Fréttablaðið - 28.09.2009, Side 42
26 28. september 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Lið 22. umferðar Pepsi-deildar karla
Fréttablaðið hefur valið lið 22. umferðar í Pepsi-deild
karla. Það er skipað eftirtöldum leikmönnum: Mark-
vörður: Ingvar Þór Kale (Breiðabliki). Vörn: Kristján
Valdimarsson (Fylki), Kári Ársælsson (Breiðabliki),
Þórður Steinar Hreiðarsson (Þrótti) og Hjörtur Logi
Valgarðsson (FH). Miðja: Magnús Sverrir
Þorsteinsson (Keflavík), Símun Samuel-
sen (Keflavík), Andrés Már Jóhannesson
(Fylki) og Bjarni Guðjónsson (KR). Sókn:
Björgólfur Takefusa (KR) og Alfreð Finn-
bogason (Breiðabliki).
FÓTBOLTI Páll Einarsson var ráð-
inn þjálfari Þróttar á laugardag-
inn og skrifaði undir tveggja
ára samning við félagið. Hann
hefur verið aðstoðarmaður Ólafs
Þórðar sonar hjá Fylki en snýr nú
aftur til sín uppeldisfélags.
Páll fór frá Þrótti árið 2005
eftir harðar deilur við Atla
Eðvaldsson, þáverandi þjálfara.
Hann er enn í dag leikjahæsti
leikmaður Þróttar frá upphafi.
Hann lék með Fylki í tvö sumur
eftir það og þjálfaði Hvöt í 2.
deildinni síðasta sumar. Páll var
svo ráðinn til Fylkis síðastliðið
haust.
Þróttur féll úr Pepsi-deild karla
og leikur því í 1. deildinni að ári.
Gunnar Oddsson var þjálfari
Þróttar en hætti um mitt sumar.
Þorsteinn Halldórsson þjálfaði
Þrótt eftir það. - esá
Þjálfaraskipti hjá Þrótti:
Páll snýr aftur
til Þróttar
PÁLL EINARSSON Kominn aftur í Laugar-
dalinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Lúkas Kostic, þjálfari
Grindavíkur, sagðist vilja halda
áfram þjálfun liðsins eftir leik
sinna manna gegn Breiðabliki
um helgina. Hann tók við liðinu
stuttu eftir að mót hófst í vor.
„Ég er búinn að eiga nokkra
jákvæða fundi með stjórn
Grindavíkur og vonandi verð-
ur gengið frá samningi strax í
næstu viku,“ segir Lúkas. - esá, óþ
Lúkas Kostic í Grindavík:
Vill halda áfram
FÓTBOLTI Gunnleifur Gunnleifsson
er nú orðaður við flest stærstu
liðin í efstu deild karla en hann er
leikmaður HK sem ekki tókst að
endurheimta sæti sitt í efstu deild.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er líklegast að Gunnleifur
gangi í raðir FH, þótt það gæti enn
breyst. Mikill áhugi er hjá FH að
semja við Gunnleif en viðræður
við HK munu þó ganga hægt.
Sigurður Örn Ágústsson, einn
forráðamanna HK, sagði í samtali
við Fréttablaðið að félagið hefði átt
í viðræðum við bæði FH og KR um
Gunnleif. Félagið vissi einnig af
áhuga annarra liða en Valur hefur
einnig verið sterklega orðað við
Gunnleif.
„Við skiljum það mjög vel að
hann hafi áhuga á því að spila
í úrvalsdeild á næsta ári og við
erum stoltir af því að eiga lands-
liðsmarkvörð í okkar félagi. Við
munum ekki standa í vegi fyrir því
að hann fari annað. Gunnleifur er
þó samningsbundinn HK og þurfa
félög að ræða við okkur fyrst og
komast að samkomulagi um kaup-
verð,“ sagði Sigurður.
Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari lét hafa eftir sér fyrir
stuttu að hann gæti ekki valið
Gunnleif áfram í landsliðið nema
hann spilaði með félagi í efstu
deild. Því er það líklegasta niður-
staðan að svo verði og sem stendur
virðist FH standa best í baráttunni
um Gunnleif.
