Fálkinn


Fálkinn - 11.09.1937, Blaðsíða 2

Fálkinn - 11.09.1937, Blaðsíða 2
2 FÁLKINN ----- GAMLA BlÖ ---------- Aðeins eina nótt. Efnisrík og hrífandi mynd. Að- alhlutverkin leika liin nýja og yndislega kvikmyndastjarna MARGARET SULLAVAN, JOHN BOLES, BILLIE BURKE. Úrvalsmynd sem kemur bráðum. hessi mynd er öllu fremur nú- timasaga en æfintýri. En æfintýri er liún þó, því að hún gerist eins og „milli svefns og vöku“ þeirra, sem vilja skynja rjett um rás viðburð- anna kringum sig. Það er i henni allri hreimur af brimi þeirra ára, sem rót gerði um sálir svo margra eftir allar byltingar liugarfars og hugsanagangs, sem heimsstyrjöldin olli og þeir viðburðir í Jjjóðlia'gs 1 ifi flestra landa, sem líka urðu á mörg- um árum eftir styrjaldarlok, en þó fyrir tilstilli heimsófriðarins. Þó undarlegt megi virðast, urðu þau áhrif ekki minni í Ameríku en í þeim löndum, sem ljetu meira blóð fyrir, styrjöldina. Hið volduga land dollarsins, sem eins og flestir vita, er sökum hinnar margbreyttu fram- leiðslu sinnar, best umkomið þess „að búa að sínu“, ætlaði sjer nð græða á styrjöldinni og girðn sig inni með tollmúrum, til þess að sjúgn merginn úr Evrópu, en eins og flest- um er kunnugt fór sú tilraun n þann veg, að Bandaríkin sjálf biðu hinn herfilegasta ósigur í þeim við- skiftum og að yfir Ameriku kom eitt mesta bágindatímabil, sem sagn þeirra hermir frá. Myndin í Gamla Bio hermir fráþvi, livernig viðhorfið var í árslokin 1929, þegar lirunið hyrjnði á kaup- höllinni í New York — upphaf kreppunnar, sem Bandaríkin hafn ekki enn náð sjer eftir. Um það leyti höf'áu allir, háir og l'ágir „spekúlerað" á kauphöllinni. Og allir töpuðu svo, þegar verðbrjef og verðgildi fjellu i verði, en þeir sem mest áttu, þoldu lengst. Mr. Emer- son, sem er miðdepill myndarinnar var ríkur og þoldi fyrsta áfallið, en þar kom þó, nð hann verður ásáttuv við sig um, í miðju gestaboði, sem liann heldur, að ganga inn á einka- skrifstofu sína, og láta kúlu gei i enda á lífi sínu. En þá vill svo til. nð brjef liggur til hans á borðinu og hann les það. Það er frá stúlku, sem heitir Mary Lane, sem hann hefir jiekt forðum daga. Hann fær að vita, að hún á dreng, sem er sonur hans, og að hún hefir tvívegis liitt hann án þess að liann liafi þekt hana frá því að þau hittust fyrst, suður í Virginia. Emerson leggur skammbyssuna fró sjer. Hann langar til að komasl fimtán ár aftur í tímann — til þeirra stundar, sem hann hitti fyrst Mary Lane. Hann biður konuna sína um skilnað og biður sjálfan sig og Síra Guðmundur Einarsson prestur á Mosfelti oarð sext- ugur 8. þ. m. ólafur Finsen læknir á Akra- nesi verður sjötugur 17. sept. Hallgrímur Bjarnason bóndi að Suður-Hvammi í Mýrdal, á 70 ára afmœli 12. þ. m. og kona hans Áslaug Skæringsdóttir frá Hjörleifs- höfða; hún var 73 ára 23. maí siðastliðinn. forsjónina um skilnað frá þvi lífi. er hann aðeins þjónaði Mammoni. Myndin er tekin af Universal og það eru Margaret Sullavan og John Boles, sem leika