Fréttablaðið - 28.09.2009, Page 46
30 28. september 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Þetta er sent út í beinni og það má
ekkert klikka,“ segir torfærukapp-
inn Gísli Gunnar Jónsson. Hann
kemur fram í einum vinsælasta
sjónvarpsþætti Evrópu, Wetten
Dass, á þýsku sjónvarpsstöðinni
ZDF hinn þriðja október. Þar ætlar
hann að aka bíl sínum um tvö
hundruð metra yfir áttatíu metra
djúpt stöðuvatn í beinni útsendingu.
Rétt áður en hann leggur í svaðil-
förina geta áhorfendur veðjað um
hvort honum takist ætlunarverkið
eður ei.
Gísli býst við því að bruna örugg-
lega yfir vatnið á jeppanum, sem
áður hét Kókómjólkin, þó svo að
vegalengdin sé sú lengsta sem hann
hafi farið til þessa. „Nema það verði
skyndileg bilun, þá sekkur hann
bara. En það er settur neyðarkútur
á hann þannig að hann sökkvi ekki
niður og dragi mann til kölska.“
Eftir áhættuatriðið verður bíl-
inn dreginn inn á sjónvarpspall
þar sem Gísli verður tekinn tali.
Wetten Dass hefur verið á dagskrá
ZDF í áratugi og áhorfið á hann
mun vera það næstmesta í Evrópu
á eftir Eurovision-keppninni, eða
sem nemur yfir þrjátíu milljón-
um áhorfenda. „Ég hef aldrei próf-
að neitt í líkingu við þetta. Þetta
er náttúrulega risabatterí,“ segir
Gísli, sem er margfaldur Íslands-
meistari í torfæruakstri og fyrr-
verandi heimsmeistari.
Gísli kom fyrir nokkrum árum
fram í þættinum Top Gear þar sem
hann keyrði einmitt yfir vatn. „Það
var heilmikil umfjöllun og þeir sáu
þetta og höfðu samband við mig,“
segir hann um forsvarsmenn Wet-
ten Dass. Búið er að smíða nýjan
mótor fyrir jeppann vegna þáttar-
ins í von um að hann haldi út alla
tvö hundruð metrana í vatninu.
„Það er þverhnípt niður og maður
verður bara að vera snöggur,“ segir
Gísli, hvergi banginn. - fb
Yfir stöðuvatn í milljónaþætti
Á LEIÐ TIL ÞÝSKALANDS Gísli Gunnar
Jónsson fagnar sigri í keppni í Noregi
fyrir þremur árum. Hann kemur fram í
þættinum Wetten Dass 3. október.
MYND/GÍSLI
LÁRÉTT 2. ofstopi, 6. frá, 8. laus
greinir, 9. dýrahljóð, 11. mun, 12. ek,
14. þvo, 16. berist til, 17. fúadý, 18.
drulla, 20. þys, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT 1. kássa, 3. íþróttafélag,
4. eyja í Miðjarðarhafi, 5. svelg, 7.
hefting, 10. ar, 13. skarð, 15. svari, 16.
hryggur, 19. óreiða.
LAUSN
„Elva hefur alltaf verið skap-
andi og var aðeins níu ára þeg-
ar hún hannaði fyrstu jólafötin
sín. Mér finnst hálsmenin henn-
ar mjög flott og hún er dugleg
að koma þessu í framkvæmd
með tvö lítil börn.“
Guðrún Snorradóttir, móðir Elvu Daggar
Árnadóttur sem heklar hálsmen undir
nafninu Elva.
Diskó
Friskó
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á flugumferðarstjórnun og öllu
sem viðkemur því og þegar Flug-
skólinn auglýsti eftir nemum í
flugumferðar stjórnun síðasta
haust greip ég bara tækifærið,“
segir Sigurður Hrannar Hjalta-
son. Áhorfendur Fangavaktarinnar
sáu Sigurð fara á kostum í hlut-
verki hins kjaftfora óþokka Ingva
í fyrsta þættinum sem sýndur var
í gærkvöldi. Hugsanlega er þessi
smásál þó síðasta hlutverk Sigurð-
ar í bili því hann einbeitir sér um
þessar mundir alfarið að náminu
í flugumferðarstjórnun og vonast
til að geta gert það að framtíðar-
starfi; leiklistin verður lögð á hill-
una, þótt ótrúlegt megi virðast.