FH hefur þegar gengið frá kaup-
um á Gunnari Má Guðmundssyni
frá Fjölni og hefur hug á því að
styrkja liðið enn frekar fyrir átök
næsta tímabils. - esá
FH, Valur og KR eru öll orðuð við Gunnleif Gunnleifsson landsliðsmarkvörð:
Líklegast að Gunnleifur fari til FH
GUNNLEIFUR GUNNLEIFSSON
Vill spila í efstu deild á næstu leiktíð. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
FÓTBOLTI Breiðablik tókst að tryggja
sér annað sæti Pepsi-deildar
kvenna í gær með 7-0 stórsigri á
GRV á heimavelli. Breiðablik, Þór/
KA og Stjarnan unnu öll sína leiki
í lokaumferð deildar innar í gær
og hlutu öll 39 stig. Blikar voru þó
með besta markahlutfallið þegar
uppi var staðið.
Þór/KA kom sér reyndar upp í
annað sæti deildarinnar um tíma
er liðið komst í 3-0 forystu í fyrri
hálfleik í leik sínum gegn KR. Á
sama tíma höfðu Blikar aðeins
skorað eitt mark í sínum leik gegn
GRV.
Þetta breyttist þó allt í seinni
hálfleik. KR hafði minnkað mun-
inn í 3-1 í lok fyrri hálfleiks og
skoraði svo öðru sinni í seinni
hálfleik, án þess að Þór/KA næði
að bæta við mörkum.
Blikar gengu að sama skapi á
lagið og keyrðu yfir andstæðinga
sína í seinni hálfleik. Um algera
einstefnu að marki GRV var að
ræða og hefðu Blikar vel getað
skorað fleiri mörk en þau sex sem
litu dagsins ljós.
„Það virðist oft vera að við spil-
um betur á móti vindi eða með
honum,“ sagði Gary Wake, þjálf-
ari Blika. „Þetta var eins og svart
og hvítt hjá okkur. En við fórum
vel yfir stöðuna í hálfleik og mér
fannst leikmenn bregðast vel
við.“
Hann segir árangur Breiðabliks
í sumar vera vel viðunandi en liðið
mætir Val í bikarúrslitaleiknum
um næstu helgi og tímabilinu er
því ekki lokið enn. „Það var frábær
bónus að fá Meistaradeildarsætið
og það verður frábær reynsla fyrir
þessa leikmenn að fá að prófa sig
meðal þeirra bestu í Evrópu. Við
erum með ungt og mjög efnilegt
lið en það er alveg ljóst að það á
erindi í þessa keppni.“
Baráttunni um markadrottn-
ingartitilinn lauk einnig í gær.
Þær Kristín Ýr Bjarnadóttir, leik-
maður Vals, og Rakel Hönnudóttir
hjá Þór/KA voru jafnar fyrir leiki
lokaumferðarinnar en þær höfðu
báðar skorað 23 mörk.
Valur lék á laugardag og vann þá
Aftureldingu/Fjölni, 3-0. Kristínu
Ýri tókst þó ekki að skora.
„Við vorum búnar að tryggja
okkur titilinn og því að litlu að
keppa í leiknum. Það virtist því allt
ganga út á það í leiknum að koma
boltanum á mig svo ég gæti skor-
að. En þar með vorum við ekki að
spila okkar venjulega bolta og mér
tókst ekki að skora,“ sagði Kristín
Ýr í samtali við Fréttablaðið.
Rakel Hönnudóttur tókst þó ekki
heldur að skora í gær er Þór/KA
mætti KR. Báðar hafa tekið þátt í
öllum átján deildarleikjum sinna
liða en Kristín Ýr hefur leikið í
færri mínútur. Hún fær því gull-
skóinn.
„Þetta er auðvitað frábært þó
svo að það hafi verið aðalatriðið
að vinna Íslandsmeistaratitilinn.
Ég setti mér það markmið að skora
tuttugu mörk í sumar og það tókst.
Mér finnst svo auðvitað aldrei leið-
inlegt að vinna til verðlauna.“
eirikur@frettabladid.is
Blikar í Meistaradeildina
Breiðablik tryggði sér í gær annað sæti Pepsi-deildar kvenna með 7-0 sigri á
GRV í lokaumferð deildarinnar. Breiðablik og Valur verða því fulltrúar Íslands í
Meistaradeild Evrópu. Valsarinn Kristín Ýr Bjarnadóttir varð markadrottning.
