Fréttablaðið - 28.09.2009, Page 12

Fréttablaðið - 28.09.2009, Page 12
12 28. september 2009 MÁNUDAGUR B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Kanarí Verð kr. 119.900 – 25 nætur Frá kr. 149.900 – 30 nætur Frá kr. 119.900 Glæsilegar haustferðir Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum í haustferðirnar 25. október í 30 nætur eða 24. nóvember í 25 nætur á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábært „stökktu tilboð“ auk sértilboða á Parquemar og á hinu vinsæla Jardin del Atlantico íbúðahóteli með öllu inniföldu á hreint ótrúlegum kjörum. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara! 25. okt. & 24. nóv. Frá kr. 169.900 – með „öllu inniföldu“ ÓTRÚLEG SÉRTILBOÐ! Ný jólaferð! 14 nætur frá kr. 119.500 Tryggðu þér sæti strax! NÝTT! Jardin A tlantico með „ö llu innifö ldu“ ÍRLAND, AP Örlög Lissabon-sátt- mála Evrópusambandsins ráðast í þjóðar atkvæðagreiðslu á Írlandi næsta föstudag. Samkvæmt skoð- anakönnun, sem birt var fyrir helgi, eru góðar líkur til þess að samningurinn verði samþykktur. Ráðamenn Evrópusambandsins geta þá andað léttar, því þessi sami samningur var felldur í júní á síð- asta ári á Írlandi. Sú niðurstaða olli miklu uppnámi í Evrópusam- bandinu og varð til þess að tefja enn frekar þær breytingar á sam- bandinu, sem Lissabon-sáttmálinn kveður á um. Samkvæmt skoðanakönnun TNS styðja 48 prósent Íra samninginn núna, 31 prósent eru andvíg en 19 prósent óákveðin. Staðan var svip- uð þegar síðasta könnun var gerð fyrir þremur vikum, þegar eigin- leg kosningabarátta hófst. Ef óákveðnum er sleppt, þá eru 59 prósent fylgjandi samningnum, en 41 prósent andvíg. Samningurinn, sem nú verður kosið um, er þó ekki nákvæmlega sá sami og Írar felldu fyrir rúmu ári. Nokkrum viðaukum hefur verið bætt við hann til að koma til móts við gagnrýni Íra. Meðal annars var samþykkt að Írland og önnur smærri aðildar- ríki Evrópusambandsins fái áfram að eiga fulltrúa í framkvæmda- stjórn sambandsins, en fyrirhug- aðar breytingar á því fyrirkomu- lagi voru líklega það sem helst gerðu útslagið um að Írar felldu samninginn í fyrra. Einnig er fallist á að Írar fái áfram að ráða því hvernig þátttöku írska hersins í aðgerðum á vegum ESB verður háttað. Írar fá einnig að ráða eigin skattamálum áfram og þurfa ekki að lúta niðurstöðum evrópsks dómstóls um fóstur- eyðingar. Leiðtogar Evrópusambandsríkj- anna undirrituðu Lissabon-sáttmál- ann í desember árið 2007, og átti hann að koma í staðinn fyrir stjórn- arskrársáttmála sambandsins, sem ekkert varð úr vegna andstöðu Frakka og Hollendinga árið 2005. Lissabon-sáttmálinn gengur ekki eins langt og stjórnarskrársáttmál- inn, en báðir ganga út á að endur- bæta stofnanakerfi og starf Evrópu- sambandsins og aðlaga það þeirri miklu fjölgun aðildarríkjanna sem orðið hefur undanfarin ár. gudsteinn@frettabladid.is Írar nú sáttari við Lissabon- sáttmálann Góðar líkur virðast á því að Írar samþykki Lissabon- sáttmála ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Komið hefur verið til móts við gagnrýni Íra, sem felldu þennan sama sáttmála í atkvæðagreiðslu á síðasta ári. KOSNINGABARÁTTAN HARÐNAR Kosningaspjald á ljósastaur í Dublin, þar sem Írar eru hvattir til þess að hafna Lissabon-sáttmálanum. NORDICPHOTOS/AFP FELUMAÐURINN ÓGURLEGI Strákur- inn starði undrandi á þennan breska hermann í felubúningi í bænum Chester í norðvestanverðu Englandi, þar sem 300 hermenn fóru í bæinn til að kveðja íbúana áður en þeir héldu til Afganistans. NORDICPHOTOS/AP STJÓRNMÁL „Ef við eigum að ná lík- legum skuldbindingum okkar við að minnka losun til 2020 þurfum við að skipta yfir í sparneytnari bíla.