Sigurður segist alltaf hafa ætlað
sér að læra eitthvað í samband við
flug. En svo hafi örlögin tekið í
taumana. „Ég komst inn í leiklistar-
skóla í London strax eftir nám í
Versló og fór bara að læra leiklist.
Ég hafði flugið samt alltaf í bak-
höndinni,“ útskýrir Sigurður en
þegar hann sneri heim fékk hann
strax eitthvað að gera, lék meðal
annars í Ástin er diskó, lífið er
pönk sem sett var upp í Þjóðleik-
húsinu fyrir skemmstu. „Svo er
bara misjafnt að gera í þessu og ég
ákvað bara að stökkva á þetta tæki-
færi, að láta gamlan draum rætast
og læra eitthvað tengt flugi.“
Nám í flugumferðarstjórnun er
ekkert síður krefjandi en leiklist-
in og aðeins þeir bestu komast að.
„Já, maður valdi sér annað svona
„ef“ nám þar sem maður lærir og
lærir en verður bara að vona það
besta.“ Sigurður klárar réttinda-
námið í janúar og er leikarinn þá
orðinn flugumferðarstjóri. Hann
er þegar kominn á mála hjá Flug-
stoðum og ef allt gengur að óskum
verður hann þar áfram þegar nám-
inu lýkur. „Hvort ég er kominn með
sterkar taugar? Jú, það má kannski
segja það, maður lærir það í leik-
listinni að taka því sem kemur og
ef hlutirnir ganga upp þá ganga
þeir bara upp.“ Námið í leiklist-
arskólanum í London var þó ekki
alveg tilgangslaust, enska er mikið
notuð í flugumferðar stjórnun og
þá skiptir andlegi þátturinn miklu
máli. „Þetta er ekkert stresslaust
starf, en það fylgir því líka að þeir
velja fólk inn sem þeir telja að geti
höndlað álagið og þar kemur leik-
listin mjög sterkt inn.“
Sigurður kveðst hafa skemmt
sér konunglega við tökurnar á
Fangavaktinni og er alveg ótrú-
lega ánægður með að hafa feng-
ið tækifæri til að leika í þessum
vinsælu þáttum sem þjóðin hefur
tekið ástfóstri við. „Kannski verst
að maður var með stöðug leiðindi á
tökustaðnum og alltaf með kjaft.“
freyrgigja@frettabladid.is
SIGURÐUR HRANNAR HJALTASON: LEGGUR LEIKLISTINA Á HILLUNA Í BILI
Leikarinn sem ákvað að
verða flugumferðarstjóri
KÝS FLUGUMFERÐARSTJÓRNUN FRAM YFIR LEIKLISTINA Sigurður Hrannar Hjaltason
leikur hinn kjaftfora óþokka Ingva í Fangavaktinni. Þetta er hugsanlega síðasta hlut-
verkið hans í bili því hann lærir nú flugumferðarstjórnun og ætlar að hasla sér völl á
því sviði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýjasta glæpabók Viktors Arnars Ingólfssonar,
Sólstjakar, kemur í verslanir 1. október. Bókin
kemur út í Þýskalandi í vor á vegum útgefand-
ans Lübbe, hins sama og gefur út bækur Arn-
aldar Indriðasonar þar í landi. „Þýskaland er
annar eða þriðji stærsti bókamarkaður heims
og þar koma út níutíu þúsund titlar á ári. Bara
það að komast í bókabúðirnar er afrek í sjálfu
sér,“ segir Viktor, sem hefur selt bækur sínar í
um 150 þúsund eintökum þar í landi.
