Fálkinn - 28.08.1937, Side 9
F Á L K I N N
Hválreki getur orðið víðar en í
Trjekyllisvík eins og myndin til
hægri sannar. Hún er sunnan úr
Ýorkshire í Englandi og sýnir, að
einnig þar geta hvalir verið svo ná-
lægir, að þeir hlaiipi á land, þeg-
ar ofsaveður koma. Hvalurinn á
myndinni flæmdist upp í fjöru í
hafráti og er þess ekki getið, hve
mikið hann lagði sig, en landeig-
aridinn hafði hugsun á þvi að aug-
lýsa hvalrekann og hafði svo mik-
ið upp úr aðgangseyri forvitinna
manna, sem langaði iil að sjá
hvalinn, að hann er fjáður maður
eftir.
Myndin er af Fleming, syni Axels
Danaprins og Margrjetar prins-
essu. Hann er nú kominn yfir
fermingu og ætlar að læra sjó-
mensku eins og faðir hans.
1 Indlandi er mikill fjöldi lcjós-
enda hvorki læs nje skrifandi.
Þeir fá því merktan seðil og eiga
að stinga honum í atkvæðakassa
þess ftokks, sem þeir vilja styðja,
en hver ftokkur hefir sína tákn-
mynd, sem kjósandinn þekkir, og
stingur hann miðanum í kassa
þess flokks sem hann styður. Á
myndinni hjer að ofan eru kass-
arnir fjórir og er einn þeirra tákn-
aður með metaskátum, annar með
blómi, þriðji með upprjettri hendi
og fjórði með —- regnhlíf!
Samkvæml samningum milli
Egypta og Breta hefir her Egupta-
lands nú tekisl á hendur gæslu
hergagnabúrsins mikla í Iíairo, en
áður hafa Bretar haft þessa gæslu
á hendi. Myndin til vinstri sýnir,
er egyptsku hermennirnir koma
og leysa Englendingana af hólmi.