SKORUÐU SEX Í SEINNI HÁLFLEIK Hlín Gunnlaugsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir,
Erna Björk Sigurðardóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir fagna einu marka Breiðabliks í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Björgólfur Takefusa gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fimm mörkin
í 5-2 sigri KR á Vals á Vodafone-vellinum á laugardaginn. Um leið
tryggði hann sér markakóngstitilinn í deildinni en fyrir leikinn vant-
aði hann þrjú mörk til að jafna árangur FH-ingsins Atla Viðars
Björnssonar. Hann er leikmaður 22. umferðar Pepsi-deildar
karla.
„Þetta hlýtur að vera einn eftirminnilegasti dagurinn
sem ég hef upplifað,“ sagði Björgólfur. „Ég vona að þetta
verði samt ekki sá eini.“
Hann sagðist þrátt fyrir allt ekki hafa verið að hugsa
um að ná í gullskóinn. „Það þurfti mikið til að ná því
og ég var ekki að hugsa um það. Ég ætlaði að sjá
til hvað ég gæti gert og hugsa fyrst og fremst um
að liðið myndi vinna leikinn. Það er mikill rígur á
milli Vals og KR og ég held að margir KR-ingar séu
ánægðir með þennan sigur. Það er frábært að hafa
tekið þátt í slíkum sigri og að hafa getað gert eitthvað
í þeim leik.“
Hann segir þó að KR-ingar hafi stefnt að því að ná
titli í sumar. „Við erum engan veginn sáttir við að það hafi
ekki tekist. Það er svolítið skrýtið að 48 stig hafi ekki dugað
til þess. En FH er með mjög gott lið og náði góðum úrslitum
í sumar. Við getum þó fyrst og fremst sjálfum okkur um kennt
og það er undir okkur komið að mæta betur gíraðir til leiks
næsta sumar.“
Björgólfur segir að hann sé bjartsýnn á að það takist.
„Þetta er frábær hópur leikmanna og frábært lið. Öll
umgjörð er búin að vera glæsileg og mórallinn hefur
verið góður. Mér finnst í fyrsta skipti sem KR sé að
spila skemmtilegan og skapandi bolta og mikið sé
hægt að vinna með þetta og byggja til framtíðar.“
Björgólfur tók sér frí eftir síðasta tímabil og sér
ekki eftir því nú. „Ég byrjaði ekki fyrr en í mars
og er því dauðfeginn því þetta er besta undir-
búningstímabil sem ég hef tekið. Ég náði að
hvíla mig vel og mæli með því við alla þjálfara
að hefja bara undirbúningstímabilið í mars,“
sagði hann í léttum tón.
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA: MARKAKÓNGUR OG LEIKMAÐUR 22. UMFERÐAR PEPSI-DEILDAR KARLA
Mæli með því að hefja undirbúning í mars
HANDBOLTI Fram varð í gær
meistari á Reykjavík Open-mót-
inu í handbolta sem fór fram um
helgina. Fram hafði betur gegn
Stjörnunni í úrslitaleik mótsins,
28-26.
Stella Sigurðardóttir skoraði
tíu mörk fyrir Fram í leiknum og
Íris Björk Símonardóttir varði
24 skot í markinu. Alina Daniela
skoraði tíu mörk fyrir Stjörnuna.
Valur vann Fylki, 22-13, í leik
um þriðja sæti. - esá
Reykjavík Open:
Fram meistari
SKORAÐI TÍU MÖRK Stella Sigurðardóttir,
leikmaður Fram, fór mikinn í úrslita-
leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
KÖRFUBOLTI Fjórðungsúrslit í
Powerade-bikarkeppnum karla
og kvenna fóru fram um helgina.
Í undanúrslitunum í karla-
flokki mætast KR og Njarðvík
annars vegar og hins vegar
Grindavík og Snæfell.
Njarðvík lagði í gær granna
sína í Keflavík, 79-76, í spenn-
andi leik. Staðan í hálfleik var
41-38, Keflavík í vil en Njarðvík
náði að snúa leiknum sér í hag í
fjórða leikhluta er liðið komst á
15-1 sprett.
Þá vann Grindavík nauman
sigur á ÍR, 68-64, og Snæfell
lagði Stjörnuna, 96-83.
Í kvennaflokki munu Haukar
og Hamar eigast við í undan-
úrslitum annars vegar og KR og
Grindavík hins vegar. - esá
Powerade-bikarkeppnin:
Njarðvík lagði
Keflavík