“ Þetta sagði Svandís Svavars- dóttir umhverfisráðherra í erindi sem hún flutti á Jafnréttis dögum í Háskóla Íslands liðinni viku. Svandís flutti ræðu sína á tákn- máli. Í máli sínu fléttaði hún saman umhverfis- og jafnréttismálum. Benti hún á að íslendingar ættu útblástursfrekasta bílaflota Evr- ópu. Kvaðst hún ekki vilja gera lítið úr því að víða þyrftu menn stóra og öfluga bíla til að komast leiðar sinnar. Ekki heldur ætlaði hún að halda því fram, sem oft væri gantast með, að stórir bílar væru einhvers konar uppbót eða framlenging á sjálfsmynd eiganda síns, sem oftast væri karlkyns. „En ég vil samt velta þeirri spurningu upp hvort bílaflot- inn væri kannski aðeins lofts- lagsvænni ef konur fengju meira ráðið um bílakaup. Við þurfum ekki ofurjeppa til að kaupa í mat- inn í borginni og við þurfum ekki bensínhák í daglegum ferðum í vinnu eða skóla,“ sagði Svandís. Vitnaði hún til niðurstöðu sér- fræðinganefndar um að engin ein aðgerð væri jafn hagkvæm og að skipta hraðar yfir í sparneytn- ari bíla. Skoraði hún svo á fólk að skoða sparneytnasta kostinn næst þegar það skipti um bíl eða keypti bíl í fyrsta sinn. - bþs Umhverfisráðherra vill að fólk kaupi sparneytnari bíla: Nauðsynlegt að bíla- flotinn mengi minnaALÞINGI Forsætisnefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í fyrradag að hætta að greiða fyrir áskrift að Morgunblaðinu fyrir þing- menn. Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, formaður nefndarinnar, segir að þetta sé liður í hagræð- ingaraðgerðum þingsins og hafi ekkert með ráðningu Davíðs Oddssonar sem ritstjóra blaðsins að ræða. Áfram verður þó hægt að glugga í Moggann sem liggur niður í þingi. „Þetta er liður í sparnaði hjá okkur. Morgunblaðið er orðið eina blaðið sem við höfum verið að borga fyrir og að okkar mati þá er þetta liðin tíð. Þingmenn hafa aðgang að fréttum á netinu og eru með netið í símanum og geta því leitað allra upplýsinga,” segir Ásta. Forsætisnefnd Alþingi: Hætta með Mogga í áskrift ÞRÓUNARSAMVINNA Skrifað hefur verið undir verksamning milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og Íslenskra orku- rannsókna (ÍSOR) um jarðhita- verkefni í Níkaragva. Samning- urinn felur í sér að ÍSOR veitir sérfræðiaðstoð á sviði jarðhita í Níkaragva næstu þrjú ár. Verkið er hluti af þróunar- aðstoð Íslendinga í samvinnu við stjórnvöld og felst í því að byggja upp færni og þekkingu innan ríkis stofnana sem koma að þróun jarðhitaauðlinda í landinu. Einn starfsmaður ÞSSÍ ytra hefur yfirumsjón með verkinu, að því er segir í tilkynningu. - jab Jarðhitaverkefni í Níkaragva: Byggja upp þekkingu ytra HEILBRIGÐISMÁL Einar Rafn Har- aldsson, forstjóri Heilbrigðisstofn- unar Austurlands (HSA), býst við að stofnunin þurfi að skera niður um 100-150 milljónir króna á næsta ári. Hann býst jafnvel við enn meiri niðurskurði næstu ár á eftir, eða um allt að 25 prósent af því rekstrar fé sem stofnunin hefur haft. „Við höfum ekki séð áætlanir stjórnvalda en miðað við þær for- sendur sem fjármálaráðuneytið hefur gefið sér um 5-6 prósenta niðurskurð í heilbrigðisþjónustu má gera ráð fyrir að við þurfum að draga saman um meira en hundr- að milljónir á næsta ári,“ segir for- stjórinn. Einar Rafn telur að ekki verði komist hjá uppsögnum eða niður- skurði hjá HSA ef þessar forsendur ganga eftir. „Ég vitna bara í orð heilbrigðisráðherra í Fréttablaðinu sem sagði að menn gætu ekki látið sig dreyma um að halda óbreytt- um mannafla eða þjónustu,“ segir Einar Rafn. Rekstrarkostnaður HSA var um 2,3 milljarðar í fyrra en áætlaður rekstrarkostnaður í ár er um tveir milljarðar. Forstjóri HSA segir að ef áætlanir um niðurskurð gangi eftir megi búast við því að niður- skurðurinn hlaupi á um 500 millj- ónir á nokkrum árum. „Ef þessi spá er ljóst að starf- semin verður þá ekki eins og hún er í dag,“ segir Einar Rafn. - kh Hundrað milljóna króna niðurskurður blasir við Heilbrigðisstofnun Austurlands: Óttast að missa starfsfólk EINAR RAFN HARALDSSON Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands segir að erfið sigling bíði þeirra sem reki ríkisstofnanir næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.