Fálkinn - 20.11.1937, Side 9
F Á L K I N N
9
►
Myndin hjer að ofan er af þýska utan-
ríkisráðherranum, von Neurath. Sýnir
inýndin hann þegar hann heilsar við-
hafnarfylkingu, að sið fasista.
Vaxmyndasalir Madame Toussaud i
London geyma furðulega náttúrleg
líkön helstu manna veraldarsögunnar
og enda mestu óbótamanna henn-
ar líka. Þar er kvennamorðinginn
Landru og þar eru ýmsir hershöfð-
ingjar síðari tíma og þar eru helstu
stjqrnmálamenn. Þegar Stanley Rald-
win Ijet af stjórn í vor, var hann flutt-
ur á burt, en vaxmynd af Neville
Chamberlain sett i staðinn. Myndin til
vinstri sýnir „forsætisráðherraskiftin“
á vaxmyndasafninu. fíaldwin er bor-
inn burt, en aðstoðarmaður er að
laga slifsið á Chamberlain.
Útsjónarsamur gistihúseiganái hefir
fundið upp á því snjallræði að byggja
gistihús, sem að öllu líkist skipi að ytra
útliti, en stendur þó á þurru landi.
Þetta sjerkennilega gistihús stendur í
belgiska baðvistarbænum Ostende og
er í flestu stæling á franska skipinu
„Normandie". Hefir þessi hugmynd
reynst vel. Fólk hefir hyllst til að búa
á þessu gistihúsi fremur en öðrum
gistihúsum borgarinnar og eigandinn
græddi mikla peninga i snmar.
Síðastliðið sumar unnu Danir ýms af-
rek á sundi, einkum stúlkurnar Jenny
Kammersgaard oy lnger Sörensen. En
þetta þótti ekki nægja. Var þvi afráð-
ið að hafa boðsund frá Kaupmanna-
höfn til Horsens og var leiðinni skift
í tólf kafla. Þetta gekk auðvitað eins
og í sögu og hjer sjást sundmennirnir
tólf eftir sundið.