Fálkinn - 24.09.1938, Side 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Skúli Skúlason.
Sigurjón Guðjónsson.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjötsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugard.
Áskriftarverð er kr. 1,50 á mán.,
kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millim.
Herbertsprent.
Meistarakepni í Golf
Skraddaraþankar.
Starf það sem hafið liefir verið í
þá átt að greiða götu ungmenna, sem
búa við atvinnuskort, er eflirtekc-
arvert og virðingarvert. Því atvinnu-
leysisböl unglinga er þeim mun al-
varlegra en annara, sem það getur
beinlínis orðið til þess, að móta lífs-
feril þeirra um aldur og æfi, svifta
þá sjálfsbjargarviðleitni og starfs-
löngun, einmitt á því skeiði æfinnar,
sem athafnafýsnin ætti að vera sterk-
ust. Úr þessu er nú reynt að bæta
lítilsháttar með sjerstakri vinnu og
með þvi að veita unglingum bók-
lega og verklega tilsögn.
Vinnuskólahugmyndin kemur þarna
að góðu haldi. Hún á eflaust eftir
að marka djúp spor í lífi þjóðarinn-
ar, ef hún nær því marki sem hún á
að hafa: að verða almennur skóli
allra landsbúa með tíð og tíma.
Þegnskyldu vinnuhugmyndin gamla
fjekk ekki hljóð í þá daga sem hún
var borin fram; hún var of löngu
á undan sinum tíma. Nú er þjóðlíf-
ið sjálft komið miklu frekar undir
áhrif löggjafarvaldsins en var í þá
daga, og viðfangsefnin margþættari.
Og það hlýtur að reka að þvi fyr
eða síðar, að þegnskylduvinna verði
tekin upp i einhverri mynd — al-
menn þegnskylda unglinga á ákveðn-
um aldri. Sú þegnskylda verður að
beinast að því tvennu, að gera ung-
lingana hæfari fyrir lifsstarfið og
jafnfamt að því, að skapa þjóðinni
bein verðmæti. Hún verður vinnu-
skóli og vinnan, sem eftir skólann
liggur á að auka verðmæti þjóðar-
eignarinnar.
Hjer er oft kvartað undan því, hve
margt það sje af verklegum fyrir-
tækjum, sem koma þurfi í fram-
kvæmd og hve seint það gangi, vegna
fátæktar og fjeleysis. Það er minst á
vegagerðina, á framræsingu mýra,
sandgræðslu, skóggræðslu og almenna
jarðrækt. Og nú er það ofartega á
baugi, að efla landbúnaðinn með
stofnun samvinnubygginga. Á þann
hátt safnast jarðræktin saman í hverfi
og verður þvi auðveldara að vinna
að henni með fjölmenni en áður var,
og undir einni stjórn. Það ætti ekki
að verða neitt vandamál, að haga
þegnskylduvinnunni svo, að ungling-
ar fengi þar undirstöðukunnáttu í
því, sem öllum bændum er nauð-
synlegt að kunna og það ætti jafnvel
líka að vera hægt, að gera sjómanns-
efnið hæfara en ella undir starf sitt,
þó að kenslan færi ekki fram á sjó.
— Þess væri óskandi, að vinnuskól-
arnir opnuðu aúgu almennings svo
fyrir þessu, að það yrði til að greiða
fyrir endurvakningu þegnskylduliug-
myndarinnar sem fyrst.
lauk siðastliðinn sunnudag. Háðu
þeir úrslitaorustuna Helgi Eiríksson
bankafulltrúi og Hallgr. Fr. Hall-
grimsson framkvæmdastjóri, og vann
liinn fyrnefndi kepnina, sem var 36
hola umferð, Er þetta í annað skifti,
sem Hetgi vinnur meistarakepnina,
því að liann varð einnig fræknastur
á siðasta meistaramóti. Heiðurslaunin
sem fylgja méistaratigninni er hinn
fagri bikar, sem enska firmað Lever
Brothers gáfu fyrir nokkrum árum.
í flokki kvenna urðu leikslokin
milli þeirra Herdísar Guðmundsdótt-
ur og frú Jóhönnu Pjetursdóttur og
varð Herdís hlutskarpari. Fyrstu
Sigurður Jónsson, frv. hrepps-
stjóri, Þórarinsstöðum, Seyðis-
firði, verður 70 ára 27. þ. m.
Vilhelmina Hollandsdrotning átti
40 ára ríkisstjórnarafmæli nú á dög-
unum. Því var spáð í vetur, að liún
mundi afsala sjer ríkisstjórn í hend-
verðlaun i kvennaflokki er silfur-
bikar, gefinn af M. Ivjaran stórkaup-
manni.
I I. flokki karla urðu úrslitin þau,
að Sigurður Jónsson fór fram úr
Ólafi Gíslasyni í úrslitaleiknum.
Myndin hjer að ofan er af hinum
fyrverandi og núverandi golfmeistara
Helga Eiríkssyni, er hann við hús-
vígslu gotfklúbbsins í sumar sló
kylfu sinni, að viðstaddri Ingiríði
krónprinsessu. Sló hann tvisvar og
var hvert höggið öðru betra, en síð-
an heita þessi högg Helga „prins-
essuhögg“, i annálum Golfklúbbsins.
Árni Siemsen fimtugur.
Það þarf ekki Þýskalandsfara til
þess, að þekkja myndina hjer að of-
an. Því að Árni Siemsen í Lúbeck
er að svo góðu kunnur, að flestir
íslendingar, sem eitthvað liafa við
Þjóðverja að sælda, þekkja hann.
En þeir scm hafa komið til Lúbeck
þekkja hann máske enn betur. Hjálp-
semi hans og vinsemd við landa
sína, sem til Lúbeck koma, hefir
ltngi verið rómuð.
Þann 22. þ. m. varð Árni Siemsen
fimtugur. Hann fæddist í Hafnar-
firði fyrir hálfri öld, en þá var
faðir hans sýslumaður þar, En lengst
æfi sinnar hefir hann dvalið í
Lúbeck, eða siðastliðin 35 ár. Þó
liefir hann ekki sótt um þýskan rík-
isborgararjett — liann er enn is-
lenskur rikisborgari, og um leið ís-
lenskur í hugsun og tilfinning. Hann
er einn þeirra fjarvistar-íslendinga,
sem jafnan auka landinu hróður.
Júlíönu dóttur sinnar, en það liefir
ekki ræst. Gamla konan mun sitja
á konungsstóli Hollendinga, meðan
henni endist tif og heilsa.
Dr. Guðbrandur Jónsson, verð-
ur 50 ára 30. þ. m.
Frú Friðborg Friðriksdóttir,
Borgarnesi, verður 70 ára 26.
þ. m.
Helgi Thordarsen, trjesmíða-
meistari, verður 70 ára 30. þ. m.
Frú Kristín Oddsdóttir frá Þóru-
stöðum í Ölfusi, nú til heimilis
á Grjótagöiu Í4, varð 90 ára
21. þ. m.