Fréttablaðið - 28.09.2009, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 28.09.2009, Blaðsíða 30
 28. SEPTEMBER 2009 MÁNUDAGUR14 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Fasteignaskrá Íslands tók á dögun- um saman upplýsingar um fjölda þinglýstra makaskiptasamninga á höfuðborgarsvæðinu frá júní 2006 til og með ágúst á þessu ári. Með makaskiptasamningi er átt við kaupsamning um fasteign þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Makaskiptasamningum hefur fjölgað gríðarlega á þessum þrem- ur árum á sama tíma og fjöldi þing- lýstra samninga hefur minnkað til muna. Þar kemur meðal annars fram að hlutfall makaskiptasamninga frá júní og til loka árs 2006 var 2,8 prósent af þinglýstum samningum á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2007 var hlutfallið 2,2 prósent. Árið 2008 voru makaskiptasamningar 14,7 prósent af þinglýstum samn- ingum og fram í ágúst á þessu ári var hlutfall þeirra orðið 38,4 pró- sent. Fjöldi þinglýstra samninga hefur einnig breyst. Frá júní og fram í desember voru þinglýstir að meðaltali 483 samningar á mánuði. Árið 2007 voru að meðal- tali 768,6 samningar þinglýstir á mánuði. Árið 2008 var meðaltalið 267,4 samningar og það sem af er þessu ári hafa að meðaltali 139,5 samningar verið þinglýstir á mán- uði á höfuðborgarsvæðinu. Slík fjölgun makaskiptasamn- inga er þó ekkert einsdæmi því á árunum 1995 til 1997 slagaði hlut- fall makaskiptasamninga einnig upp í fjörutíu prósent. Frá árinu 2000 til 2008 voru mjög fáir slíkir samningar gerðir. - sg Mikill fjöldi makaskiptasamninga Á vef Reykjavíkurborgar www. rvk.is eru leiðbeiningar til þeirra sem hugsa sér að sækja um húsa- leigubætur. Þar segir að þeir leigj- endur, sem leigi íbúðarhúsnæði til búsetu og eigi þar lögheimili, eigi rétt á húsaleigubótum í Reykjavík. Skilyrði húsaleigubóta er að fyrir liggi þinglýstur leigusamningur til að minnsta kosti sex mánaða. Námsmenn eru undanþegnir skil- yrði um lögheimili en þurfa þó að flytja aðsetur í húsnæðið sem tekið er á leigu. Húsaleigubætur greiðast ein- ungis vegna íbúðarhúsnæðis. Með íbúðarhúsnæði er átt við venjulegar og fullnægjandi heimilis aðstæður og eru lágmarksskilyrði að minnsta kosti eitt svefnherbergi ásamt sér- eldhúsi eða eldunar aðstöðu og sérsnyrtingu og bað aðstöðu, þótt íbúðin sé ósamþykkt. Umsókn um húsaleigubætur þarf að berast sveitarfélagi eigi síðar en sextánda dag fyrsta greiðslu- mánaðar. Ef umsókn berst seinna verða húsaleigu bætur ekki greidd- ar vegna þess mánaðar. Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka eða út leigusamning- inn. Nánari upplýsingar veita þjón- ustumiðstöðvar hverfa. Sjá einnig www.rvk.is. - sg Sótt um bætur Húsaleigubætur greiðast einungis vegna íbúðarhúsnæðis. Frá og með mánudeginum 21. september hafa viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs þurft að auðkenna sig með veflykli RSK eða rafræn- um skilríkjum til að gera greiðslu- mat og sækja um lán hjá Íbúða- lánasjóði. Þessi breyting er gerð í samstarfi við island.is. Öryggi viðskiptavina er talið verða meira en áður þar sem tryggt sé að ekki sé hægt að gera greiðslumat eða sækja um lán í annars nafni. Helsta breytingin fyrir viðskiptavini við gerð greiðslumats er að ekki verður þörf á nýskráningu heldur er vef- lykillinn eða rafræna skilríkið notað til að skrá sig inn á greiðslu- matssíðuna. Til að sækja um lán er sama leið notuð til innskráningar, en ekki dugir að nota kennitölu og greiðslumatsnúmer eins og gert hefur verið. - sg Veflykill til að sækja um lán Nú þurfa viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs að auðkenna sig með veflykli eða raf- rænum skilríkjum til að gera greiðslu- mat eða sækja um lán. Makaskiptasamningum hefur fjölgað verulega milli ára.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.