Sólstjakar, sem skartar sömu aðalpersónum
og í Aftureldingu, átti upphaflega að gerast
eingöngu í sendiráði Íslands í Berlín. „Það
var hugmynd sem vaknaði árið 2000 þegar ég
fór til Berlínar og fékk að heimsækja sendi-
ráðið þar,“ segir Viktor. „Þarna var mjög flott
sögusvið til að vinna með en þegar fléttan fór
að þroskast varð alltaf minna og minna úr
þeim þætti.“ Útgefanda Viktors í Þýskalandi
var létt þegar hann frétti af breyttu sögusviði
bókarinnar. „Þýski markaðurinn er mjög mikil-
vægur og hún var lítið hrifin af því að fá sögu
sem gerist í Þýskalandi. Þau eru að fiska eftir
glæpasögu sem gerist meira og minna á Íslandi
því þau eiga nóg af glæpasögum sem gerast í
Berlín.“
Kertastjakarnir tveir sem koma við sögu í
bókinni eiga sér skemmtilega forsögu. Leir-
listakonan Margrét Jónsdóttir fékk nokkra
höfunda, þar á meðal Viktor, til að skrifa fyrir
hana lýsingu á leirlistagripum. „Ég var að
skrifa einn af upphafsköflunum í bókinni og
það passaði vel að vera með tvo stóra kerta-
stjaka og ég sendi henni lýsingu á þeim. Það
er karlkyns leirlistamaður í sögunni sem á að
hafa gert þessa stjaka. Hann kallar þá sól-
stjaka og þaðan er nafnið komið,“ segir Viktor
sem festi síðan sjálfur kaup á stjökunum. „Það
er gott að hafa þá við höndina og ég held líka að
ég hafi fengið smá afslátt.“ - fb
Hefur selt 150 þúsund bækur í Þýskalandi
VIKTOR OG SÓLSTJAKARNIR Viktor ásamt kertastjökun-
um sem koma við sögu í nýjustu bók hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tónlistarhátíðin Réttir
þótti heppnast vel en hún
hófst í miðbæ Reykjavíkur
á miðvikudagskvöld og
lauk nú um helgina.
Skipulag var með
besta móti, svo gott
að raðir mynduð-
ust aðeins á tveimur vinsælustu
tónleikunum: Mugison og Ensími.
Það eina sem þótti fara miður í
dagskrá hátíðarinnar var að Hallur
Kristján Jónsson og félagar í
Bloodgroup neituðu að stíga á svið
á Batteríinu á miðvikudagskvöld.
Voru Bloodgroup-liðar
eitthvað ósáttir við
tæknimálin á staðnum.
Svíinn Kleerup vakti
síðan mikla athygli
íslensku kvenþjóð-
arinnar þegar hann
skemmti sér á
Karamba aðfaranótt
sunnudags.
Vegna fréttar á þessum stað í
síðustu viku um spurningakeppni á
Morgunvakt Rásar 2 vildi Bene-
dikt Sigurðsson, aðstoðarmaður
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
koma því á framfæri að ekki væri
rétt að Sigmundur hefði „grát-
beðið“ stjórnendur þáttarins að fá
að halda áfram keppni. Frumkvæði
að þátttöku hans hefði Logi Berg-
mann átt þegar hann hefði fallið
úr keppni og stjórnendur þáttarins
síðan beðið Sigmund að taka þátt.
Raggi Bjarna fagnaði 75 ára
afmæli sínu með tvennum stórtón-
leikum í Laugardalshöll á laugar-
dag. Raggi var í banastuði
á tónleikunum og fékk
auk þess til sín góða
gesti. Tónleikagestir
veittu því athygli að
sjónvarpsmyndavélar
fylgdust með hverju
skrefi Ragga og
félaga. Mun ætlun-
in vera að sýna
tónleikana á
Stöð 2 einhvern
tímann í vetur.
- hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT: 2. ofsi, 6. af, 8. hið, 9. urr,
11. ku, 12. keyri, 14. skola, 16. bt, 17.
fen, 18. aur, 20. ys, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. mauk, 3. fh, 4. sikiley,
5. iðu, 7. frestun, 10. ryk, 13. rof, 15.
ansi, 16. bak, 19. rú.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Árið 1986.
2 Ég myrti móður mína, eftir
Xavier Dolan.
3 Orgelsmiðurinn heitir Björgvin
Tómasson.