aðalhlutverkin. Og alt er jafn vel gert: myndin og leik- ur þeirra. En Margaret tekur þó fram hinum ágæta .Tohn Boles. Stefano Islandi — Stefán Guðmnndsson. Iieitir bæklingur, sem er að koma á markaðinn og fjallar, eins og nafnið bendir til, um söngvarann, sem nú er eftirlætisgoð þess hluta þjóðar- innar, sem hefir heyrt hann syngja. Er ritið safn ýmsra ritgerða um söngvarann og hefst með grein, sem heitir „Brot úr listamannsæfi Stefáns Guðmundssonar óperusöngvara", en næst er grein um Stefán eftir próf. Magnús Jónsson. Sú grein, sem flestir munu lesa með mestri eftirtekt er rituð af Stefáni sjálfum og heitir „Éndurminningar frá ítalíu", einkar skemtilega og haglega rituð grein. þar sem höf. lætur hugann reika úr rigningarsumrinu í Reykjavík til hinna sólríku stranda Ítalíu, þar sem hann hefir lengst dvalið. Þátt- urinn, sem mag. Sigurður Skúlason hefir ritað eftir frásögn söngvarans, og heitir: „Þegar jeg söng fyrsta óperuhlutverk mitt“ er og einkar skemtilegur og lýsir vel þvi, a‘5 „enginn verður óbarinn biskup".— I.oks eru prentuð aftast í ritinu ýms timmæli erlendra blaða um Stefán og söng hans. Sjö ágætar myndir af Stefáni, flestar teknar af honuin i ýmsuni óperuhlutverkum, sem liann hefir sungið í, fylgja ritinu. Þeir eru orðnir svo margir, sem unna söng Stefáns af alhug, að það er vafalítið, að þetta litla rit, sem segir frá Stefáni og listarferli hans, muni niörgum kærkomið’, og það því fremur, sem frágangur þess allur er hinn smekklegasti. * I næsta blaði „FÁLKANSW verður siðari hluti greinarinnar um sildariðnaðinn, sem birtist í btað- inu i dag. Verður þar lýst nýju verksmiðjunni á Hjaltegri, sem h.f. Kveldútfur bygði í vor, ,,með amt- i ikönskum hrqða“ og er stærsta verksmiðja, sem bygð hefir verið i einu lagi i Evrópu. Brœðir luin 5000 mál á sólarhring, en húsakynnin legfa stækkun upp i 10.000 mál. Jafnstór þessari verksmiðju er sítd- arvreksmiðjan á Djúpuvik, en hún var upprunalega bggð fgrir 2.500 mála vinstu, en siðar stækkuð nm annað eins. Sagan i næsta blaði heitir ,,Flug- hetjan og svarti kötturinn“ og er eftir M. B. Gaunt. Er hún afar spennandi og segir frá hættulegu æfintýri, sem ameríkanskur flug- maður komst i, en ástamál ern á öðrum þræði. Þá verðnr og í blaðinu fjöldi mgnda, innlendra og útlendru, krossgáta og ýmsar fróðleiksgreinar. Þegar núverandi sendiherra Banda- ríkjanna í Rússlandi kom til Moskva furðuðu ýmsA' sig á, hve mikið hann hafði meðferðis, ekki aðeins af flutningi heldur lika fólki. Hann hafði með sjer 14 Amerikumenn, scm áttu ýmsum störfum að gegna, en einnig enskan bryta og sjerfræð- ing í húsaskipun, sem átti að breyta sendisveitarbústaðnum fyrir hann. En meðal flutningsins voru 25 kæli- skápar — og fjörutíu talmyndir, sem ráðherrann ætlaði að nota sjer til afþreyingar í Moskva, er hon- um leiddist að koma út. -------- NÝJA BÍÓ. -------------- í leynilegri þjónnstn. Stórfengleg kvikmynd, sem ger- ist i Rússlandi á heimsstyrjald- arórunum, og segir frá