útbreiðslu kjarnorkuvopna, betra eftirlit verði með búnaði og efnum í kjarnorkuvopn, hvatt verði til kjarnorkuafvopnunar og þess gætt að slík vopn komist ekki í hendur hryðjuverkamanna. Ályktun ráðsins var samin af Bandaríkjastjórn, en Rússar, Kín- verjar og önnur ríki í Öryggisráð- inu tóku vel í málið og samþykktu öll ályktunina. Í beinu framhaldi af því jók Obama síðan þrýstinginn á Írans- stjórn í gær, þegar hann upplýsti um kjarnorkuver í Íran sem þar- lendir hafa hingað til reynt að halda leyndu fyrir umheiminum. „Íranar eru að brjóta reglur sem öll ríki verða að fylgja,“ sagði Obama, og vill að samþykktar verði nýjar refsiaðgerðir á Írana bæti þeir ekki ráð sitt. Aðrir þjóðar- leiðtogar á leiðtogafundi G20-ríkj- anna í Pittsburgh tóku undir þetta með honum. Norður-Kórea er einnig undir auknum þrýstingi fyrir að lúta ekki alþjóðlegum lögum um með- ferð kjarnorku. „Þetta snýst ekki um það að taka neitt eitt ríki fyrir,“ sagði Obama. „Alþjóðalög eru ekki innantóm loforð, og samningum verður að fylgja eftir.“ - gb Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna stefnir að kjarnorkuvopnalausum heimi: Aukin pressa á Íransstjórn SARKOZY, OBAMA OG BROWN Á fundi G20-ríkjanna voru leiðtogar Frakklands, Bandaríkjanna og Bretlands á einu máli í gagnrýni sinni á Írana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HEILBRIGÐISMÁL Helsta dánar- mein Íslendinga í fyrra var sem fyrr sjúkdómar í blóðrásarkerfi, aðallega hjarta- og heilaæðasjúk- dómar. Þetta kemur fram í úttekt Hagstofunnar á dánarorsökum landsmanna á síðasta ári. Alls létust 1.987 manns sem áttu lögheimili hér á landi á síðasta ári, 1.005 konur og 982 karlar. Af þeim lést rúmur þriðjungur úr sjúkdóm- um í blóðrásarkerfi. Krabbamein var næstskæðasta dánarmeinið, og eins og áður felldi lungna- krabbamein flesta. Öndunarfæra- sjúkdómar voru þriðja algengasta dánarmeinið. - bj Helstu dánarmein óbreytt: Hjartasjúkdóm- ar skæðastir Verkfærum stolið Brotist var inn í húsnæði í Breiðholti í fyrrinótt og stolið þaðan handverk- færum. Þá var brotist inn í verslun í Kauptúni í Garðabæ og tölvubúnaði stolið. LÖGREGLUFRÉTTIR SVISS Roman Polanski kvikmynda- leikstjóri var handtekinn í Sviss á föstudag vegna handtökuskipun- ar frá árinu 1977. Polanski var þá fundinn sekur um að hafa haft samræði við ólögráða barn, þrett- án ára gamla stúlku, sem sat fyrir hjá honum sem ljósmyndamódel. Polanski kom til Sviss til að taka við heiðursverðlaunum á kvik- myndahátíð í Zürich. Polanski hefur náð að forðast handtöku í 32 ár og eytt mestum tíma í Frakklandi og Póllandi en hann hefur franskan ríkisborgara- rétt. Frakkland hefur ekki haft framsalssamning við Bandaríkin sem nær yfir brot af hans tagi. „Við höfðum handtökuskipun og við vissum að hann væri að koma,“ sagði talsmaður svissneska dóms- málaráðuneytisins. Polanski hefur forðast ríki sem kynnu að fram- selja hann og í málaferlum hans við tímaritið Vanity Fair árið 2005 fóru vitnaleiðslur fram í gegnum síma. Stúlkan sem Polanski misnot- aði heitir Samantha Geimer en foreldrar hennar höfðu gefið Pol- anski leyfi til að mynda hana fyrir tímaritið Vogue. Samantha sagði í vitnaleiðslum að Polanski hefði á síðari fundi þeirra veitt henni áfengi og róandi lyf og svo misnotað hana kynferðislega en Polanski fékk íbúð leikarans Jack Nicholson lánaða fyrir tökurnar þar sem brotin áttu sér stað. Polanski hefur farið fram á að málið verði látið niður falla en bandarísk stjórnvöld hafa vísað beiðninni frá. Samantha Geimer, sem komst að bótasamkomulagi við Polanski utan réttarsala, hefur einnig lýst því yfir að hún vilji að málinu sé vísað frá. Menntamálaráðherra Frakk- lands, Frederic Mitterand, segist orðlaus yfir handtöku Polanskis og segir Frakklandsforseta, Nicolas Sarkozy, fylgjast náið með málinu og vonast til að það „leysist“. Mitterand sagði jafnframt að honum þætti afar miður að Pol- anski þyrfti nú að ganga í gegn- um enn eina þrekraunina. „Maður sem hefur nú þegar þurft að ganga í gegnum þær svo margar.“ Menntamálaráðherrann vísar þar í æsku Polanskis, sem náði að flýja gyðingagettó í Póllandi en móðir hans lést í útrýmingarbúðum í Auschwitz. Þá var fyrrverandi eiginkona Polanskis, Sharon Tate, myrt af Manson-genginu árið 1969. Susan Atkins, ein af morðingjun- um, lést í fangelsi daginn áður en Polanski var handtekinn. juliam@frettabladid.is Hefur forðast handtöku í þrjá áratugi Kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski var hand- tekinn í Sviss á föstudag. Bandarísk yfirvöld krefjast þess að Polanski verði framseldur vegna kynferðis- brots gegn ungri stúlku fyrir 32 árum. HANDTEKINN Á LEIÐ Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ Roman Polanski hefur haft varann á sér og forðast lögsögur landa sem hugsanlega framselja hann til Bandaríkjanna. Hér er Polanski ásamt eiginkonu sinni, Emmanuelle Seigner. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.