viðburð- um þeim, sem drifu á daga hins enska leynierindi'eka Bruce Lockharts, sem þá var enskur „varakonsúll“ í Rússlandi. Aðal- hlutverkin leika: LESLIE HOWARD og KAY FRANCIS. Skotinn R. H. Bruce Lockhavt hefir að ýmsu leyti líka sögu að segja af sjálfum sjer og „blandaði Englendingurinn“ E. T. Lawrence, sem allir viðurkenna nú, að hafi ráðið örlögum um það, hvernig fór um viðureign Tyrkja við Araba og Breta i Arabíu. Og þó var ólík að- ferð þeirra tveggja. Lawrence, forn- fræðastúdentinn frá Oxford, gerðisl vigamaður, og lierforingi og leiðtogi og vinur Araba. Hinn varð, tveim árum áður en heimsstyrjöldin hófst, undirkonsúll i Moskva, og kom aldrei fram sem ábyrgur umboðsmaður bretska heimsveldisins, lieldur ávalt sem umboðsmaður yfirmanna sinna — og þá helst sir George Buchanan, sem var hinn æðsti umboðsmaður Breta lcngst af ófriðnum, alt þang- að lil Rússar gerðu sjerfrið við Þjóðverja í Brest-Litovsk, hálfu öðru ári áður en heimsstyrjöldin var til lykta leidd. En vegna þess máske, að Lockharl var lágt settur umboðsmaður Breta. varð honum betur ágengt um, að afla sjer frjetta frá hærri stöðum og viðkynningar við ýmsa þá menn, scm voru áhrifamenn Rússlands þess sem koma skyldi, bæði þeirra, sem náðu yfirtökunum i fyrsta viðbragði og hinna, sem rjeðu úrslitum glim- unnar, er háð var um endanleg völd í Rússlandi. Slíkum mönnum kyntisl sir George sendiherra ekki. En „að- stoðar-maðurinn“ gat gert það,og um þá viðkynningu skrifaði hann eina þá skemtilegustu og fróðiegustu bók, sem til er, um samfundi erlends manns við ýmsa þá menn, er kunnir urðu í Rússlandi sköinmu eftir komu hans þangað; fyrst Kerenski, sem náði völdum meðan gruggið var að hreinsast í breytingaloftinu, síðan Leon Trotsky, sem nú er talinn mesti landráðamaður Rússa og lifir í út- legð i Mexico, Titjsjerin utanríkis- málastjóra, sem siðar var sendur í ,.livíld“ til Suður-Rússlands og Ra- dek, sein náðaður var í fyrra frá dauðadómi, öllum á óvart, og þótti mesti stjórnmálahlaðamaður rúss- uesku pressunnar. Öllum þessurn mönnum kyntist hann meir en nokkur einstakur maður hefir kynst af því tæi, og kenuir myndin við sögu jieirra allra. Kvikmyndin „f leynilegri þjón- ustu“ segir frá þeim öllum, en hún segir frá meiru. Hún segir frá ýms- um þeim undirbrögðum, sem reynt var að beita ýmsa helstu menn bylt- ingarinnar miklu, meðal annars sjálfan Lenin. Myndin gerir vafa- laust of mikið úr banatilræði því, sem Lenin var sýnt, á sama hátt og hún sýnir sumt það með öfgum, sem Lockhat segir ofur skaplega frá. En eigi að siður er myndin einskonar lieimildarskjal um sögu Rússlands frá þeim árum, sem hún segir frá. þó fyrirvari sje góður. Það sem gerir myndina glæsilega á leiksviðinu er einkum það, að hinn goðumborni leikari Leslie Ho- ward leikur þar aðalhlutverkið. Þeir sem muna hann m. a. úr „Rauða ak- urliljan" vita hvílíkur galdramaður hann er. Og þó er hann meiri lista- Frh. á bls. 1i.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.